BFÖ-blaðið - 01.02.1981, Blaðsíða 8

BFÖ-blaðið - 01.02.1981, Blaðsíða 8
Hvað er Ansvar? Flestir þeir er tryggja hjá Ábyrgð vita að tryggingarfélagið þeirra er einn hlekkur í keðju tryggingarfélaga er tryggja fyrir bindindismenn, víða um lönd. Hjáflestum nær vitneskjan ekki lengra. þessvegna fannst okkur í ritnefnd BFÖ-blaðsins rétt að kynna starfsemi Ansvarsfélaganna fyrir lesendum. Ansvar, tryggingarfélag bindindismanna í Svíþjóð var stofnað 1931. Hugmyndin að baki stofnuninni var m.a. sú að láta bindindismenn njóta þess í iðgjöldum, þ.e. lægri iðgjöldum, að þeir væru bindindismenn. Einnig var ætlunin að láta ágóða af rekstrinum, ef einhver yrði renna að hluta til bindindissamtakanna. Það er óhætt að segja að þessar vonir hafa rætst. Ansvar hefur boðíð uppá lægri iðgjöld og einnig hefur félagið styrkt bindindisstarf í Svíþjóð á myndarlegan hátt. Vegna hinnar góðu reynslu sem varð af starfi Ansvar í Svíþjóð, þá vaknaði áhugi í öðrum löndum á því aðfylgja ífótspor Svíanna. Vegna þeirrar reynslu er þeir höfðu hjá Ansvar, þá var leitað til þeirra um aðstoð við stofnun tryggingarfélaga fyrir bindindismenn. Þannig atvikaðist það að Ansvar í Svíþjóð varð móðurfélag tryggingar- félaga í 9 löndum. Óll tengjast þessi félög sterkum böndum í gegnum móðurfélagið, þannig að óhætt er að kalla félögin Ansvarsfjölskylduna. Félögin hafa eflst gífurlega í gegnum árin. Árið 1 980 varð heildarvelta Ansvarsfálaganna kr. 61.7 milljarðar gkr. Ansvarsfélögín höfðu 1980, 66 skrifstofur í 9 löndum. Af þessum skrifstofum eru 32 í löndum utan Svíþjóðar. Hjá félögunum störfuðu 556 fastráðnir starfsmenn og þar af 200 utan Svíþjóðar. Á framansögðu sést að Ansvarskeðjan er geysiöflug. Það er því á vissan hátt hægt að segja að Ábyrgð sé langstærsta tryggingarfélag íslands. Ábyrgð hefur ætíð sinnt því að bjóða bindindismönnum lægri iðgjöld en önnur tryggingarfélög. Ábyrgð hefur haft forystu á meðal íslenskra tryggingarfélaga, að auka fjölbreytni í tryggingum og er það ekki síst að þakka nánu samstarfi við Ansvarsfélögin. En síðast en ekki síst þá hefur Ábyrgð styrkt bindindissamtökin myndarlega, frá stofnun Ábyrgðar 1960 og til dagsins í dag. Ábyrgð hefur því alla tíð rækt vel tvö af grundvallaratriðum fyrir stofnuninni, lægri iðgjöldog stuðning viðbindindissam- tökin. Utan úr heimi Mazda 323 bíll ársins í Ástralíu. Mazda 323 hefur verið tilnefndur sem bíll ársins af stærsta bílablaði Ástralíu „Wheels". Wheels byrjaði árið 1963 að velja bíl ársins og er Mazda 323 annar japanski bíllinn er hlýtur titilinn. Golf stendur sig vel. Eftir sex ára og sjö mánaða framleiðslu hafa verið framleiddar fjórar milljónr Golf bíla. Þeim árangri náði hinn gamli og góði Volkswagen (bjallan) ekki fyrr en eftir 15 ár. Daglega eru framleiddir 3250 Golf-bílar og er stór hluti þeirra með dieselvél (11 60). Salan á Golfinum er að sjálfsögðu mest í Þýskalandi en Golfinn er einnig vinsæll utan Þýskalands. Það hafa veriðskráðir 911.000 Golf bílar í Bandaríkjunum, 221.000 í Ítalíu, 200.000 í Frakklandi, 150.000 í Hollandi, 133.000 í Mexíkó og í Svíþjóð hafa verið skráðir 90.000 GOLFAR. Alltaf selst Corolla. Toyota Corolla var sá bíll er mest var framleitt af árið 1980. Framleiddir voru 771.720 bílar. Þetta var í sjöunda skipti sem Corollan náði þeim árangri að verða mest framleiddi bíll ársins. Framleiðsluaukningin frá 1 979 varð 44.301 bíll. Corollan var mest framleiddi bíll heimsins árin 1 974-1977, 1979 og nú einnig árið 1980. I Japan náði Corollan þeim einstæða árangri, árið 1980, að verða mest framleiddi bíllinn, tólfta árið í röð.

x

BFÖ-blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: BFÖ-blaðið
https://timarit.is/publication/234

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.