BFÖ-blaðið - 01.01.1983, Blaðsíða 20

BFÖ-blaðið - 01.01.1983, Blaðsíða 20
20 BFO BLAÐIÐ Síðastliðið sumar stóð Bindindisfélag ökumanna ásamt Dagblaöinu/Vísi fyrir ökuleikniskeppnum á 24 stöðum víðs vegar um landið. Keppnir þessar hafa undanfarin ár náð miklum vinsældum, enda getur hver sem er tekið þátt í þeim, án þess að stofna sér í hættu. Skilyrðin eru að viðkomandi hafi ökuleyfi og keppi á skoðunarhæfum bíl. Fyrirkomulag keppnanna er í stuttu máli þannig að eftir að hafa þreytt próf í umferðarspurningum, aka keppendur í gegnum sérstaka braut þar sem reynir á nákvæmni í stjórn bílsins í ýmsum þrautum, s.s. aka í gegnum hlið, yfir hlemma inn í stæði o.s.frv. Gefin eru refsistig fyrir villur og mistök í keppnis- brautinni ásamt því að ökutíminn er mældur í sekúndum. Einnig eru gefin refsistig fyrir röng svör við umferðarspurningunum. Samanlagður fjöldi refsistiga sýnir síðan endanlega útkoma keppandans. Fjölmennasta akstursíþróttin Keppendur urðu alls 308 og er ökuleikn- in því fjölmennasta aksturíþróttin sem stunduð er hérlendis. Fjöldi keppenda náði mjög góðum Eins gott að vanda sig. ÖKULEIKNI fjölmennasta akstursíþróttin Aðgæsla og vald á ökutækinu Eflaust spyr einhver hver sé tilgangur- inn með keppnum sem þessum. Því er til að svara að keppnunum er ætlað það hlutverk að sýna fram á mikilvægi þess fyrir ökumanninn að hafa fullkomið vald yfir bifreið sinni og að nákvæmni og aðgæsla séu mikilvægustu þættirnir í fari ökumanns. Einnig gefa keppnirnar ökumönnum gott tækifæri til að rifja upp kunnáttu sína í umferðarlögum og sýnist ekki vanþörf á með tilliti til þess að innan við 6% keppendanna sl. sumar svöruðu öllum umferðarspurningunum rétt. Ökuleiknin er ólík öðrum aksturs- íþróttum. Hvorki reynir á taugar öku- mannsins í hraðakstri eftir holóttum vegum né afl og styrkleika bifreiðar við erfiðar aðstæður. Ökuleikninni er ætlað að prófa öku- manninn við aðstæður sem hann gæti mætt í hinni daglegu umferð þar sem nákvæmni, aðgæsla og tillitssemi verða að sitja í fyrirrúmi. Bindindisfélag ökumanna vill að lok- um færa öllum þeim aðilum sem veittu aðstoð við keppnirnar sl. sumar bestu þakkir. Fjöldi karla og kvenna lagði hönd á plóginn til þess að vel mætti takast til með framkvæmd keppnanna. An þeirrar aðstoðar væri ökuleiknin ekki framkvæmanleg. Sérstakar þakkir eru færðar Dagblað- inu/Vísi, Véladeild Sambandsins, Ábyrgð hf. tryggingarfélagi bindindis- manna, Flugleiðum, Umferðarráði og Æskulýðsráði ríkisins fyrir samstarfið og stuðninginn. Stjórn Bindindisfélags ökumanna. árangri, en það telst góður árangur að fá undir 200 refsistig í samanlagðri útkomu. Ellefu efstu keppendurnir s.l. sumar urðu þessir: umferðir í keppnisbrautinni, auk þess sem brautin var mun erfiðari heldur en í undankeppnunum. Þetta skýrir hinn mikla mun í fjölda refsistiga efstu kepp- 1. Einar Halldórsson ísafírði refsistig 148 2. Björn Björnsson Egilsstöðum 151 3. Árni Óli Friðriksson Reykjavík 152 4.-5. Sigurður Guðmundsson Reykjavík 163 4.-5. Gunnar Steingrímsson Sauðárkróki 163 6. Grétar Reynisson Egilsstöðum 168 7. Vagn Ingólfsson Ólafsvík 170 8.-9. Benedikt Hjaltason Akureyri 173 8.-9. Hreinn Magnússon Garði 173 10.-11. Gissur Skarphéðinsson ísafirði 176 10.-11. Guðmundur Kristvinsson Reykjavík 176 Enn er eftir að telja Guðstein Oddsson sem fékk einungis 145 refsistig er hann keppti á Akranesi. En þar sem Guð- steinn hafði áður keppt í Ólafsvík var árangur hans ekki marktækur. Sá keppandi sem bestum tíma náði í keppnisbrautinni var Björn Björnsson frá Egilsstöðum, 71 sekúnda. Fæst refsistig í keppnisbrautinni hlaut Einar Halldórsson frá ísafirði, 17 refsi- stig. 18 keppendur af 308 svöruðu ölium umferðarspurningunum rétt, eða 5,8%. Sérstök kvennaökuleikni var haldin í Reykjavík og gaf hún góða raun, alls kepptu þar 27 konur, en alls urðu konurnar 50 talsins í öllum keppnunum sl. sumar, eða rúmlega 16% keppenda. Keppt um Spánarferð I úrslitakeppninni, sem haldin var í Reykjavík í september, kepptu sigur- vegararnir frá undankeppnunum um ferð til Spánar í nóvembermánuði. Rétt er að taka fram að þeir einir hafa rétt til þátttöku í úrslitakeppninni sem eru á aldrinum 18-25 ára og hafa ekki áður sigrað í úrslitakeppni. í kvennariðli úrslitakeppninnar sigr- aði Fríða Halldórsdóttir úr Reykjavík með 733 refsistig og var hún rúmlega 200 refsistigum lægri en næsti keppandi. í karlariðli sigraði Jón S. Halldórsson úr Reykjavík með 547 refsistig og í öðru sæti varð Ingvar Ágústsson frá ísafirði með 641 refsistig. Þess má til gamans geta að Fríða og Jón eru systkini. f úrslitakeppninni voru eknar tvær enda frá því í keppnunum um sumarið. Þau Fríða, Jón og Ingvar fóru til Spánar í lok nóvember til þátttöku í Norðurlandakeppni í ökuleikni sem haldin var í Opel verksmiðjum General Motors þar í landi, en það fyrirtæki styður þessar norrænu keppnir. Þarna mættust keppendur frá fslandi, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og Dan- mörku í karla og kvennariðlum. Þrívegis hafa fslendingar orðið Norðurlandameistarar í ökuleikni, en urðu í þriðja sæti að þessu sinni. Ökuleikni á vélhjólum Samhliða ökuleikni á bílum var haldin ökuleikni á léttum vélhjólum (skelli- nöðrum). Alls voru haldnar 8 keppnir um landið, auk úrslitakeppni í Reykjavík í september. Keppendur urðu alls um 60 talsins. Fyrirkomulag var hið sama og í bílakeppnunum, þ.e. umferðarspurn- ingar og hæfnisakstur á sérstakri keppnisbraut. Sigurvegarar í vélhjóla- keppnunum urðu: refsistig 1. Örn Jónsson Hafnarfirði 172 2. Svavar Þorsteinsson Hafnarfírði 218 Hljóta þeir í verðlaun ferð til Egypta- lands n.k. vor til keppni í alþjóðlegri vélhjólakeppni. Jafnvxgið í fyrirrúmi. Nákvæmt skal það vera.

x

BFÖ-blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: BFÖ-blaðið
https://timarit.is/publication/234

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.