Alþýðublaðið - 11.12.1964, Blaðsíða 15

Alþýðublaðið - 11.12.1964, Blaðsíða 15
— Þú hefur líklega töluverða reynslu í uppvaskinu, hafði dr. Kodway sagt hlæjandi við hann. og þá hafði John Cort alveg blóð roðnað. Þau fóru upp til dr. Rod- ways í lyftunni. Útsýníð þaðan var dásamlegt, það sást bókstaf- lega yfir alla borgina og ná- grennið. Strax og þau komu upp var dr. Rodway kallaður i sim- ann, en kona hans var önnum kafin frammi í eldhúsi við að búa til kaffið. Hún kveikti á út- varpinu áður en hún fór fram. Ruth heyrði tónlist í tækinu, sem hún kannaðist við og þótti afar falleg. — Þetta er píanókonsert eftir Grieg, sagði hún undrandi og ánægð. Dr. Cort greip tækifærið feg- inshendi. Hann hafði verið að búast við því, að hún færi að ræða. um eldhúsin á spítalanum á nýjan leik. Þetta verður aðal verkið á tónleikunum í ráðhús- inu í næstu viku sagði hann. Það vill svo til að ég veit þetta, því að Audrey er í hljómsveitinni og liljómsveitarstjórinn er að gera þau öll vitlaus, að því mér skilst. Audry. Það hlaut að vera kon- an hans, hugsaði Ruth með sér. ■— Á meðan hún er að æfa sig, þá fæ ég æfingu i að vaska upp, sagði- hann, eins og Rodway var að gefa í skvn áðan. Þegar systir mfn er byrjuð að spila kemst ekkert annað að hjá henni. — Nú, svo Audry var þá systir hans, en ekki eiginkona, eins og Ruth hafði þó haldið. • Ruth hálfskammaðist sín fyrir að halda hann undirgefinn þræl einhverrar eiginkonu. Hún ímynd aöi sér strax að eins konar Bó- liema blær væri á heimilishald- inu og hlutirnir ekki hafðir í allt of föstum skoðum. — Ég öfunda yður eiginlega, sagði hún, — Honum var brugðið. Hann hafði búizt við, að hún mundi verða full vandlætingar, og hún hefði jafnvel með nokkrum rétti getað spurt hvaða rétt hann hefði til að gagnrýna eldhúsin á spítalanum. Hún sat og naut tónlistarinnar eins og sá einn getur, sem þekkir hana og kann aö njóta hennar. Hann hallaði sér aftur á bak í stólnum og liorfði á hana. Þegar fyrsti kafl inn var búinn sneri hún sér að honum og sagði þetta er dásam- legt. 4. — Heyrið þér . . . hann haliaði sér fram I stólnum og var að því kominn að bjóða henni á tón- leikana. En einmitt á þessu augnabliki kom frú Rodway inn með kaffið á hjólaborði Á efri plötunni var kaffið og boilarnir. en á þeirri neðri brauðsneiðar og kökur. 1— Eruð þið enn að rifast eða hvað? spurði hún. — Ég mælist til þess að þið semjið vopnahlé meðan við drekkum kaffið. Svo fór hún að vesenast með bolla og skálar og þá var ekki nokk- ur leið að njóta tónlistarinnar lengur. Þá kom maður hennar inn. Hann var búinn að tala í símann og slökkti þegar í stað á útvarpinu og setti þrjár skeiðar af sykri í bollann sinn og fór síðan að ræða málið, sem þau höfðu verið að tala um allt kvöldið. — Þarna munaði litlu, hugs- aði John Cort með sjálfum sér. Hann var hér um bil búinn að bjóða henni á konsertinn og það SÆNGUR REST-BEZT-koddar’ Endurnýjnm gömlu sængurnar, eigum dún- og fiðurheld ver. Seljum æðardúns- og gæsadúnssængur — og kodda af ýmsum stærðum. DÚN- OG FIÐURHREINSUN Vatnsstíg 3. Sími 18740. HWWWWMMWWWMMW hefði sannast sagna verið grá- bölvað ef hún hefði gert hann að fífli með því að hafna boði hans. Hann yrði að gæta sín betur í framtíðinni. Fram að þessu hafði honum tekizt að sneiða hjá kvenfólki, en einu sinni á námsárunum liafði hann farið illa út úr við- skiptum sínum við stúlku og ver- ið lengi að jafna sig eftir það. Hann hafði nú unnið sér álit sem læknir og var önnum kafinn við störf, sem áttu allan hug hans. Honum og Audry kom all vel saman. Já, hann var ánægður með lífið, eins ánægður og hann gat vonast eftir að verða. Hann hugsaði aðeins um starf sitt og þeir lífshættir hentuðu honum bezt. Það var með hálf- um huga, því hann var eiginlega enn að hugsa um Ruth að hann fór aftur að taka þátt í samtalinu við borðið. Rodway sagði með þungri á- herzlu: — Það eina, sem við getum gert og verðum að gera er að sannprófa hvern einasta hlekk í keðjunni, allt frá því hvernig yaskað er upp i eldhús- unum, og hvernig sett er á pela ungbarnanna til þess hvernig hanzkar og tæki í skurðstofunni eru hreinsuð. Ef einhverjum verður einhvers staðar skyssa á annað hvort vegna flýtis eða kæruleysis, — þá má búast við hinu versta hvað smitunarhætt- una snertir. — Það eru mannlegir gallar, sem valda okkur þessum erfið- leikum, sagði John Cort. Ef bara ein hjúkrunarkona er ekki að hugsa um það, sem hún er að gera, heldur með hugann við eitthvað annað, til dæmis að flýta sér að losna af vaktinni . . . — Nú var Ruth reiðubúin að láta til skarar skríða gegn hon- um. — Eða ef einhyer læknirinn þvær sér ekki almennilega um hendurnar, sagði hún. —. Það er hárrétt, sagði dr. Rodway, en virtist fremur gram- ur. John Cort sagði ekkert, bara þagði. — Það er þessi mikla vinna og þetta gífurlega álag, sem gerir það að verkum að fólk verður ekki eins vart um sig. Ástandið með starfsmannafjöld- ann . . . — Ég ætla að ráða fleiri hálfs dags hjúkrunarkonur. skaut Ruth hér inn í. — Flestar þær, sem bjóða sig til starfa, eru giftar og það verður að haga þessu þannig fyrir þær, að þær geti unnið á kvöidin, eða þegar börn- in þeirra eru í skólanum. — Fröken Jenks var alltaf á móti þessu. Þetta rakst á við venjuleg vaktaskipti og starfs- fólkinu var ekkert um þetta gefið. — Það þýðir ekki að fást um það, sagði Ruth, sem nú var kom in í baráttuhug. — Ég held ég geti fengið starfsfólkið til að samþykkja þessa ráðagerð. Ann- SÆNGUR Endurnýjum gömlu sængnmar. Seljum dún- og fiðurheld ver. NÝJA IHÐURHEEVNSUNIN Hverfiorövu S7A. Slml 16738. að hvort verðum við að fá fleiri hjúkrunarkonur, eða það verðurf að fækka sjúkrarúmunum. Þaœ þýðir, að við getum ekki gefið| eins góða þjónustu og áður og( það gegnst ég aldrei inn á. RutK var orðið töluvert niðri fýrir* Hún sá að Rodway hlustaði af at4 hygli á það, sem hún var að* segja, og hún vissi sem var, aðt ef hún hafði ekki stuðning hana var allt unnið fyrir gýg. En það' sem gladdi hana ennþá meira^ var að heyra John Cort segja lágt en greinilega — heyr, heyrr Ef hann var á hennar máli, hugs-j aði hún með sér, bá mundi þettd sennilega allt verða í stakastat lagi. Einhvern veginn fannst henni meira til um að hann skyldi styðja hana, heldur en að yfirmaður þeirra beggja gerði það. Hún var hamingjusamari þetta kvöld en hún hafði nokkru sinni verið eftir að hún kom tit Marbury. • Þetta stóð ekki lengi. Það var eins og allar þes3ag vonir hennar brystu strax á næsta fundi húsnefndarinnar. Þetta byrjaði allt eins og venju- lega. Hún las listann yflr þæé hjúkrunarkonur, sem voru viQ störf, þær sem voru veikar o^ þær sem voru i fríi. Þegar „önnl ur mál“ komu til umræðu, koni hún fram með tillögur sínar unj að ráða hjúkrunarkonur hluta úý degi, til að bæta úr skortinumj Þá stóð upp ritari nefndarinnaé og mótmælti þessu harðlega, þvj þetta sagði hann mundi þýða að GRANNARNIR Hæ, varaðu Wí, sprenEfogé . TEmNAHIi # ALþÝÐUBLAÐIÐ — 11. des. 1964 ^

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.