Alþýðublaðið - 01.12.1964, Qupperneq 16

Alþýðublaðið - 01.12.1964, Qupperneq 16
t Islenzkur stóðhest- ur til Grænlands Reykjavík, 30. nóv. ÓTJ. TVEGGJA vetra íslcnzkur stóö- hestur var fluttur til Grænlands með Straumfaxa Flugfélagsins sl. Sunnudag. Hesturinn er færður hangaö Búnaðarfélagi Grænlend- ínga sem gjöf frá Búnaðarfélagi tslands. Forsaga málsins var sú, að fyrir nokkru voru hér á ferð 11 græn- íenzkir bændur sem voru að skoða sig um hér á lahdi. Þeir nutu á- gætis fyrirgreiðslu Búnaðarfélags íslauds, Var þeim þá gefið fyrir- heit um þennan stóðhest til handa Búnaðarfélagi Grænlend- inga og hefur það nú verið efnt. Grænlands-Blesi, eins og klárinn -Sendinefnd ís- fands hjá SÞ ■ SENDINEFND íslands í byrjun 19. allsher.iarþings Sameinuðu þjóðanna verður þannig skipuð: Thor Thors, sendilierra, form. Þórður Eyjólfsson, liæstaréttar- dómari, Kristján Albertson, sendiráðu- nautur Hannes Kjartansson, aðalræðis- maður. hefur verið kallaður, hélt fyrst til Narssarssuaq, en þaðan til Garða (Igaliko), þar sem Pétur Mosfeld mun veita honum viðtöku. Auk þessa hests, sendi Búnaðarfélagið til Grænlands amboð, tvenn aktygi og sláttuvél. ____________. Eldur ðö Hálogalandi Reykjavík, 30. nóv. — ÓTJ. ELDUR kom upp í kyndiklefa íþróttahússins við Hálogaland í morgun. Slökkviliðið var kvatt á vettvang um 7,20, og var eldurinn þá orðinn töluvert magnaður. — Strax var hafist handa við að rjúfa þakið, og tókst með því móti að ráða niðurlögum hans. Kyndi- klefinn er við annan enda skál- ans, og urðu því ekki skemmdir á íþróttasalnum sjálfum. Að vísu verður ekki hægt að hita þar upp á næstunni, en reynt verður að hraða viðgerðum vegna ýfirstand- andi móts. VR vill lokun á hádegi í dag Reykjavíkur, 30. nóv. —• GO. | SAMKVÆMT upplýsingum j Magnúsar Sveinssonar, starfs- ; rnanns Verzlunarmannafélags Reykjavíkur, ætlast félagið til að vinnutími verzlunarfólks verði ó- breyttur þann 1. desember frá þvi Innbrot Reykjavík, 30. nóv. — ÓTJ. BROTIZT var inn 1 gamla sölu- turninn við Hverfisgötu í fyrri- nótt, og stolið þaðan reiknivél, Og sælgæti. Ekki hafði þjófurinn farið allur inn, heldur aðeins «tungið liandleggnum i sregnum rúðu sem hann braut. Tókst hon- «m að seilast í vélina, og draga -tiana út um gluggann. Og svona til að „bæta bragðið” liafði hann einnig á brott með sér sælgæti fyrii' um 500 krónur. | sem verið hefur i áratugi, þ. e. að j lokað verði á hádegi. Þetta atriði ' hefur aldrei verið í samningum verzlunarfólks, en samkv. skiln- ingi VR hefur þetta fyrirkomu- lag unnið sér hefð, sem ástæðu- laust er að breyta. Þá lítur VR svo á, að með til- liti til hinnar miklu aukaVinnu sem verzlunarfólk leggur á sig í desembermánuði, sé ekki nema sanngjarnt að það fái þessa sex klukkutima i uppbót. Félagið hefur ekki í hyggju að þvinga fram lokun á hádegi, en æt.last til að fyrirkomulagið verði látið standa óbreytt, eins og að framan er sagt. Kaupmannasamtökin hafa þegar lýst yfir, að verzlanir verði opn- ar allan daginn á morgun, 1. des og bera fyrir sig Kjaradóm i launamálum verzlunarfólks, þar sem þessi frídagur sé ekki til- tekinn. JÓLABLAÐ ALhVÐUBLAÐIÐ gefur út í ár, eins og í fyrra, jólablað í fjór- Uffl lilutum, samtals 64 blaðsiður. Auk þess kemur út jólaútgáfa af Sunnudagsblaðinu á Þorláksmessu. Fyrsti hluti jólablaðsins fylgir blaðinu í dag. Af efni þess má nefna frásögn eftir Knut Hamsun, þátt um Briet Bjarnhéöinsdóttur eftir Vilhjálm S. Vilhjálmsson^ grein um hina sögufrægu nál Kleópötru, og loks „Mikið skal til mikils vinna“, — óvenjulega myndafrásögn. Annar hluti jólablaðsins kemur út næsta sunnudag. rtV'MVHWmVWVVMVMMMVWMVMWMMViVlWWVmWVHM ÞESSI mynd er tekin af Hall dóri Laxness á þeim tíma, er hann skrifaði Barn náttúr- unnar. Þá þótti tilheyra að listamenn hefðu mikið og sítt hár og stóra slaufu og svona flibba gengu sumir þeirra með og Halldór hafði mikið fyrir að fá saumakonu til að gera þennan glæsilega háls- búnað. .■■■■ ■■■ ■':■■■/■•■':?''■ ÞriSjudagur 1. desember 1964 Reykjavík, 30. nóv. — OÓ. KOMNAR eru út hjá Helga- felli þrjár bækur eftir Halldór Laxness tvær endurútgáfur og ein frumútgáfa, Sjö stáfa kver- ið, sem í eru sjö smásögur. í tilefni þessa röbbuðu þeir Ragnar Jónsson forstjóri og Halldór Laxness við blaðamenn í dag. Sagði Ragnar að hann hefði gefið út 30 bækur eftir Laxness, en aldrei þrjár í einu fyrr en nú. Reisubókarkorn kom út fyrlr hún er alls ekki ástarsaga, eins og þó stendur á titilblaði, — enda varla von að drengur á stuttbuxum, eins og hann klæddist þá annað veifið, skrif aði ástarsögu. Hafi hann því enda haft mjög þokukenndar hugmyndir um bókmenntir í þá daga og skrifað mest í in- spírasjón, og þá reið á að koma sem .flestum orðum á pappir- inn á skemmstum tíma, með- an andinn var viðlátinn. Þess- Framhald á 4. síðu 15 árum, seldist hún upp á fáum dögum og er nú komin út í annarri útgáfu. Þriðja bókin eftir Laxness, sem Helgafell gefur út að þessu sinni er fyrsta bók skáldsins, Bam náttúrunnar. Hún var skrifuð síðla sumars og haust- ið 1918, þegar höfundurinn var aðeins 16 ára gamall, og kom út árið 1919. Höfundur segir, að eftir að hafá lesið bókina í fyrsta sinn í 46 ár, hafi komizt upp, að V. Þingmenn deildu um prestskosningar Reykjavík, 30. nóv. EG. Frumvarp til laga um veitingu prestakalla, sem felur í sér af- nám prestskosninga í núverandi mynd var tekið til 1. umræðu í neðri deild í dag og urðu nokkrar deilur um málið og þingmenn enganveginn á eitt sáttir um hvort æskilegt væri að fella núverandi fyrirkomulag prestskosninga niff- ur. Fyrstu umræðu málsins lauk ekki, heldur var frestað, er tveir þingmenn auk framsögumanns og kirkjumálaráðlierra höfðu talað. Frumvarp þetta er flutt af menntamálanefnd neðri deilder að ósk dóms og kirkjumúlaráð-1 Benedikt Gröndal (A) formaður herra, og hefur áður verið gerð menntamálanefndar dcildarinnar grein fyrir meginefni þess liér mælti fyrir frumvarpinu og rakti í blaðinu. I Framhald á 14. síðu SPILAKVÖLD Alþýðuflokksfélaganna í Hafnarfirði (þriggja kvölda keppnin), heldur áfram næstkomándi fimmtudagskvöld kl. 8,30 í Alþýðuhúsinu. — Úrslitakeppni. Afhending heildarverðlauna. Sameiginleg kaffidrykkja. Krist- inn Gunnarsson hagfraeðingur flytur ávarp. Rútur og Guðmundur Steingríms- son leika fyrir dansi. Öllum heimill aðgangur.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.