BFÖ-blaðið - 01.01.1983, Blaðsíða 12

BFÖ-blaðið - 01.01.1983, Blaðsíða 12
TiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiMiiMimiiimmiiiiiiiiMiHMiiMiHiinmiiminiHiiHmimiiiMMMiiiimHMii 12 EruHósln HEMLALJÓS í AFTURRÚÐU = 1 NÝKOMIN SENDING MMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMI? Barnið í bílnum FORELDRAR — BÍLSTJÓRAR: SLYS GERA EKKI BOÐ Á UNDANSÉR Árið 1975 slösuðust 483 farþegar og bilstjórar í umferðinni þar af u.þ.b. 40 börn. KL Barnabilstólar eru viðurkenndir, hafa hlotið verðlaun, fyrir hönnun og öryggi. §DfÍÁ| SKYNDmÉTTu,, Jylsur hÍI P"ttrr„. SKVNOmtTTUB Hamborgan .ualMkri 'arsósu. í hádeginn, á kvöldin - heima. í vinnunni, á ferðalognm, og hvar eem er. I.ykkjulok ■ enginn dósahnáfur. Fæst í næstu verslun! Niðursuðuverksmiðjan ORA hf. ,átið dósina standa i S min.i heitu vatni í potti eða vaski, áður en hún er opnuð, og rétturinn er tilbúinn. BÍO Stóraukin umsvif hjá Félagi íslenskrá bifreiöareigenda Stóraukin umsvif hjá Félagi ís- lenskra bifreiðaeigenda. Að undanförnu hafa orðið mikil um- skipti í starfsemi FÍB. 15. maí 1982, átti félagið hálfrar aldar afmæli, sem haldið var uppá, með fjölmennum hátíðar fundi í Þjóðleikhúsinu. A þessum tímamótum þótti stjórnar- mönnum FÍB við hæfi að endurskoða starfsemi félagsins með hliðsjón af breyttum þjóðfélagsháttum og þörfum félagsmanna. Það er ljóst, að með síauk- inni bílaeign landsmanna verður æ meiri þörf á sterku hagsmunafélagi bifreiða- eigenda. Félagatala FÍB í dag er um 10.000 félagar. Það er alltof lágt hlutfall af öllum bíleigendum til þess að nægi- legur árangur náist í baráttunni gegn skattpíningu á bílaeigendur og öðrum hagsmunamálum þeirra. Þar sem okkur var ljóst, að eitthvað þyrfti að gera var afráðið að auka til muna ýmsa þjónustuþætti félagsins. Má þar fyrst nefna lögfrxðiþjónustuna. Við- talstímum lögfræðings var fjölgað um helming og dugir varla til. Lögfræðingur félagsins tekur að sér ýmis ágreiningsmál er upp koma í tjónamálum, bílavið- skiptum, ábyrgðum nýrra bíla o.s.frv. Þá er að nefna tækni- og ráðgjafarþjón- ustu. Hana annast þrautreyndur bifvéla- virki. Hann tekur til umfjöllunar ýmis ágreiningsmál varðandi verkstæðis við- gerðir á bílum, yfirfer reikninga o.fl. í þeim dúr. Jafnframt veitir hann ráðgjöf varðandi ábyrgðir á nýjum bílum og viðgerðum auk annarar ráðgjafar. Tækniráðgjafi sér einnig um útvegun varahluta fyrir utanbæjarfólk o.fl. Ferðaþjónusta. Á síðasta ári, stofn- setti FÍB eigin ferðaskrifstofu undir nafninu Ferðaskrifstofa FÍB hf. Hlut- verk hennar er að veita félagsmönnum og öðrum bíleigendum sem besta þjón- ustu á ferðalögum sínum og þá einkum, þar sem bíll kemur inn í myndina á einn eða annan hátt. Var strax hafist handa við að afla sem bestra samninga erlendis við bílaleigur, hótel, sumarhúsaeigendur og lengi mætti telja. Með dyggri aðstoð systrafélaganna í Evrópu, einkum FDM í Danmörku, NAF í Noregi, ADAC í Þýskalandi og AA í Bretlandi, tókst víða að ná hreint ótrúlegum samningum. Með þessi geysistóru félög sem bakhjarl, en félagatala þeirra samanlagt er um 11 milljónir félagsmanna, má fá ymsu framgengt. Síðast liðið sumar Iagði Ferðaskrif- stofa FlB höfuðáhersluna á flug, bíla- leigubíl og sumarhús á meginlandinu og norðurlöndum, auk allrar almennar ferðaþjónustu. í ár hafa margir nýir staðir og möguleikar bæst við svo sem hótelpakkaferðir og bátaleiga í Bret- landi auk pakkaferða í sambandi við hið nýja farskip m/s Eddu, sem hefur sigling- ar á sumri komanda. Vegaþjónusta. Eins og mörg undanfarin ár mun FÍB starfrækja vegaþjónustu um helstu umferðarhelgar sumarsins. Þó svo að bilanatilfellum hafi fækkað á árunum 1978-1981, virtist þeim fjölga aftur á síðast liðnu ári, sem væntanlega stafar af því, að þau ógrynni nýrra bíla sem flutt voru inn á árunum eftir 1978, voru að byrja að gefa sig. Því þykir einsýnt, að vegaþjónustan verður ekki lögð niður á næstunni, þótt svo hafi horft við um tíma. Vegaþjónusta erlendis. Félag íslenskra bifreiðaeigenda hefur nú gengið í alþjóð- asamtök bifreiðaeigenda AIT (Alliance International de Tourisme) og FIA (Fe- deration International de ’la Autom- obile). Með þátttöku í þessum alþjóðas- amtökum skuldbindur FÍB sig til að veita erlendum félagsmönnum systrafé- laganna alla þá sömu þjónustu og veitt er FÍB félögum. Sama gildir fyrir FÍB félagsmenn á ferðalögum erlendis. Und- ir þjónustuliði sem FÍB er aðnjótandi, má nefna, lögfræði- tækni- ogferðaþjón- ustu. Jafnframt gefur FÍB nú út svo- nefndar skuldavjðurkenningar (Letter of Credit) sem eru greiðslumiðar sem nota má til að greiða viðgerðarreikninga, lögfræðikostnað, slysaaðstoð og jafnvel til greiðslu lögreglusekta. Reikningarnir eru síðan gerðir upp þegar heim er komið. Tjaldbðavegabréf. Þeir félagsmenn, sem hyggja á ferðalög erlendis og ætla að dvelja í tjaldi á tjaldstæðum þurfa að hafa meðferðis tjaldbúðavegabréf, en þau eru útgefin á skrifstofu FÍB, gegn framvísun félagsskírteinis og einnar myndar af viðkomandi. Vegabréf þessi veita oft afslátt á tjaldstæðum, en eru jafnframt trygging gagnvart þriðja aðila ef skemmdir verða. í sumum tilfellum fá aðeins þeir er framvís tjaldbúðavega- bréfi aðgang að tjaldstæðum. Talstöðvarþjónusta. FÍB hefur yfir að ráða rás 19 og geta félagsmenn fengið kallnúmer á skrifstofu félagsins til notk- Bifreiðaíþróttir. FÍB er umboðsaðili FIA sem eru alþjóðasamtök bifreiðaí- þróttafélaga og setur reglur og sér um að öryggiskröfum sé framfylgt. Sala á ferðahandbókum og vegakortum. FÍB hefur á boðstólum vandaðar ferða- handbækur og vegakort, á vægu verði til ferðalaga innanlands og utan. Nýtt húsnæði. Vegna þeirra miklu um- svifa IB sem áður greinir varð félagið að stækka skrifstofuhúsnæði sitt og hefur nú flutt alla.starfsemi sína í glæsilegt húsnæði að Borgartúni 33, Reykjavík, en síminn er hinn sami, 29999. Framkvæmdastjóri FÍB og Ferðaskrif- stofu FÍB hf., er Hafsteinn Vilhelmsson. Deildarstjóri félagaþjónustu er Jónína G. Gústavsdóttir. Sölustjóri Ferðaskrifstofu er Hrefna Birgisdóttir. Stjórn FIB er þannig skipuð: Arinbjörn Kolheinsson, formaður, Davíð Á. Gunnarsson, varaformaður, Stefán O. Magnússon, gjaldkeri, Þórarinn Óskarsson, ritari, Tómas H. Sveinsson, meðstjórnandi, Varamenn: Bjarni Jónsson, Friðrik Gunnarsson. Stjórn Ferðaskrifstofu FÍB er þannig skipuð: Arinbjörn KOIbeinsson, formaður, Hörður Sigurgestsson, varaformaður, Andri Árnason, ritari, Davíð Á. Gunnarsson, meðstjómandi, Sveinn Torfi Sveinsson, meðstjórnandi, Varamenn: Martin Peterscn, Wilhelm Wessmann, Þórarinn Oskarsson. SMURSTÖÐIN Hafnarstræti 23 Er í hjarta borgarinnar Smyrjum og geymum bílinn á meðan þér eruð að versla

x

BFÖ-blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: BFÖ-blaðið
https://timarit.is/publication/234

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.