Alþýðublaðið - 11.12.1964, Síða 2
Rltstjórar: Gylfi GrönUal (áb.) og Benedikt Gröndal. — Fréttastjórl:
Arni Gunnarsson. — Ritstjómarfulitrúi: Eiður Guðnason. — Símar:
14900-34903. — Auglýsingasími: 14906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið við
Hverfisgötu, Reykjavík. — Prentsmiðja Alþýðublaðslns. — Áskrtftargjaid
kr. 80.00. — í lausasölu kr. 5.00 eintakið. — Útgefandi: Alþýðuflokkurinn.
12 ára fcmgelsi
UNGUR MAÐUR hefur verið dæmdur í tólf
ára fangelsi fyrir tilraun til að myrða stúlku. Þetta
er þungur dómur, sem hefur vakið umhugsun
margra landsmamna. En afbrotið var mikið og við
því verður að vera þyngsta refsing, ef réttarfar er
í samræmi við skoðanir þjóðarinnar um helgi
mannlífsins.
Þessi dómur vekur umhugsun um aðrar hlið-
ar á íslenzku réttarfari. Síðustu ár hefur komið í
ljós gífurleg fjármálaspilling og hvert stórmálið
hefur rekið annað, þar sem virðulegir borgarar
hafa stolið eða sóað miklum fjármunum.
Þessir glæpir virðast þó ekki vera teknir
eins alvarlega i réttarkerfi lýðveldisins og hinir
klassisku glæpir eða óknyttir afvegaleiddra ungl-
inga. Aldrei hefur það komið fyrir í þessum fjár-
svikamálum, að yfirvöldin hafi skipað þrjá hempu-
klædda sakadómara, stillt þeim upp á bekk og kall-
að á ljósmyndara blaðanna til að sýna dýrð og
alvöru réttarfarsins. Þá falla ekki dómar nokkrum
mánuðum eftir afbrot, heldur líða árin hvert af
öðru og sjaldan lýkur málum svo, að sökudólgar
sitji nema örstuttan tíma á bak við lás og slá.
íslenzkt yfirvald verður að bæta verulega
starfsaðferðir sínar á þessu sviði, ef það vill halda
tiltrú landsmanna, hvað þá ef það vill auka lög-
hlýðni í landinu.
Um þessi mál var nokkuð fjallað á nýafstöðnu
þingi Alþýðuflokksins. Var þar samþykkt tillaga,
sem flutt hafði verið af ungum jafnaðarmönnum,
og var hún á þessa lund:
„Flokksþingið leggur áherzlu á örugga, skjót-
virka og vandvirka dómsmálastjórn í landinu.
Telur þingið, að vanda þurfi sérstaklega val
manna í dómarastöður og veita þeim næga starfs-
krafta til þess að þeir geti leyst hlutverk sitt vel
af hendi. Óháðir dómstólar eru einn af hymingar-
steinum lýðræðisins, og er mikilvægt að búa vel
að þeim til þess að halda uppi virðingu fyrir lög-
um og rétti“.
- r
Stúlfeur-óskast til starfa við farpantanadeild félagsins í
Réykjavík í byrjun næsta ái*s. Nokkur skrifstofureynsla
æskileg. Kunnátta í ensku og einu Norðurlandamálinu
naúðsyn.ieg. Yngri stúlkur en 18 ára koma ekki til
greina. .
Umsóknareyðublöðum, sem fást á skrifstofum félagsins
. i R’eýkjavík, sé skilað fyrir 20, desembér til Starfs-
mannah'alds Flugfélags íslands.
I þeir afla sér aukinnar þekkingar
á skáldunum og verkum þeirra.
Við útgáfu skólaljóðanna hefur
verið kostað kapps um að gera
bókina sem bezt úr garði.
/C£IAA/*A/0
RÍKISÚTGÁFA námsbóka hefur
gefið út Skólaljóð, sem ætluð eru
nemendum í barna- og unglinga-
skólu'm á aldrinum 10-14 ára.
í þessu Ijóðaúrvali eru samtals
um 160 kvæði eftir 42 höfunda.
Kvæðunum er raðað upp eftir höf-
undum og höfundum raðað eftir
aldri, þannig, að bókin hefst með
Hallgrími Péturssyni og endar á
Steini Steinarr.
Kristján J. Gunnarsson hefur
valið kvæðin og ritað stuttan kynn
ingarkafla um hvern höfund.
Ilalldór Pétursson teiknaði
rnyndir af höfunduuuni og hefui'
eiimig myndskreytt hverja síðn
hókarinnar, sem er prentuð í lit-
um. Litbrá hf. prentaði. Setningu
annaðíst Prentsmiðjan Edda og
bókband Félagsbókbandið.
Myndirnar eru felldar að efni
kvæðanna og taka þær þvf til fjöl-
margra þátta í íslenzkri náttúru
og þjóðlífi, sem um er fjallað í
kvæðunúm. Er það von útgefenda,
að það megi verða til að auðvelda
nemendum kvæðanámið og glæða
áhuga þeirra á því.
Um hlutverk það, sem skólaljóð
unura cr ætlað að gegna, segir m.a.
svo í eftirmála bókarinnar, sem
fjallar um ljóðanám.
„Tilgangurinn með kvæðanámi
á fyrst og frernst að vera sá að
glæða ljóðasmekk og stuðia að því
að nemendur viti nokkur deili á
helztu skáldum þjóðarinnar og
ljóðum þeirra.
I Æskilegt er, að nemendum gef-
j ist kostur á að kynnast úvrali. úr
ljóðum hvers-skálds-og þar með
fleiri kvæðum en hér líefur verið,
rúm fyrir.
j Mikla áherzlu þarf áð leggja -á
I góö'an upplestur, því leiðin til skiln
ings á eðli og hrynjandi bundins
máls er fyrst og fremst téngd
skýrr ljóðrænni framsögn“. :
Þá er einnig komið út skýrJhjgár-
hefti, sem fylgir~skólaljóðunúin og
Krlstján J. Gunnarssort hefur ték-
ið saman.
Eru þar skrár um .helztu Ijóga-
bækur, sem út liafa ,komið eftir
hvern höfund og yfirlit um ritgerð
ir og bækur, .sém' skrifaðar . jiafa
verið um hann.
Þar eru einnig orðá'skýringar úr
t kvæðunum og loks ,nokkur ■,verk-<
jéfni, ábéndingár um Vihnubfögð,'
[sem nemendur gætu beitt, þegar
SÓLVEIG SYNIR
Á MOKKA KAFFI
Reykjavík, 9. des. - OÓ.
Á MOKKA kaffi stendur nú yfir
sýning á mynduni eftir Sólveigu
Úgfferz. Sýnir hún þar 20 myndir,
10 éru málaðar á tré og 10 i
skinn. Solveig hefnr haldið sýn«
ingu á myrtdum máluðum á tré,
en þetta cru fyrstu skinnmyndir
sem hún sýnir, eru þær málaðar
olíulitum i skinnin, sem eru at
ýmsum tegundum. Myndirnar éri|
allar táknrænar. Sýningin stendur
fram að jólum, og cru allar
myndirnar til sölu.
Sigurgeir Sigurfónssoa
hæstaréttarlögmaðnr
Málflntnrnfsskrifstofti
óðlnag&tu «r Sfml llMt.
2 11. des. 1964 - ALÞÝ0UBLAÐIÐ