Skólablaðið - 15.01.1907, Síða 4
*
4
SKÓLABLAÐIÐ
2.
Tilgangur fjelagsins er :
1 Að reyna af alefli að vekja löng-
un hjá æskulýðnum til þess að
starfa fyrir sjálfa sig, land sitt og þjóð.
2 Að temja sjer að beita starfskröftum
sínum í fjelagi og utan fjelags.
3 Að reyna af fremsta megni að styðja
viðhalda og efla alt það þjóðlegt og
ramíslenskt, er horfir hinni ísl. þjóð
til gagns og sóma.
Að þessu takmarki starfa fjelögin
með fjölbreyttum fundum og íþrótta-
iðkunum. — —
Til þessa eru aðeins þrjú »ungmenna-
fjelög* á fót komin hjer á landi: »Ung-
mennafjel. Akureyrar,« stofnað um
nýár í fyrra, og er það þegar þjóð-
frægt orðið fyrir glímumenn sína;
»Ungmennafjel. Reyjavíkur,« stofnað
í haust 3. október með 17 fjelags-
mönnum, eru þeir nú um 90, og
»Ungni.t'jel. Fljótsdalshjeraðs,« stofnað
í vetur.
Fjelagsskapur þessi er hinn besti
og þarfasti, hvern vegseni á hann er
litið, og væntum vjer af honurn mik-
ils góðs fyrir land vort og þjóð.
Allir kennarar, sem ungir eru í
anda, eru sjálfkjörnir forvígismenn
»ungmennafjelagsskaparins« í starfs-
sveit sinni, og ættu þeir því f tæka
tíð að afla sjer frekari þekkingar á
honum.
Ritstjóri »Skólablaðsins« — sem er
formaður »Ungmennafjel. R.víkur,« —
svarar með gleði öllum fyrirspurnum
þessu máli viðvíkjandi - annaðhvort
í »Skólabl.« eða sjerstaklega, ef þess
verður óskað.
Mál þetta ei svo nákomið kenslu-
og fræðslumálum voruni, að enginn
kennari nje mentavinur niá láta það
afskiftalaust eða vera því ókunnugur.
Takmark »ungm.fjelaganna« er hið
sama, sem takmark alþýðuskólanna á
'áð vera.
Látum oss því fylkja allri œsku ís-
lands til samtaka starfa jyrir land
vort og þjóö.
Bókaverslun Guðm. Gamalielssonar
hefir sent »Skólablaðinu« bækur þess-
ar, er getið mun verða í næsta blaði:
Jón Ófeigsson: Kenslubók i Pýsku.
Otto /espersen; Stutt Ensk Mál-
lýsing.
Sigjús Einarsson : Skólasöngvar. I.
Kennari og stjörnufræðingur.
Norskurbarnakennari í fjallasveit ef:t
uppundir Dofrafjöllum, Sigurd Enebo
að nafni, hefir nýlega hiotið verð-
laun frá hinu þýska »Astronomische
Gesellschaft« (stjörnufræðisfjelagi) fyr-
ir uppgötvun óþektrar og breytilegr-
ar stjörnu af hinum svonefndu algól-
stjörnum, og einnig fyrir athuganir
á einstökum breytilegum stjörnum, er
eigi vóru til hhtar rannsakaðar áður.
Hefir hann í þýsku stjörnufræðis-
tí mariti skýrt frá athugunum sínum
síðan 1903 — á 14 stjörnum, og eru
2 þeirra óþektar áður.
Við þetta starf hefir hann fengist
í frístundum sínum (á nóttunni (!),
og hafði hann til þess að iáni lítinn
og ófullkominn sjónauka. Nú hef-
ir norskur háskólakennari í stjörnu-
fræði lánað Sigurði stóran stjörnu-
sjónauka og fylgir honum stjörnukort
rnikið; og nýlega heíir honum í við-
urkenningarskyni fyrir sjaldgæfa þraut-
seigju og áhuga verið sendur stór
sjónauki að gjöf, og er hann keyptur
af hinum svoneinda Nansens-sjóði
(kendur við Friðþjóf Nansen) og send-
ur Sigurði Enebo í haust síðastliðið.
Situr hann nú að líkindum á hverri
heiðskírri nóttu uppi í Dofrafjöllum
og dáist að fegurð Njólu með »nýj-
um augum< gegnurn sjónauka sinn.
eru hin nýútkomnu
Hjí j cí> ö m œ li
eftir
Matthías Jochumsson
1, —5. bd. í skrautbandi. Fœst hjá D.
Östlund, Rtykjavik, og hjá útsölumönn-
um Bóksalafélagsins út um land alt.
IJvaö
borgar David Östlund fyrir brúkuð,
ísienzk frímerki?
ALMENN FRÍMERKI:
Upphaíl. verð Með kon- ungsmynd Eldri. „ísland" Áprentnð „í gildi"
3 au. 2 au. 3 au. 15 au.
4 - 2 - 8 - 40 -
5 - 1 V 4 - 20 -
6 3 - 3 — ■7 -
10 1 V 4 - 10 -
16 - 6 - 6 - 40 -
20 - 5 - 3 - 20 -
25 - 14 - 25 25 -
40 - 12 - 10 - 40 -
50 - 35 - 50 65 —
100 - 80 - 135 180
200 - 160 -
500 - 425
ÞJ Ó NUSTUFR ÍMERKI:
Upphafl. verð. Mcð kon- ungsmynd ,Eldri. „ísland" Áprenfiið „í gildi"
3. - 2 - 10 - 10 -
4 3 - 10 - 12 -
5 - 3 - 8 - 7 -
10 - 6 11 11 -
16 12 - 40 - 40 —
20 - 14 - 22 - 25 -
50 35 - 70 - 60 -
»Rrír« (3) prent. yfir 3 rautt kr. 4,50
svart - 2.50
Tilboð uni sölu á brúkuðum og
óbrúk. skildinga-frímerkjum óskast.
ísl. bréfspjöld kaupast á 3 au. stk.
Menn út um land, sein vilja senda
mér frímerki samkvæmt þessum verð-
lista, verða að gá vandlega að því, að
merkin séu hrein og ógölluð. Laufa-
skurðurinn verður um fram alt að vera
óskemdur og eins hoinin.
Bezt er að láta merkin sitja á um-
slögunum, en klippa í kring um þau
nægilega langt frá brún merkjanna.
Andvirði írímerkjanna sendist um
hæl til seljanda.
Vilji menn borga andvirði »Fræ-
korná< með brúkuðum frínierkjum, þá
aru þeir beðnir Um að geta þess í
bréfi til mín.
D. Östlund, Rcykjavík.
Bpflf
H eimilisblað með myndum
kemur út í hverrri vikti-, kostar hér á landi
1 kr. 50 au., í Vesturheimi 60 cents.
Borgist fyrir 1. okt. Ursögn ógild nema
komin sé til útg. fyrir fyrsta okt. og úr-
segjandi sé skuldlaus fyrir blaðið.
Nýir kaupendur og útsölumenn gefi
sig fram. Útg. gefur betri sölulaun en
alment gjörist.
D. Östlund, útg., R.vik.
BóKaverslun
Guflin. Gamalíelssonar.
jlíýjar kenslubæfnír.
Jón Ófeigsson:
Kenslubók í Þýsku.
I Kostar í bandi kr. 3,00.
Bók þessari hefir þegar verið tekið
með fögnuði af öllum þeim, er fást við
þýsku-kenslu hjer á landi.
Otto Jespersen :
Stutt Ensk Mállýsing.
þýtt hafa Árni Þorvaldsson og Böðvar
Kristjánsson.
Kostar í bandi kr. 1,25.
Höfundur þessarar bókar er einhver
allra frægasti málfræðingur á Norðurlönd-
um. Einkum hafa kenslubækur hans rutt
sér til rúms við alla skóla í Danmörku,
þar sem enska cr kend, og víðar á
Norðurlöndum.
Skólasöngvar, /. hejti {Einrödduö lög.)
Verð 25 au.
2. hefti kemur innan skamms. Það
hefti verður tvíraddað; en þar næst keniur
3. hefti þríraddað, og loks ágrip af söng-
fræði.
Úlgefendur:
KBNNARAR FLENStíORGARSKÓLANS.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
HELGI VALTÝSSON.
Prcntsmiðja D: Östlunds.