Skólablaðið - 15.01.1907, Blaðsíða 3

Skólablaðið - 15.01.1907, Blaðsíða 3
SKÓLABLAÐIÐ 3 tækra heimili geta því verið »fín«,og auðugra manna heimili í mesta máta óyndisleg. Þið hafið kanske aldrei hugsað um það, að óregla og óþrifnaður kostar peninga. Prifnaður og, reglusemi er því peningavirði. . . . Eg segi ykkur satt, að það er ekki lítils virði fyrir fátækt fólk, að ekkert skemrnist af óreglu, og að ekkert ætt eða óætt eyðileggist af óþriínaði. . . . En það, sem er allra mest virði í þessu lífi, er góð heilsa. Margir menn hafa orðið heilsulausir, eða bakað öðr- um vanheilsu með óþrifnaði. Óþrifn- aður og óregla veldur þannig eigna- tjóni og sjúkdómum. En þrifnaður og reglusemi skapar yndi og unun jafnvel í bláfátækt.« . . . Leiðbeining um byggingu barnaskólahúsa Og nokkrar hreinlœtisreglur til athugunar í barnaskólum. Þessi litli pjesi er gefinn út í sumarað tilhlutun stjórnarráðsins. Á 7. bls. er tafla yfir mál á skólaborðum og bekkjum. í 'henni hafa orðið nokkrar misprentanir, sem menn eru beðnir að leiðrétta .sam- kvæmt eftirfarandi töflu. Annars viljum vér vekja athygli á þess- um pjesa; skólanefndir og aðrir, sem sjá um byggingu á barnaskólahúsum, ættu að kynna sér hann vandlega. Mál á þrem stærðum skólaborða. Borðnúmer 1. 2. 3. Hæð barnsins, þl. 42-46 50-55 60-66 Hæð frambrúnar borðsins . . . a-b 49 63 79 Hæð afturbrúnar c-d 54 68 84 Hæð bekkjarins e-b 30 38 47 Mismunur á hæð borðs og bekkjar a-e 19 25 32 Breidd á bekknum e-f 23 28 35 Breiddáborðplötu a-c 40 40 45 Hæð bókahyllu . . g-d 38 48 59 Breidd á bókahyllu h-g 20 24 24 Hæð frá bekknum upp á efri brún bakslár .... f-i 21 26 32 Halli bakslár aftur ij 3 3 4 Breidd á fótskör 30 30 30 Lengd áborði og bekk 110 120 120 Öll málin (nema hæð barnsins) eru centimetrar. (g—wz'---- Milli hafs og hlíða. Dáin er nýlega dóttir Jóns skólastjóra Þórarinssonar í Flensborg, Sigríður að nafni, barn á 3. ári. Barnaskólahús tvíiyft haf’a Vopn- firðingar bygt sjer í sumar, og var það vígt 1. desember. Alt að 20 börnum eiga að fá þar heimavist. Kostnaður- inn við bygging þess var áætlaður um 10,000 kr., en heyrst hefir, að talsvert muni hann hafa farið fram yfir þá upp- hæð, enda er húsið stórt og vel vandað, með góðum kjallara, kennara íbúð o. fl. Fáskrúðsfirðingfar hafa einnig reist barnaskólahús á Búðum. Er það tví- lyft og vel vandað, 11x8 álnir að stjerð og bygt með samskotum innanhrepps. «Jvg) ■ Skólablaðið er nauðsynlegt og ómisssandi á hverju heimili landsins. Kennarar þurfa þess. í því eigaþeir að ræða saman, kynnast stjettarbræðrum sínum og systrum, frjetta af kenslu- starfi og kenslu-málum um land alt, bera fram fyrirspurnir sínar og safna þeim kenslumála-fróðleik, er blað- ið mun láta í tje. — Það á að vera þeim ómissandi málgagn og fjelags- tenging, í því eiga þeir að auglýsa, er þeir sækja um kenslustörf o. s. frv. Það mun verða leit á þeim kennara, er ekki þykist þurfa þess með, Prestar þurfa þess, því þeir eru sjálf- kjörnir eftirlitsmenn kenslumálanna, skólanefndarmenn víðast hvar, menn, sem stöðu sinnar vegna eiga að vera hvatamenn í öllu, sem að kenslumál- um* lýtur. Skólanefndir í héild sinni þurfa nauð- synlega á »Skólablaðimu að halda. Þar eiga þær að afla sjer þess fróð- leiks, sem hverri skólanefnd er nauð- synlegur, auglýsa eftir kennurum, til- boðum í skólahúsabyggingar o.s. frv. Til »Skólablaðsins« eiga þær að leita með allar fyrirspurnir sínar kenslu- málum viðvíkjandi, og mun þeim verða svarað eftir bestu föngum. Bændur og búalið og allir, sem hafa áhuga á mentun og velferð barna sinna, þurfa nauðsynlega á »Skóla- blaðinu« að halda; því hvergi ann- arsstaðar fá þeir eins gott tækifæri til að kynnast kenslumálum vorum og öllu því, er lítur að góðri upp- fræðslu og nauðsynlegu samstarfi kennara og foreldra, sem eraðalskil- yrði þess að vel fari. Skólablaðið er gefið út með styrk úr kennarasjóði, en útgefendur eru kennarar Flensborgarskólans. Kaupið þvl Skólablaðið! Það kostar 2 krónur á ári. »Skólablaðið« sendum vjer öllum þeim, er vjer álítum sjálfkjörna forvígis- menn kenslumálanna, og eru það kennar- ar og prestar. — Þar sem vér vitum eigi deili á kennurunum, sendum vér presti flein eintök og biðjum hann góð- fúslega senda þau kennurum sóknar sinn- ar. Væntum vjer, að móttakendur starfi kappsamlega að útbreiðslu blaðsins og komi þvf inn á hvert það heimili, er á- huga hefir á kenslumálum, og vart mun nú nokkur sú sveit á Islandi, að eigi sje þar einn bóndi eða fieiri, sem farinn er að hugsa um mál þetta. I slíkra manna hendur óskum vér, að »SkólabIaðið« komist. Er það von vor og vissa, að því verði víða vel tekið, og verði það hvervetna kærkominn gestur. 2 ókaútgefendur, sendið »Skólablaðinu* bækur yðar. Það mun geta um þær og mæla með öllu því, sem gott er og gagnlegt, jafnt kenslubókum sem öðrum. Augltjsið einnig bækur yðar í •>Skóla- blaðinu«. Það er sent að minsta kosti til tveggja eða þriggja manna í hverri sveit á Islandi, og engir standa betur að vígi tit að vekja eftirtekt á íslensk- um bókmentum og auka þekking manna á þeim en góðir og ötulir kennarar. Ein-nig ættu allir þeir, er kenslubæk- ur og kensluáhöld selja, að auglýsa í > Skólablaðinu-. Xennara r, sendið »Skólablaðinu« stuttar og gagnorð- ar fréttir — t. d. á brjefsspjaldi — af starfi yðar og starfssviði, skólafyrirkomu- lagi þar, líklegum breytingum, framkvæmd- um o. s. frv.; einnig um áhuga manna, álit og tillögur í kenslumálum, Mun það verða bæði til skemtunar og fróðleiks og stuðla mikið að því, að þjer kennarar kynnist hver öðrum og einnig kenslustarf- inu víðsvegar um land. Verðið þjer því að rita nöfn yðar og starfssveit fullum stöfuin undir fréttapistla þá, er þér sendið. Alt sem í blaðið á að fara — einnig auglýsingar — sendist til ritstjóra þess, og býr hann í Þingholtsstrœti 23 Reykjavik. Fjelagsskapur þessi er ungur enn hjer á landi, en sjest þó þegar nú, að hann á hjer fagra framtíðarbraut fyrir höndum. Hann er stofnaður eftir norsku sniði, og eru það sams konar fjelög þar, sem svo rækilega hafa starfað að þjóðarvakning Norðmanna á síðasta mannsaldri. Hraust og þjóðrækin mentaþjóð er takmark fjelagsskapar þessa, og felst það greinlega í lagaatriði því, er lýsir tilgangi fjelaganna:

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.