BFÖ-blaðið - 01.01.1983, Side 11

BFÖ-blaðið - 01.01.1983, Side 11
10 BFO BLAÐIÐ Bifreiðaíþróttir hafa náð miklum vin- sæidum hér á landi á síðustu árum og er ekki að efa að slíkt er af hinu góða. Þxr kenna iðkendum og áhorfendum að bílar eru aðeins leikföng á lokuðum vegum eða á þar til gerðum brautum eða stöðum. Nefna má ökuleikni, kvartmílu- keppni, rallí, torfærukeppni, rallíkross, ískross, mótorcross og jafnvel kassabfla- rallí! Sameiginlegt eiga þessar greinar bifreiðaíþrótta að draga að sér fjölda áhorfenda og fréttir af þeim í fjölmiðlum vekja jafnan athygli. Bæði er að fólk hefur gaman að fylgjast með keppendum og einnig koma upp skemmtileg atvik. Fjöldi þátttakenda er með ólíkindum mikill og því er nauðsynlegt að hafa marga til gæslu, bæði til eftirlits með keppendum og áhorfendum. Oft eru tveir keppendur í hverju ökutæki, en oftast einn. Við bætast þjónustaaðilar, s.s. viðgerðarmenn og aðrir aðstoðar- menn. Um leið og viðurkenning hefur fengist á því að leikni í stjórnun bifreiða geti kallast íþrótt og leyfi hefur fengist fyrir bifreiðaíþróttakeppnum hefur stórlega dregið út ónæði á götum borga og bæja af völdum bifreiða. Útrás fá áhugasamir ökumenn á þar til gerðum stöðum, þess vegna eru bifreiðaíþróttir af hinu góða, svo ekki sé annað upp talið. Hér verður nú greint frá einni tegund bifreiðaíþrótta, það er að segja rallí. íslenskt orð fyrir íþróttina hefur ekki fengist, en reynt hefur verið að notast við orð eins og rall eða þeysa. Fleiri tillögur hafa heyrst s.s. víðáttuakstur. Raunréttasta orðið er áfangasprettir, því rallí gengur út á akstur í áföngum. Næsta sumar, sumarið 1983, verður haldin hér á landi í fyrsta sinn alþjóðleg rallkeppni. Það er franskur maður sem heldur keppnina, en hann hefur langa reynslu í keppnishaldi sem slíku og hvarvetna viðurkenndur. Langt er síðan hann kom hingað til lands í fyrsta sinn, en síðasta sumar kom hann gagngert til þess að kanna aðstæður og fylgjast með stóru ralli sem hér var haldið. f stuttu máli má segja að sá franski hafi orðið stórhrifinn af þeim möguleikum sem landið býður upp á til rallaksturs. Nú er undirbúningur undir rallið í sumar kom- inn langt á veg og eru væntanleg á annað hundrað ökutæki og keppendur til að sprcyta sig. En hvað er rallí? f stuttu máli gengur það út á akstur á milli áfangastaða og er galdurinn fólginn í því, að koma í mark á réttum tíma, hvorki of fljótt né of seint. Komi bíll of fljótt í mark, bendir það til þess að ekið hafi verið of hratt og fá ökumenn því tvöfalda refsingu á við það að koma of seint. Leiðum er skipt í ferjuleiðir og sérleiðir. Keppnin fer aðallega fram á sérleiðum og verða bílar að koma þar á nákvæmlega réttri sek- úndu í mark. Ekið er miklu hraðar á sérleiðum en á ferjuleiðum og er gefinn upp sá tími sem aka má leiðina á. í flestum tilfellum verða ökumenn að hafa sig allan við til að komast leiðina á uppgefnum tíma og verða raunar að aka á hámarkshraða allan tímann. Á hlykkj- óttum vegum reynist það oft erfitt og tapast mikill tími í beygjum ogá lélegum vegaköflum. Sérleiðum er yfirleitt valin staður þar sem vegir eru frekar slæmir, fáfarnir fjallvegir eru oft nýttir í þeim tilgangi. Ferjuleiðir eru tenging á milli sérleiða og er ekið mjög rólega enda rúmur tími gefinn til þess arna. Tveir ökumenn eru í rallbílum, aðal- ökumaður og aðstoðarökumaður. Aðal- ökumaður hefur engan annan starfa en að stjórna bifreiðinni, en aðstoðaröku- maður sér um tímavörslu og útreikning, móttöku gagna, skráningu á þau og afhendingu þeirra. í upphafi keppni fá ökumenn afhenta leiðarbók, þar sem skráðar eru leiðirnar með teikningum, vegalengdum, meðal- hraða eða tíma sem tekur að aka leiðirn- ar. Að öðru leyti vita ökumenn lítið um keppnisleiðir og reynir því talsvert á skarpskyggni þeirra. Mikilvægt er að ökutæki séú í góðu lagi. Undirbúningur hlýtur því óhjá- kvæmilega að verða mikill og miðast við hnjask. Öryggisútbúnaður verður því að vera mikill og er raunin sú að svo strangar öryggiskröfur eru gerðar að litlar líkur eru á stórslysum nema öku- menn aki því gáleysislegar. Nefna má að allir bílar verða að vera útbúnir með öryggisgrind, sem kemur í veg fyrir að yfirbygging bílsins leggist saman í veltu eða við árekstur og slasi þannig öku- menn. Ökumenn verða að bera hjálma og viðurkennd öryggisbelti sem strengd eru yfir mitti og axlir. í bílunum verða að vera slökkvitæki, talstöð o.s.frv. Vegalengdir í röllum eru mismiklar eftir umfangi keppna eða allt frá nokkrum hundruðum kílómetra upp í nokkur þúsund kílómetra, en rallið í sumar verður hátt á þriðja þúsund kílómetrar. Eðlilega hlýtur kostnaður- inn að vera gffurlegur á hvern bíl og hljóta keppendur að bera þann kostnað sjálfir. Hafa þeir því allar klær úti til fjáröflunar og er sú helsta á þann veg, að seldar eru auglýsingar á bílana. Ymis fyrirtæki sjá sér hag í því að kaupa pláss fýrir nafn sitt á keppnisbíla vegna þeirra gífurlegu athygli sem röll yfirleitt vekja. Einnig greiða hin ýmsu bifreiðaumboð eða framleiðendur fyrir keppendum á ýmsan hátt, s.s. með ókeypis varahluta- þjónustu, viðgerðum og kosta flokk þjónustumanna á meðan á keppni stendur. Tvímælalaust er að bifreiða- umboð fá mikla auglýsingu út úr því, ef bíll þess sigrar í ralli. Nokkuð hefur verið rætt um hina alþjóðlegu rallkeppni sem haldin verður hér á landi næsta sumar. Finnst sumum að hér sé á ferðinni óhæfa sem bæði muni skemma vegi og ekki síst náttúru landsins. Vegagerð ríkisins hefur lýst BFOBLAÐIÐ 11 Afgreiðsla Vöruflutningamiðstöðvarinnar Vöruafgreiðsla opin frá 08.00 -12.00 og 13.00 -17.00 Símaþjónusta frá 08.00 -12.00 og 13.00 -18.00 Athugið að hafa sendingar vei merktar. Merkið brothættar sendingar sérstak- lega. Munið að bera saman merkingu á fylgibréfi og vörusendingu Vöruflutningamiðstöðin hf. Borgartúnl 21 slml 10440 „fullkomnasta vöruflutnlngamlöstöö landslnsM Bflaeigendur takið eftir Frumryövörn og endurryövörn spara ekki einungis peninga, heldur eykur öryggi yöar í umferöinni. Endurryövörn á bifreiöina viöheldur verögildi henn- ar. Eigi bifreiöin aö endast er endurryövörn nauösynleg. • Látid ryðverja á 1—2ja ára fresti. • Látið ryðverja aö innan á 3ja ára fresti. • Góð ryðvörn tryggir endingu og endursölu. BÍLARYÐVÖRNhf Skeifunni 17 Q 81390 VÉLASTILLING AUÐSREKKU 51 - KÓPAVOGI - SÍMI 43140 SIGURÐUR ÓLAFSSON Framkvæmum véla-, hjóla- og Ijósastillingar með fullkomn- um stillitækjum. Höfum fyrirliggjandi: — Kerti — Kveikjuþræði — Loftsíur — Platínur — Kveikjulok — Bensínsíur auk þess ýmislegt fleira fyrir bílinn því yfir að hún hafi ekkert við keppnina að athuga né röll yfirleitt. Hennar álit er það, að röll skemmi ekki vegi neitt tiltakanlega, þannig að þau rök eru því úr sögunni. Þá eru það umhverfisverndarsjónarmiðin. Þau má alls ekki vanmeta, enda mikið í húfi. Reynslan hefur þó sýnt að rall- keppnir hafa eki spillt náttúru landsins frekar en önnur bílaumferð. Aftur á móti geta slys alltaf komið fyrir og þarf ekki rall til. Það sem skiptir þó aðalmáli er það, að koma má fyrir ákvæðum í reglum um rallið sem varða náttúru- verndarmál. Hægt er að herða svo viðurlög að brottrekstur varði ef ekið er utan vega af ásetningi. Þetta hafa for- ráðamenn keppninnar upplýst og er Ijóst að gífurlegar varúðarráðstafanir verða gerðar til að fyrirbyggja hugsanleg spjöll á náttúru landsins. f upphafi kom fram að hingað til lands munu koma á annað hundrað keppendur til að taka þátt í hinu alþjóðlega ralli sem haldið verður hér á landi í ágúst. Ljóst er að margir útlendingar munu koma og þá flestir sem fylgdarmenn erlendra keppenda. Þessi hópur mun verða undir miklum aga, fyrir honum verður útlistaö hvaða náttúruverðmæti eru í húfi og hvernig eigi að umgangast landið. Einnig krefst keppnin sjálf mikils aga, því framkvæmd hennar er mjög flókin. Alla vega er tækifærið einstakt. Hingað til lands mun ekki koma jafnstór hópur undir svo nákvæmu eftirliti, þannig að ljóst má vera að ef umhverfisverndar- sjónarmið eiga að ráða viðskiptum við útlenda ferðamannahópa, þá ætti að beina athyglinni að smærri hópunum. í sjálfu sér er það bráðskemmtilegt fyrir bifreiðaeigendur að velta því fyrir sér, að með alþjóðlegri rallkeppni hér á landi, gefst okkur íslendingum tækifæri til að hagnast á hinum lélegu vegum okkar. Hugsaðu andartak um það, les- andi góður, að hingað til lands eru á leiðinni fjöldi útlendinga til þess eins og nota vegi landsins, að skemma bílana sína, - og í þokkabót vilja þeir borga okkur fyrir þennan greiða. Ef allt er tekið saman munu íslendingar græða milljónir króna í formi greiðslna fyrir vörur, þjónustu, hótelkostnaðar, bensíns, matar, minjagripa, ferða með flugfélögum og skipum o.s.frv. Verði okkur því að góðu. SS % 1 f »i scaran Smurstöð í Garðabæ Við hliðina á SHELL bensínstöðinni við Vífilsstaðaveg Þar bjóðum við bifreiðaeigendum fjölbreytta þjónustu, meðal annars> • alhliða smurningsvinnu • loft- og olíusíuskipti • endurnýjun rafgeyma og tilheyrandi hluta • viftureimaskipti, rafgeymahleðsla, ofl. ofl. Verið velkomin og reynið þjónustuna hjá liprum og vönum mönnum. Oliufélagið Skeljungur hf. Smurstöð Garðabæjar Sími 45200

x

BFÖ-blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: BFÖ-blaðið
https://timarit.is/publication/234

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.