Alþýðublaðið - 29.12.1964, Qupperneq 6

Alþýðublaðið - 29.12.1964, Qupperneq 6
• . ÞAÐ era ekki allt stórfréttir, sem athygli vekja og komast á forsíður ntóru blaðanna í, Bretlandi. Hér er ein þeirra: John Bray viid.i gleðja konu sína og keypti um daginn ei-na tylft af ostrum og hafði með sér heim úr vinnunni. Skyldilega spratt Nancy, konan hans á fætur, og hrópaði upp yfir sig himinlifandi: —John —- sjáðu hvað ég fann — perlu! Og það var raunar alveg rétt, sagði sérfræðingurinn, sem farið var með hlutinn til. En stórfrétt varð þetta vegna þess, að þetta var í fyrsta sinn síðan 1907, að vitað var að slíkt hefði skeð í Bret- landi. En frá peningalegu sjónarmiði var þetta svo sem ekki neinn stór fundur fyrir frú Bray. Perlan var virt á um 3000 krónur, en Mr Bray hyggst ekki selja hana, heldur hefur hann lofað konunni sinni að perlan skuli sett í umgerð, er haefi hinu sérstaka verð- mætl hennar. — ★ — HÉÐAN í frá ættu fristundaveiðimenn í Bandaríkjunum ð losna við öll vandræði vegna hunda sinni. Nú er farið að festa örlítið transistortæki í hálsbandið á þeim, og þannig geta hundarn ir tekið á^móti fyrirskipun hinna hraustu veiðimanna. — ★ — SVO VAR það Skotinn, sem hitti vin sinn frá Lundúnum, er var á ferð uppi í Hálóndum. Skotinn bauð vininum heim að borða þetta 'sama kvöld og beið með allt tilbúið, en vinurinn kom ekki. Þegar Skotinn hitti vininn daginn eftir, spurði hann undrandi og dálítið móðgaður: 1 — Heyrðu, gerðirðu þér ekki ljóst, að ég bauð þér heim að borða í gærkvöldi? — Jú, þú verður að afsaka, gamli vinur, en ég var svo svangur, að ég ákvað að borða heldur á veitingahúsi. — ★ — HINN ágæti leiklistargagnrýnandi Sunday Telegraph í London, Alan Brian, sem vegna starfs síns þarf að þola ótölulegan grúa af „brönd- urum“, heldur því fram, að hann hafi fundið elzta brandara heimsins — og hann er á að gizka 2.400 ára gamall: Hirðrakarinn: — Hvernig vill yðar hátign láta klippa hárið? Archelaus, konungur í Makedóníu: — Þegjandi. Það er víst enginn vafi á því, að þessi brandari hefur gengið aft- ur í mörgum myndum á 2.400 árum — og það er ósköp hætt við, að hann haldi áfram að ganga aftur í önnur 2.400 ár, ef heimurinn endist. — ★ — SÉRFRÆÐINGAR við háskólann í Santiago í Chile hafa einangrað það hormón í mannslíkamanum, sem stjórnar. vexti manna, segir í frétt frá Santiago. Hormínið mun hafa fundizt í þvaginu, en maður- inn, sem fann það, er dr. Fernando Monckberg. Þessi uppgötvun kann #ð hafa mjög mikla þýðingu. — ★ — AMERÍKUMENN gáfu rúmlega 300 milljarða króna til góðgerðastarf- semi í fyrra, segir The New York Times. Mest af fé þessu fór til ',,virðulegra“ samtaka, en „vafasamar" stofnanir fengu samt 80 mill- arða. S. — ★ — í frönsku borginni Lille hafa stórverzlanirnar í miðborginni tekið sig saman og útbúið bílastæði fyrir viðskiptavinina og flytja þá síðan ókeypis þaðan til verzlananna. Segja talsmenn verzlananna, að umsetningin hafi vaxið mikið við þessa tilhögun. Og þeir bæta við, með nokkru stolti, að stórverzlanirnar í París séu að búa sig .undir að fylgja dæmi þeirra. f. EINN af hinum fjölmörgu “sunnudagsmálurum“ í París fór með vini sínum utan af landi á Louvre-safnið, og vinurinn hrópaði hrif- inn upp yfir sig: — Dásamlegt, kæri vinur, vildir þú ekki eiga svona myndir 4 veggjunum heima hjá þér? ‘ - — O, jú, svaraði sunnudagsmálarinn, en svo miklum tima get •ég nú ekki eytt í frístundamálunina. — ★ — 1 Bandarikjunum eru meira en 20.000 -geðlæknar. Þeir eru tæp- ást nokkurn tíma sammála um nokkurn skapaðan hlut, en út af einu ‘deila þeir aldrei: Langflestir karlmenn eru hræddir við konur sín- ar. Það hafa milljónir viðtala sýnt. Goldenfinger-bíll í eltingarleik Lækninum, sem sat á barn- um á hótelinu^ þótti lailt málið mjög grunsamlegt og augljóst, að lögreS.an þyrfti að fá um það að vita. Þarna siat ungur maður við hliðina á Ijóshærðri stúlku og var að segja henni frá sportbílnum sínum . . . bíl sem hægt var að skipta um númer á með einu handtaki og gat gefið frá sér reykský með því að þrýsta á hnapp. Læknirinn hlustaði á þessar viðræður á hóteli í Southhamp ton nokkur augniablik, en rauk síðan í símann og tilkynnti lögreglunni, hvað ha\n hefði heyrt. Lögreglan rauk upp til handa og fóta. Talstöðvarbílar voru kallaðir upp og gefin lýsing á bílnum, silfurgrár sportbíll, sennilega á leið til Nýja skógar Framhald á 13. síðu. Pravda afhjúpar hinn seka - en hinn saklausi slapp ÞAU yfirvöld í Sovétríkjunum, sem nýlega settu blaðamann í fangelsi fyrir ónógar sakir, hafa orðið fyrir gagnrýni í Pravda, sem gekk næstum svo langt að stimpla þessa hegðun sem endurlífgun á Stalínstímanum. Pravda skýrði frá því, hvernig Anatoly Gaskov, sem í blaði sínu gagnrýndi yfirvöldin í bænum Ar- mavir í norðurhluta Kaukasus, var varpað í fangelsi, sakaður um að hafa rekið fjárkúgun. Var sagt að hann hefði látið greiða sér fyr- ir að skrifa niðrandi um fólk í bænum. En Pravda gerði sína eigin rann sókn í málinu eftir að nokkrir blaðamenn, sem unnu við sama blað og Gaskov, höfðu snúið sér til flokksblaðsins. Það kom í ljós, að sakargiftimar voru reistar á um- mælum eins manns — sem þar að auki voru síðar dregin til baka. —- Að dæma mann fyrir að hafa: haft í liuga að fremja afbrot og I það þannig, að viðkomandi geti ekki sannað hið gagnstæða, minn- ir mjög á það ástand, sem við minn umst frá mektarlögum persónu- dýrkunarinnar, segir í Pravda. Gaskov var handtekinn eftir að maður nokkur, sem vann hálfs- dags vinnu við sama blað og hann — Sovjetsky Armarvir — hafði Framhald á 13. sítfu BÓLUSETNING VIÐ KVEFI ,DR. DAVID TYRELL, yfirmaður hóps vísindamanna í Salisbury, skýrði nýlega frá því, að liugsan- legt væri ,að á árinu 1969 -yrði unnt að setja á markað bóluefni, er veiti vérnd íyrir venjulegu kvefi. — Það eru heilmörg „ef“ í þessu sambandiy og ef sú braut, sem við nú erum á, reynist röng, getur svo farið áð enn þurfi 50 ára rannsóknir í viðbót. En ég hef mikla von um, að þetta muni tak- ást, sagði dr. Tyrell. Starfshópur dr; Tyrells hefur ný lega framleitt bóluefni, sem gefur ónæmi fyrir kvefi, er stafar af á- kveðinni veiru. Hann upplýsti, að nú væri unnið að því að finna bólu eíni gegn fjölda annarra veira. — Ef það tekst, verðum við að reyna að framleiðá eitt einstakt bóluefni, sem eitt sér gefi ónæmi fyrir flestum þessum veirum, og það er tröllaukið viðfangsefni, sagði dr. Tyrell. Síðasta stórvanda málið verður að ná því að fram- leiða þetta hugsanlega bóluefni svo ódýrt, að það komist 'almennt í notkun. 0 29. des. 1964 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.