BFÖ-blaðið - 01.01.1980, Page 1
□□
Félagsrit Bindindisfélags Ökumanna
ÁVARP FORSETA BFO
Góóir félagsmenn.
Ég óska ykkur og fjölskyldum ykkar gleði-
legs árs og þakka það sem liðið er.
Á tímamótum nýs árs leiða menn oft hugann
að hinu liðna og hvað áunnist hefur. Þar
kennir margra þátta sem menn hefðu viljað
gera öðruvísi eða betur, en fá eigi ráðið
því sem liðið er.
Mjög blómlegu starfsári Bindindisfélags
ökumanna er lokið og nýtt ár með nýjum
vonum um árangursríkt starf er að hefjast.
í starfi liöins árs ber vissulega hæst,
hversu víða og vel tókst að framkvæma
"Ökuleikni" sem félagið stóð að í sam-
vinnu við Dagblaðið og þann árangur sem
sigurvegarar keppninnar gátu sér á er-
lendri grund og nánar er vikið að í blað-
inu. Vert er að þakka öllum þeim sem
lögðu hönd á plóginn og gerðu framkvæmd
keppninnar mögulega.
Ekki verður skilið við árið 1979, svo
ekki sé getið stjórnarskipta á sambands-
þingi BFÖ. Um leið og ég þakka það traust
sem mér var sýnt með vali í stjórnarstarf,
vil ég þakka fráfarandi forseta, Sveini H.
Skúlasyni, frábært starf að málefnum fél-
agsins.
Það er ekki ætlun mín að biðjast afsök-
unar á formi jólakveðju til ykkar góðir
félagsmenn, þótt að þessu sinni reyndist
nauðsynlegt að hún væri í formi happ-
drættismiða. Ljóst er að lítið er gert
án fjármagns, og þvy veröur eftir því að
leita.
Á liðnu ári var margt gert og breytt til
bóta. Víða er unniö að bættri umferðar-
menningu, bættum hag bíleigenda, að fyrir-
byggjandi bindindisstarfi og starfi til
hjálpar áfengissjúkum. Þakka skal það
sem vel er gert og víst er að maklegur
hróður er engum of góður, en betur má
ef duga skal.
Árið 1979 er síst betra umferðarár, er
varðar slys og umferðaróhöpp, en fyrri
ár. Almenn bindindissemi hefur ekki
öðlast það fylgi sem ein dugar til minnk-
unar áfengisvandaniam og áfram er baráttu
þörf. í byrjun hvers árs ræða menn og
skipuleggja starfið á árinu. Við er\im
full eftirvæntingar og vona um að okkur
takist að leggja baráttunni lið. Ein-
staklingurinn gerir áætlanir og gerir
jafnvel heitstrengingar um ætlanir
sínar á árinu, og er það vel. Það er
oft ótrúlegt hvað hægt er að gera ef
gengið er til starfs með jákvæðum
huga og treyst er á samvinnu félaganna.
Það er ósk mín og von að allir félags-
menn BFÖ leggi svo fram krafta sína á
árinu 1980, að eftir því verði tekið,
og færi þannig Bindindisfélag ökxmanna
nær markmiðum sínum í baráttunni fyrir
bindindi og bættri umferðarmenningu.
Gleðilegt ár
Gunnar Þorláksson,
forseti BFÖ.
AKTU ALDREI INN A GATNAMÖT NEP1A
FULLUISSA ÞIG UM A€ ÞAÐ SÉ ÖHÆTT'
Langflest umferðardhöpp verða þegar
aðalbrautar— eða almennur umferðar—
róttur er ekki virturT