Alþýðublaðið - 29.12.1964, Síða 15

Alþýðublaðið - 29.12.1964, Síða 15
lega hættulegt að láta hugann hverfa um of frá starfinu og láta sig um leið dreyma einhverja kjánalega drauma, sem aldrei gátu rætzt. Hún vissi að sjálfrar sín vegna ætti hún að reyna að hafa sem minnst samband við Kevin. Hún herti upp hugann og sagði: — Mætti þetta ekki bíða svolítið. Ég er að ganga frá skýrslu .veana ráðstefnu, sem verður haldin hér í grendinni bráðlega um smithættu á sjúkra- húsum. Þetta er heilmrkið mál og við eigum upDtökin að því og viljum þess vegna gera okkur far um að leggja eitthvað merkilegt til málanna. Þar að auki verður hin árlega spítala-hátíð um næstu heigi og þá verður hér heilmikið um að vera. Borgarstjórnn sjálfur ætlar að koma í heimsókn og allskyns frægir skemmtikraftar munu leika listir sínar hér. — Allt í lagi, þú hefur sigur í þessari lotu, sagði Kevm og þótti bersýnilega miður. Þá get- ur ekki orðið úr þessu næstu þrjár helgar, það er greinilegt. En ég tek engar afsakanir gildar um næstu helgi þar á eftir, og þá verður rósagarðurinn minn líka í fullum skrúða, svo þú rétt ræð- ur því hvort þú svíkur mig. — Það er samt alls ekki víst, að ég geti komið þá, sagði Ruth og var nú komin í hreinustu vandræði, en greinilegt var að liann heyrði ekki það sem hún sagði, eða vildi ekki heyra það, því hann kvaddi og lagði símtól ið á. Það var erfitt fannst Ruth að einbeita sér að vinnunní eftir þetta samtal þeirra. Hún var alltaf öðru hverju að hugsa um live gaman mundi að vera eina helgi á "VVoodleigh og reika þar ; um hinn yndislega garð í fylgd með Kevin. Hún hafði samt svolitið sam- vizkubit, því þrátt fyrir allan áhuga Kevins á spítalanum, þá hafði hann ekki minnst einu orði á Len Bellamy, og ekki einu sinni spurt hvernig hann hefði það. Það var kannski sérstaklega af þessari ástæðn bún spurði sér stakiega eftir liðan hans, þegar hún fór á stofugang. — Honum fer mjög vel fram núna, sagði Ennis hjúkrunar- kona. Hann er farinn að hafa stjórn á vöðvunum, alveg eins og læknirinn var búinn að spá. Hann er farinn að nota bendurn ar heilmikið, meðal annars til áð skrifa bréf. — Jæja, einmitt það, sagði Ruth. Hún hafði ímyndað sér að liann mundi ekki beint gefinn fyrir bréfaskriftir. Hann skrif- ar þá liklega fjölskyldu sinni í Kanada eða vinum sínum úr hernum, sagði hún hálfspyrjandi. Hjúkrunarkonan hristi höfuð- ið. — Þetta eru afskaplega dul- arfull bréf. Við höfum allar boð izt til að póstleggja þau fyrir hann, en hann setur þau alltaf sjálfur í pokann hjá bréfberun um, þegar hann kemur á spítal ann. Sjúklingarnir kunna ann- ars afskaplega vel að meta þá ný- breytni yðar að láta bréfbera koma með bréf og taka við þeim á stofunum^ því þótt starfsfólk ið eða gestir séu beðin fyrir bréf getur alltaf misfarizt að þau kom ist tímanlega í póstinn. ' . Nú hýrnaði yfir Ruth. Þetta var í fyrsta sem eii^hver hrósaði þeim breytingum, sem hún hafði gengist fyrir frá því að hún tók til starfa, ef dr. Cort var undanskilinn. — Bellamy er heppinn ungur maður hélt Ennis áfram er þær byrjuðu stofuganginn á deild hennar. Það kemur til hans bréf á hverjum einasta morgni og það bregst aldrei. Nemarnir eru allt- af að stríða honum á að hann eigi kærustu einhvers staðar, en þér vitið nú annars hvernig þær láta alltaf. Þær vita að bréfin, sem hann fær eru póstlögð hérna í borginni og eru því alltaf að spyrja hann hvort hún fari ekki að heimsækja hann, og hvort bréfin sem hann sé að skrifa séu öll til hennar. Nú varð Ruth heldur betur undrandi. Það var henni ánægja að vita að Bellamy skyldi ekki vera eins vinasnauður og hún liafði haldið, en samt var mjög skrýtið að aldrei skyldi neinn koma að heimsækja hann, eins og Ennis hafði sagt henni. Hún hafði sannarlega viljað spjalla svolítið við piltinn, en þessi heim sókn gaf hvorki tækifæri né til- efni til þess. Aðstoðarkona henn ar og deildarhjúkrunarkona voru báðar í för með henni, og aldrei fannst henni hún hafa fundið eing greinilega þann vegg sem aðskildi hana og sjúklingana. Svona varð þetta víst að vera. Hún varð að treysta starfsfólk: sínu til að sjá um velferð sjúkl- inganna. Þegar hún kom að rúmi Len Bellamys, spurði hún hann hvernig hann hefði það, og sagði honum að bráðlega yrði hann að fara að ráðfæra sig við endurhæf ingarsérfræðing spítalans, svo lrann yrði reiðubúinn að taka að sér nýtt starf, þegar þar að kæmi. SÆNGUR Sí-Vj.* Endurnýjum gömlu sængurnar. Seljum dún- og fiðurheld ver. NÝJA FEÐHRHREINSUNIN Hverfisgötu 57A. Sími 16738. < SÆNGUR REST-BEZT-koddar Endurnýjum gömlu sængurnar, eigrum dún- og fiðurheld ver. Seljum æðardúns- og gæsadúnssængur — og kodda af ýmsum stærðum. DÚN- OG FIÐURHREINSUN Vatnsstíg 3. Síml 18740. vvwwwwwwwwwwtw Pilturinn gretti sig svolítið. Það er búið að skrifa fyrirtæk- inu, sem ég átti að byrja hjá, en það ep þegar búið að ráða mann í minn stað. Þeir voru ekki von- miklir-um að hjá þeim mundi losna annað starf á næstunni. Mér skilst meira að segja, að þeir séu í óða öhn að segja upp starfsfólki vegna þess að þeir voru sviknir um einhvern verk- samning, sem búið var að lofa þeim. Það þykir mér ákaflega leitt að heyra, sagði Ruth, og það þótti henni vissulega. En þú skalt ekki hafa alltof miklar áhyggj- ur af þessu. Þú verður alla vega að taka þér alllangt frí, og við látum athuga alla möígu- leika eins vel og kostur er. Það verður áreiðanlega hægt að finna þér starf við hæfi. Ég veit að þegar einar dyr lokast á mann, opnast alltaf einhverjar aðrar fyrr eða síðar. — Já, það er nú reyndar satt, sagði Len Bellamy og það virt- ist heldur léttast á honum brún in. — Svona slys eru náttúrlega grábölvuð og fyrst hélt ég að þetta væru endalok mín, en hver veit nema ég eigi eftir að fá betra starf heldur en það sem ég missti af. — Það vona ég svo sannarlega, sagði Ruth. Og svo verðurðu að taka þér gott frí og hvílast vel, og þá dugar nú ekki að flakka um allar trissur með bakpoka á bak- inu og vegakort í hendinni. — Mikið leið Ruth annars bet ur núna. Þetta virtist ætla að verða ágætur dagur. Len Bella- my var á batavegi, og þetta virt ist leika í lyndi. Seinna um morg uninn sá hún Nonu tilsýndar þar sem hún var önnum kafin á barnadeildinni, og hún leit bet- ur út en áður, þótt enn væri hún föl. Eftir því sem Ruth gat bezt séð, þá var Nona önnum kafin og ánægð. Þemnan morgun samdi Ruth frið við dr. Cort. Hann kom stikandi eftir ganginum á barnadeildinni, hann hafði verið að líta á barn, sem búið var að láta ganga undir margháttaðar rannsóknir. Þau hittust fyrir ut- an dyr barnadeildarinnar. Þau voru þarna ein eitt augnablik því aðstoðarkona Ruthar hafði orðið eftir inni á deildinni stundar- korn. Á barnadeildinni voru ævin- lega hávaði og ærsl því allmörg barnanna höfðu fótavist. Þau fengu að hafa leikföng inni hjá sér og meira að segja lítinn sand kassa svo það var sannarlega allt annað en auðvelt að fá þau til að vera róleg og hljóð, jafnvel þegar yfirhjúkrunarkonan kom í heimsókn. Einn af rollingunum hafði hlaupið út á eftir Ruth og vildi endilega fá að leika við hana, en ein h.iúkrunarkonan kom og fór aftur með hann inn í sandkassann og lét hann sér það sæmilega lika. Einmitt í þess ari andrá bar John Cort að. Ruth var hlæjandi og svolítið rjóð í andliti. — Þetta er dásamleg deild, sagði hún. Hér er alltaf eitthvað að gerast. Börnin lifa bara fyrir daginn í dag og eru ekki að hafa áhyggjur af morgun •deginum eins og fullorðna fólk ið. Ég held að við mættum gjama taka þau okkur til eftirbreytni. Það verkar alltaf á mig eins og hressingarlyf að koma hérna inn, þó ekki sé nema á örfáar mínút- ur. — Samt finnst sumum bama- deildirnar á sjúkrahúsum alltaf vera dapurlegir staðir, sagði Johh Cort. i' — Það hefur mér svo sannai* lega aldrei fundist, sagði Ruth, Það getur stundum verið hálf dapurlegt að hjúkra gömlu fólkj. jafnvel þó það sé ekki alvarlega veikt eða liði ekki ákaflega illa. Ég býst við að þér vitið að éjg var um tíma í Suður Frakklandi, og þar hjúkraði ég móður minni í þrjá mánuði áður en ég korit hingað til Marbury. John Cort roðnaði og hún sá roðann breiðast hægt um allt andlit hans. Ég vildi að ég hefði vitað það sagði hann eins og hálfpartinn við sjálfan sig. Ég hafði ekki hugmynd um þettá, og ég votta yður samúð míná. Ruth var hrærð en jafnfram dálít ið rugluð. Hvers vegna skyldi hann taka þetta svona nærri sér. — Mamma var afskaplega sterk byggð sagði hún, og ég er viss um að hún naut þess í ríkum mæli að eyða nokkrum síðustu dögunum þarna suður frá. John Cort bölvaði sjálfum sér í sand og ösku fyrir að vera svona skammsýnn kjáni. Hann var samt vanur að dæma fólk ekki eftir ytra útliti, en nú hafði hon um sannarlega orðið á í mess- unni og það heldur betur. Hann hafði verið alltof fljótur að kom- ast að niðurstöðu varðandi Ruth Ellsson. Hann liafði aðeins dæmt hana eftir fötunum, sem hún var í og eftir miðunum á farangri hennar. Hann hafði talið hana vera eina af þeim, sem í Mar- bury var kallað fína fólkið, en það voru einkum dætur og eigin- konur ríkra iðjuhölda. Hann hafði líka ef til vill verið á móti slíku fólki að ósekju. í hrein skilni sagt þá var þessi andúf hans á þessu fólki gömul, — al- veg síðan í námsárum hans. Þá hafði hann orðið yfir sig ástfang inn af stúlku sem hét Molly. Tik aV mér hvers konar þýfflnf- sr úr og é ensku EIÐUR GURNASON. IBegiltur dómtúlkur og skjala- býfandi. Skiphoiti 51 — Sími 32933. . Skal samt horfa á sjónvarpið, þótt þú setjir mig í skammarkrókinn. ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 29. des. 1964 15 vi

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.