Alþýðublaðið - 29.12.1964, Page 3
Saragat kjörinn
forseti Italíu
Róm, 28. des. (NTB-Reuter). \
Giuseppe Saragat utanríkisráð-
herra Ítalíu var í dag kjörinn for- \
seti Ítalíu. Var hann kjörinn af
Þjóðþingi ítala og kjörmönnum
forseta og hlaut 646 atkvæði af
þeim rúmlega níu hundruðum at-
kvæða, sem greidd voru. Hann var
kjörinn í 21. atkvæðagreiðslunni,
er fram fór um forsetakjörið. —
Saragat verður eftirmaður Anton-
io Segni forseta, er sagði formlega
af sér í dag vegna sjúkleika. Sara
gat mun taka við forsetaembætti
sínu í fyrramálið. Sver hann þá
forsetaeið sinn í áheyrn þingsins
en síðan mun hann flytja fyrsta
ávarp sitt sem forseti.
- Giuseppe Saragat, hinn nýi for-
seti er 66 ára gamall og er fjórði
forseti á Ítalíu frá stríðslokupi.
Hann gekk ungur að aldx-i í ítalska
jafnaðarmannaflokkinn, dvaldi að
mestu erlendis í valdatíð Musso-
linis, en kom síðan heim og tók
á ný að gefa sig að stjórnmálum.
Hann varð ráðherra skömmu eftir
stríðslok, en hefur nú um margra
ára skeið verið formaður og aðal-
leiðtogi italska jafnaðarmanna-
flokksins. Hann hefur nú um
skeið verið utanríkisráðhei-ra í rik-
isstjórn Aldo Moro, en í þeirri
stjóm hefur Pietro Nenni, for-
ystumaður hins italska jafnaðar-
mannaflokksins, verið vax-aforsæt-
isráðherra. Forsetakjöi-ið lxefur nú
staðið um þrettán daga skeið og
hafa þær kosningar sýnt hve klofn
ir stjómmálaflokkarnir eru. Að
20. atkvæðagreiðslunni lokinni til-
kynnti Nenni flokki sínum, að
hann drægi sig til baka, en hvatti
jafnframt þingmenn flokksins til
þess að kjósa Saragat. í þessari
atkvæðagreiðslu hafði Nenni feng-
ið 385 atkvæði, en Saragat 323. —
Sömu afstöðu tóku flestir hinir
vinstri flokkarnir og flestir þing-
Framhald á 4. síðu
Rúmanskur dipló-
mat rekinn úr landi
Bern, 28. des. (ntb-rt).
Einn af starfsmönnum rúm-
enska sendiráðsins fékk í dag boð
frá svissnesku stjórninni um að
hverfa hið bráðasta úr landi
vegna sambands hans við njósn-
ara, er hann fékk það verkefni,
að njósna um þriðja ríki. Til-
kynnti svissneska dómsmála-
ráðuneytið þetta í dag.
Sendiráðsstarfsmaður þessi var
annar ritari við rúmanska sendi-
ráðið í Bern. Hann mun hafa átt
nokkra fundi með njósnaranum,
er rak starfsemi sína utan Sviss-
lands. Sendiráðsstarfsmaðurinn
hefur þegar farið frá Svisslandi.
Allgóðar heimildir eru fyrir því,
að maður þessi lieiti Ion Hidos.
Svissneskir talsmenn benda á, að
Flóð og veðurhæð
á Kyrrahafsströnd
San Fransisco, 28. des.
(NTB-Reuter).
Hvassviðri og feiknar snjókoma
aðfaranótt mánudagsins jók enn
á erfiðleika mörg þúsund manns,
sem hafa orðið fyrir, flóðunum
MHtHHMIW
Alvarez dæmd-
ur í fangelsi
Madrid, 28. des. (ntb-rt).
Spánskur herdómstóll
hefur dæmt skáldið Carlos
Alvarez í sex mánaða fang
elsi fyrir lítilsvirðandi um-
mæli um herstjórn landsins,
að því er áreiðanlegar heim
ildir sögðu hér í dag. Sak-
sóknarinn hafði krafizt
þriggja ára fangelsis! í októ-
ber s.I. var Alvarez dæmd-
ur í þriggja ára fangelsi
fyrir ólöglegan áróður.
þetta sé í 20. sinn á síðustu ár-
um, sem menn frá austur-evrópu
ríkjunum eru viðriðnir njósnamál
í Svisslandi.
IXWWMmVVMHMMWVMMW.
TOGARINN MARZ
SKEMMDIST AF ELDI
miklu á Kyrrahafsströnd Banda-
ríkjanna, er varað hafa nú um
viku-skeið. Hafa norðvestur-ríkin
orðið verst úti vegna flóðanna.
í flóðum þessum liafa að
minnsta kosti farizt um 48 manns.
Rauði krossinn hefur auk þess
heimildir um 16.300 fjölskyldur
er misst hafa heimili sín, bænda-
býli eða verzlunarhús í ríkjunum
Kaliforníu, Oregon, Idaho, Wash-
ington og Nevada. Að því er ó-
opinberar heimildir segja, nem-
ur tjónið af völdum flóðanna um
einum milljarði dala. Snjókoma,
frost og hvassviðri munu nú hafa
leikið Oregon og Norður-Kali-
foi’níu einna verst. Eru svæði
þessi einnig grátt leikin af flóð-
unum og þar er vitað um m. a.
500 námuverkamenn, skógarhöggs
menn og fjölskyldur þeirra, sem
eru algjörlega einangi-aðar. Veður
spáin fyrir mánudaginn var á þá
leið, að enn myndi snjóa meir í
fjöll og hvassviðri og regn vera
á lægri svæðunum.
VVMVtVWVWWVVMWVVVM
Reykjavík, 28. des. — ÓTJ.
SLÖKKVILIÐIÐ háði í gær-
kvöldi harða tveggja tíma bar-
áttu við magnaðan eld í togaran-
um Marz, þar sem hann lá við
Togarabryggjuna í Reykjavfkur-
höfn. Þegar slökkviliðið var kvatt
á vettvang, um 8 leytið, var þeg-
ar mikill eldur í lúkar togarans,
og aðstaða tU slökkvistarfs mjög
slæm.
Slökkviliðsmenn gerðu samt í-
trekaðar tilraunir til að komast
niður í lúkarinn og tókst það, en
urðu von bráðar að forða sér upp
aftur sökum hita. Loks eftir tvo
tíma tókst að ráða niðurlögum
eldsins. Ætlunin var að togarinn
færi á veiðar kl. 10 í gærkvöldi,
en því varð auðvitað að fresta,
því skemmdir urðu svo miklar að
búast má við að viðgerð taki nokk
um tíma. Þegar blaðamenn Al-
þýðublaðsins komu um borð í
Marz, var ekki fagurt um að' lit-
ast í lúkarnum. Þar hafði nánast
allt brunnið sem bnmnið gat, og
misstu margir skipverjanna þar
allt sitt sem þar var. Á mynd-
inni sem J.V. tók, sjást nokkrir
þeirra vinna að því að hreinsa lúk-
arinn. Eigandi togarans er
Tryggvi Ófeigsson útgerðarmað-
ur.
Stjórnarherinn
vinnur stórsigur
Saigon, 28. des. (NTB-RT).
Stjórnarherinn í Suffurvietnam
vann í gær einn af sínum stærstu
sigrum í Mekong-árásunum, um
Krag telur kosn-
ingar ólíklegar
Kaupmannahöfn, 28. des.
(ntb-reuter).
Danski forsætisráffherrann,
Jens Otto Krag skrifar í Kaup-
mannahafnarblaffiff Aktuelt í dag,
aff ekki ætti aff þurfa aff koma til
nýrra kosninga í Danmörku á ár-
inu 1965. „Kjósendur hafa rétt
til aff vænta þess, aff þing, sem
er nýkosiff, sé fært um aff gera
nauffsynlega hluti,” skrifar hann.
Forsætisráðherrann skrifar og
í grein sinni, að „sá tími, sem
liðinn er frá því í október, hafi
sýnt, að hið nýja þjóðþing sé
starfhæft, jafnvel þótt það sé
þannig samansett, að það geti
ekki myndað fastan stjórnarmeiri
hluta. Á þýðingarmiklum sviðum
hefur hins vegar tekizt að skapa
mikla einingu,” skrifar ráðherr-
ann. Hann lýsir því og yfir, að
ríkisstjórnin muni halda áfram
samningastefnu sinni: „Eg á bágt
með að ímynda mér að andstaðan
muni fella þessa stefnu — og
stofna þannig tU kosninga áður
en það er tímabært,” skrifar
hann.
þaff bil 145 kílómetra fyrir suff-
vestan Saigon. Voru aff minnsta
kosti 87 Vietcong-skæruliffar kom-
múnista drepnir og jafnframt því
tók stjórnarherinn mesta magn
vopna herskildi, sem liann hefur
tekiff til þessa.
Á sama tíma varð stjórnarher-
inn fyrir nokkru tjóni af völdum
Viet-eong er skæruliðar þeirra réð
ust að útvarpsstöð einni, ekki
ýkja langt frá áðurnefnd.pm stað,
di-ápu þrjá stjórnarl'ermenn,
særðu 36 þeirra en 32 ei saknað.
í dag urðu svo Bandaríl iamenn
fyrir mesta tjóni sínu í Suðu“-Viet-
nam til þessa. Særðust 16 banda-
rískir hermenn og einn almenrvur
bandarískur ljósmyndari í skæ>
um. Átta manna þessara voru
þyrluflugmenn og særðust þeir er
þyrlur þeirra voru skotnar niður
er þær fluttu vistir, birgðir og
skotfæri til stjórnarhermanna, er
unnu að því að uppræta aðal-
stöðvar skæruliða í Mekong-^rás-
unum. Voru þá tvær þriggja þyrla
skotnar niður.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 29. des. 1964 3