Skólablaðið - 01.08.1919, Page 3

Skólablaðið - 01.08.1919, Page 3
SKÓLABLAÐIÐ 115 sem auðvitað var, að illir skólar gefist illa. Á hvern skóla verður og að lita með hliðsjón af því lifi og þvi ástandi, sem hann er vaxinn í. Alt ástand umhverfisins kemur fram í barnaskólanum, án þess að vera hans sök, og án þess að nokkur von geti verið til að nokkur skóli megnaði að sporna við því til hlítar. Börnin bera með sjer forina af götum hæjarins í skólann, málið, orðbragðið, hugs- unarháttinn, umtalsefnin. Sannast það og ekki síst á þeim, sem skólana sækja, að án er ills gengi nema heim- an hafi. Og því er það, að þar sem barnaskóli gengur hrapallega, og sje hann ekki því ver úr garði ger, þar þarf árciðanlega ekki að gera ráð fyrir mikilli heimilis- menningu eða merkilegri fræðslu á heimilum yfirleitt. Skólarnir eru mjög misgóðir, en vist mundi undantekn- ingarlaust taka vcrra við, ekki einasta um fræðsluna sjálfa, hcldur og um allan aga og uppcldi barna, cf skól- anna misti við; þar sem hvorugt gctur orðið öðru að verulegu liði, skólinn og heimilið, þar er heldur ekki við góðu að búast af heimilinu einu. Sá kosturinn væri þvi næsta hæpinn, að leggja árar í bát um skólahaldið, jafnvel þótt misjafnt gangi. Sumir tala að vísu um það, að geyma börnin óskemd til • unglingsáranna og kenna þeim þá. En hætt er nú við, að sú geymsla á sálargáf- unum gæfist misjafnlega, ekki síst í slíku menningar- leysi, að sæmilegur barnaskóli mætti ekki blessast. pað er vísasti vegurinn til að gera börn að bjálfum, sem aldrei geta neitt lært, ef námsgáfur þeirra cru vanrækt- ar i æsku, þegar næmið er mest, eða ef þau fá alt of litla andlega áreynslu. pað er hægt að skemma þau mcð því, að ætla þeim of lítið, engu siður en með hinu, að of- bjóða þeim. Og svo er það, t. d. um lesturinn, ekki óveru- lcgra nám, að hann verður að læra í bcrnsku. Sá mað- ur, sem ekki lærir vel að lesa á barnsaldri, verður aldrei

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.