Alþýðublaðið - 29.12.1964, Side 11

Alþýðublaðið - 29.12.1964, Side 11
22:19 í hörkuleik FH HAFÐI YFIRBURÐI ■GEGN HAUKUM 33:15 Á ÞRIÐJA DAG JÓLA hclt íslandsmótið í handknattleik á- fram að Hálogalandi og voru þar leiknir tveir leikir í I. deild. — FH g.iörsig'raði Hauka með 33 mörkum gegn 15, og Fram vann Víking í spennandi leik með 22. mörkum gegn 19. ★ FRAM-VÍKINGUR 22:19. Leikur Fram, íslandsmeistar- anna og Víkings, botnliðsins á ný- afstöðnum Reykjavíkurmeistara- móti, var geysispennandi frá upp- hafi. Sigur Fram, 22:19, verður þó að teljast sanngjarn eftir gangi leiksins, en Víkingur á heiður skilið fyrir góða og harða baráttu. í fyrri hálflcik var Víkingur yfirleitt með yfirhöndina, það var annaðhvort jafnt eða eitt mark yfir. í hálfleik var jafnt, bæði liðin skoruðu 9 mörk. Framarar voru sterkari í síð- ari hálfleik, þó að sigur þeirra væri ekki öruggur, fyrr en staðan STAÐAN I. DEILD KR-Víkingur Ármann-Fram Haukar-FH Víkingur-Fram 17:17 24:22 15:33 19:22 Staðan í I. deild er nú þessi: Nú er lokið fjórum leikj- um í 1. deild íslandsmótsins í handknattleik. Úrslit hafa orðið sem hér segir: FH Árm. Fram 1 KR Vík. Ilaukar L U J T M St. 1 1 0 0 33:15 2 1 1 0 0 24:22 2 2 1 0 1 44:43 2 1011 17:17 1 2 0 1 1 36:39 1 1 0 0 1 15:33 0* var' 22:18, nokkrum mínútum fyr ir leikslok. Tveimur Víkingum var vísað af leikvelli undir lokin og það hafði mikil áhrif á liðið, eins og gefur að skilja. í liði Víkings bar mest á Brynj- ari í markinu, sem varði mjög vel, Þórarinn Ólafsson skuraði flest mörkin og með sama áfram- haldi kemur hann fyllilega til greina í landslið okkar. Pétur var hinn ákveðni og rólegi skipuleggj andi Víkingsliðsins. Liðið lék afar taktiskt og það svo, að íslands- meistararnir máttu hafa sig alla við til að hljóta bæði stigin. Hjá Fram bar mest á Gunn- laugi og Guðjóni, en liðið er nokk uð jafnt. Markverðirnir eru þó veika hliðin hjá Fram. Leikinn dæmdi Reynir Ólafsson. ★ FH — HAUKAR 33:15. FH var sterki aðilinn í leik Hafnarfjarðarfélaganna á sunnu- dagskvöldið og eftir 9:1 í byrjun leiksins, var varla vafi á því hvort félagið myndi hljóta sigurinn. — Haukum tókst þó aðeins að rétta hlut sinn fyrir hlé, en þá var staðan 13:9. í síðari liálfleik hafði FH algjör- lega yfirburði og vann glæsilega sigur eins og fyrr segir, 33:15. Þeir Ragnar Jónsson og Páll Eiríksson voru beztu menn FII og skoruðu flest mörkin. Það er greinilegt, að Haukar þurfa að herða sig, ef dvöl þeirra i 1. deild á að standa lengur yfir en í eitt ár. Karl Jóhannsson Á. dæmdi leik- inn með prýði. Páll Eiríksson, FH, er hér að skora í leik FH gegn Ilaukum á sunnudag. — Myndir: Sv. Þ. ★ Ungverjar hafa alls þreytt 407 landsleiki í knattspyrnu. Þeir hafa sigrað í 226 leikjum 83 lokið með jafntefli og 98 leikir hafa tapast. ★ Borgin Sapporo í Japan hef ur sótt um að halda Vetrarleikana 1972. Talið er að góð framkvæmd: Olympíuleikanna í haust muni verða til þess að auka líkurnar á að Japanir fá Vetrarleikana. ★ Norðmenn munu þreyta sjö landsleiki í knattspyrnu næsta ár. Þeir leika við Luxemburg, Júgó- slavíu, tvívegis, Finnland, Frakk- land_ Danmörk, Svíþjóð. Auk þess þreyta Norðmenn nokkra ungl- ingaleiki. \ MMWMMMWMMMMWWWMW ★ Myndin er af bandaríska hlauparanum Gerry Lind- gren, en hann er aðeins 18 ára gamall. Hann sigraði eins og kunnugt er í 10 km. hlaup inu í keppni Sovétríkjanna og Baiidaríkjanna s.l. sumar og var 150 metrum á undan Rússanum Ivanov. Banda- ríkjamenn reikna með miklu af honum á næstum árum. vmMMtMMMMMMmMMMM Þórarinn Ólafsson, Víking, er stöðugt vaxandi leikmaður. Hann átti góðan leik gegn Fram og á myndinni er hann að skora. Desemberhefti íþróttablaðsins er komið út DESEMBERHEFTI íþróttablaðs ins kom út rétt fyrir hótíðirnax. Af efni blaðsins má nefna greinina Si^urssalt ^íþróttaár er /It'nn á enda, frásögn af ársþingum fjög- urra sérsambanda, greinar um landsleiki í handknattleik og heim £Ókn danska félagsins Ajax. Þá ritar Benedikt Jakobsson fróðlega grein, sem hann nefnir, Á hvern hátt er hægt að auka íþróttastarf ið, Ólafur Júlíusson skrifar um mælingar fyrir íþróttavöllum, Em il R. Hjartarson ritar grein, sem hann nefnir Áhuginn er fyrir hendi, en það skortir leiðbeinend ur, einnig er íþróttaannáll í blað- inu sem prýtt er fjölda mynda. SÁTU FUND RÁÐHERRA- NEFNDAR EVRÓPURÁÐS Ráðherranefnd Evrópuráðsins hélt fund í París 18. og 19. des. Norski ráðherrann, Halvard Lan- ge, stjórnaði fundinum. Fulltrúar íslands voru ambassadorarnir Pét- ur Eggerz og Pétur Thorsteinsson. Ráðherrarnir ræddu um tolla- viðræðurnar, sem fram fara á veg um GATT, og um viðskiptabanda- lögin í Evrópu. Þá fjölluðu þeir um samstarf ríkjanna í Vestur- Evrópu ög Norður-Ameríku og þann áhuga, sem fram hefur kom- ið á að þingmenn í þessum ríkj- um haldi með sér fundi. Rætt yar einnig um þéóun mála í Austur- Evrópu og hugsanlegar afleiðing- ar þeirrar þróunar. Kom glöggt fram í umræðunum, að Evrópu- ráðsrikin eru ekki sem slík aðili að flokkamyndun á alþjóðavett4 vangi, en eru reiðubúin til sam- starfs við önnur ríki innan þeirra marka, sem stofnskrá Evrópuráðs- ins setur. - . Teppahreinsun Hreinsum teppi og húsgögn | í heimahúsum, fljótt og vel. |i Fullkomnar vélar. jj Teppahraðhreinsuniiii Sími 38072. ALÞÝDUBLAÐIÐ — 29. des. 1964 lt

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.