Skólablaðið - 01.03.1915, Blaðsíða 16
48
SKÓLABLAÐIÐ
aö vera öðruyísi samið. Þaö hefði þurft, meðal annars, skýr-
ingu um það, mjög víða, í hvaða merkingu orðin standa, hvort
um eintölu er að ræða eða fleirtölu, o. s. frv.
Án slíkra skýringa er barnið jafnnær, þó að það flet.ti orðinu
upp og sjái í orðasafninu hvernig það er stafað þar. Barnið
er í efa um, hvernig það á að skrifa nafnorðið elska (hvort
heldur með e eða i). Það flettir upp í orðasafninu og finnur
þar bæði il.sk.aog e l ska, og bæði orðin nafnorð. Það er
því alveg jafnnær. Það er í efa utn, hvernig rita skuli sögnina
benda; flettir upp og finnur benda og binda (s.). Á
þvi græðir það ekkert. Það veit ekki, hvernig rita skal fleir-
töluorðið b ö s 1; flettir upp og finnur bæði b ö s 1 og b u s 1,
— og er jafnfrótt eítiri sem'áður, af þ.ví að orðasafnið gefur
enga aðra skýringu en þá, að bæði orðin séu nafnorð. Slik
dæmí mætti lengi háldá áfram að telja upp. Kverið úir og
grúir af þeim.
Þetta verður að télja aðal gallann á orðasafninu. Hinu var
við að búast að í það slæddust orð, sem mörgum þætti óþarfi
að nefná af þvi áð ekki verði á vilst, og aftur að í það vantaði
orð, sem öðrum virtist ástæða til að nefna. Um slíkt má lengi
deila.
Nýtt barnaskólahús á Álftanesi.
Álftnesingar hafa bygt sér nýtt og myndarlegt steinsteypu-
hús á B j a r n a s t p ð u m, sem er skólajörð, gefin á sinni tíð
af K r i-s’t.j á.n i Mathiesen á Hliði. Húsið var vígt og tek-
ið til afnota eftir áramótin í vetur. Tvær eru kenslustpfurnar,
og önnur ætluð til unglingakenslu. Þetta hafa Álftnesingar ver-
ið að hafast að í vetur: reisa sér skólahús sem kostar yfir io
þús. krónur, á sama tíma sem sumir vel stæðir hreppar í ágæt-
is landbúnaðarhéruðum eru að klípa nokkrar vikur af kenslu-
tímanum til að spara 30—40 kr. vegna striðsins og dýrtið-
arinnar,
Styrktarsjóður handa barnakennurum.
Stjórn sjóðSins véitti að þessu sinni þremur kennurum
styrk, 400, 300 og 100 krónur. Fleiri höfðu ekki sótt um styrk.
Útgefandi: Jón Þórarinsson. — Prentsmiðjan Rún.