Alþýðublaðið - 01.12.1964, Blaðsíða 14
V v
Ég: sá I Mánudagsblaðinu
nppástungu um stofnun nýs
félags og lízt mætavel á þaff.
Þaff gæti heitaff Félag ís-
lenzkra notenda falskra tanna
og mundi þá skammstafaff
FÍJiT. ,
Þingmenn deildu
TH’)
Húsmæffrafélag Reykjaví^ur:
Vill minna á jólafundinn að Hótel
Sögu (Súlnasal) þriðjudaginn 8.
desember kl. 8 s.d. félagskonur
eæki aðgöngumiða að Njálsgftu
8. föstudaginn 4. desember frá
fel. 2.30-5.30. Það sem eftir verður
verður 'afhent öðrum reykvískum
Iiúsmæðrum laugardaginn 5. des.
sama stað og tíma. Sjá nánar
frétt í dagblöðunum.
Kvenfélagið Aldan: Jólafundur
inn verður miðvikudaginn 2. des.
að Bárugötu 11. kl. 8.30 Frk. Bryn
dís Steinþórsdóttir húsmæðra-
kennari hefur sýnikennslu til
jólaundirbúnings.
Listasafn Elnars Jónssonar er
opið á sunnudögum og miðvlku-
dögum kl. 1.30 - 8.30.
Framhald af 16. síffu
aðdraganda þess. Minnti hann á
að frumvarpið hefði áður veriS
flutt á þingi fyrir tveim árum,
en þá ekki náð fram að ganga
Benedikt sagði, að kirkjuþing
hefði nú fyrir skömmu samþykkt
þetta frumvarp óbreytt með 10
atkvæðum gegn 4. Lagði hann að
lokum til að málinu yrði vísað til
2. umræðu.
Sigurvin Einarsson (F) kvað
undirtektir almennings við þetta
frumvarp hafa verið liarla dauf
ar, þótt hin geistlega stétt legði
mikla áherzlu á að Það næði fram
að ganga. Hann sagði, að þing-
menn vissu ekki hvort það væri
vilji 'almennings, að prestskosn-
ingar í núverandi mynd yrðu lagð
ar niður, því það hefði ekki verið
kannað. Gagnrýndi hann ýmis
ákvæði frumvarpsins og kvaðst
vera eindregið á móti því, þar
eð þetta væri aðeins fyrsti áfangi
þess að afnema prestskosningar
með öllu.
Jóhann Hafstein, kirkjumála-
ráðherra (S) minnti á að þetta
frumvarp liefði ekki náð fram að
ganga, er það var flutt fyrir tveim
árum. Hann lagði áherzlu á, að
rík ástæða væri til að Alþingi
markaði afstöðu sína til þessa
máls á hvorn veginn sem væri.
Hann kvaðst ekki vilja leyna því
að hann værj einn af þeim, sem
vildu láta afnema prestskosningar
í núverandi mynd, en kvaðst jafn
framt ekki vera þess fullviss, að
það fyrirkomulag, sem frumvarpið
gerði ráð fyrir væri það heppi-
legasta, sem völ væri á. Hann
mæltist til þess að málinu yrði
vísað til menntamálanefndar, þar
sem nefndarmenn gætu mótað af-
stöðu sina gagnvart því.
Einar Olgeirsson (K) sagðist
telja það ótvíræðan rétt þeirra,
sem myndað hafa lútherska-ev-
angeliska söfnuði, að ráða hverj
ir yrðu starfsmenn safnaðanna.
Sagði hann frumvarpið stangast
á við stjórnarskrá og almenn
mannréttindi, rikisvaldið ætti ekki
að sölsa undir sig réttindi almenn
ings og væri sér illa við tilhneig
ingu ýmissa embættismanna til
að taka til sín rétt fólksins.
Er Einar hafði lokið máli sínu
var umræðu frestað og fundi slit
ið.
7.00
10.30
12.15
13.00
14.00
15.00
17.00
18.00
18.20
18.30
Þriðjudagur 1. desember
(Fullveldisdagur íslands)
MorgunúU'arp — Veðurfregnir «— Tónleik-
ar — Fréttir — 8.00 Bæn — 9.00 Útdráttur
úr forustugreinum dagblaðanna.
Messa í kapellu háskólans.
Bragi Benediktsson stud. theol. prédikar.
Séra Frank Halldórsson þjónar fyrir altari.
Guðfræðinemar syngja. Organleikari: Guð
jón Guðjónsson stúd. theol.
Hádegisútvarp.
Tónleikar.
Útvarp frá hátíðarsal háskólans.
a) Hátíðin sett: Ásmundur Einarsson stud.
jur. formaður hátíðarnefndar.
b) Ræða: Efling Háskóla íslands og framtíð
æðri menntunar. Ásmann Snævarr há
skólarektor.
c) Rögnvaldur Sigurjónsson leikur á píanó
tilbrigði eftir Pál ísólfsson við stef eftir
ísólf Pálsson.
Síðdegisútvarp: Fréttir, tilkynningar og tónl.
Fréttir. — Endurtekið tónlistarefni.
Tónlistartími barnanna
Guðrún Sveinsdóttir.
Veðurfregnir.
Tónleikar.
18.50 Tilkynningar.
19.30 Frétíir.
20.00 Nýtt framhaldsleikrit:
„Heiðarbýlið" eftir Jón Trausta. I. kafli.
Valdimar Lárusson bjó til flutnings 1 útvarp.
Persónur og leikendur:
Ólafur bóndi í Heiðarhvammi Guðm. Pálsson
Halla, kona hans.........Helga Bachmann
Egill, hreppstjóri í Hvammi R. Arnfinnss.
Borghildur, kona hans Guðbjörg Þorbjarnard
Þorsteinn, sonur þeirra Bjarni Steingrlmsson
Sigvaldi, bóndi é Brekku Valdimar Helgason
Margrét, kona hans .... Nína Sveinsdóttir
Setta í Bollagörðum .... Helga Valtýsdóttir
Finnur, sambýlismaður hennar..............
Árni Tryggvason
Þorbjörn, bróðir Settu, vinnumaður hjá Agli
Baldvin ’Halldórsson
Prestsfrúin .......... Amdís Björnsdóttir
Salka, niðursetningur .. Þórunn Sigurðard.
Kona.................... Bríet Héðinsdóttir
’Sögumaður ............... Jónas Jónasson
Leikstjóri: Valdimar Lárusson.
21.00 Frá dagskrá Stúdentafélags Reykjavíkur:
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Danslög.
24.00 Dagskrárlok.
Eyöing fría
Fyrsti desember forðum
var fullveldishátíð skær.
En nú hafa allir opið
eins og það væri í gær.
Hafin er hátíðafækkun
og harmur um land og sæ.
því iffsins tilhfakki og Ijóma
er loksins kastaS á glæ.
Við byrjuðum daginn f dögun,
með dúndrandi fylliri.
— Ef mjaðar-kaup okkar minnka,
ja, mí nú ríkið við því?!
Kankvís.
Loftleiðir
Framhald «f síffu 1.
víkur, þótti rétt að láta hótel rísa
á þeim grunni, sem búið var að
gera vegna hinnar upphaflega fyrir
huguðu flugstöffvarbyggingar, og
auðvelda með þvi möguleikana á
að taka hér á móti hinum sívax-
andi fjölda erlendra ferðamanna.
Norffvestan effa norffan kaldi, síffan hægviffrl. f
gær var norffan kaldl og él norffvestanlands, hæg
austan átt austanlands, sunnanlands hæg norffan-
átt. í Reykjavik var norðvestan gola, 2 stiga hiti.
i
Sumir gæjar geta ekkl
sofiff á nóttunni út af
skólatímunum. Það er
af því, aff þeir sofa
alltaf í tímunum.
14 1. des. 1964 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ