Skólablaðið - 01.08.1919, Page 4

Skólablaðið - 01.08.1919, Page 4
SKÓLABLAÐIÐ xi6 læs, og auk þess ver talandi. Góð lestrarkensla er eina hjálpin gegn illu málfæri og úrkynjun tungunnar. Og þegar fjöldi heimila hregst í þessum efnum, hvað er þá til ráða? Margt hefir rcynt verið þeim til hjálpar, og verður flest að káki einu, nema helst fastir skólar. Og' víst er það, og það er mjög mikilsvert, að barnaskóla má stórbæta á skömmum tíma; það er að minsta kosti vinnandi vegur. En að bæta heimilin yfirleitt að nokkru ráði er öldungis ókleift, nema á löngum tima; það tek- ur margar kynslóðir. Og góðir skólar eru einn mikils- verðasti þátturinn til slikra menningarbóta, og bama- skólarnir ekki hvað sist. Almennir barnaskólar mega enn heita í bernsku, og þeir gjalda þess eins að mörgu leyti enn í dag, að þeir eru of mjög sniðnir cftir eldri skólunum, sem ætlaðir voru fulltíða mönnum. Menn hafa yfirleitt gert sjer mjög rangar hugmyndir um skilningsþroska barna og lítt val- ið þeim námsefni eftir því, hvað best væri við þeirra hæfi. Á síðustu áratugum hefir orðið stórkostleg breyt- ing á þessu víða um heirn, þótt rannsóknum manna og þekkingu á þessum efnum miði auðvitað stórum hrað- ar en framkvæmdunum á að endurbæta skólana. jia r er þungur róðurinn víða, svo að margur kennarinn er neydd- ur til að breyta í mörgu móti betri vitund við starf sitt. J>essu veldur ekki síst fjárþröng skólanna og kotungs- háttur í öllu, vegna skilningsleysis manna á nauðsyn þeirra. Sparsemi er að verðleikum lofuð, en stundum er það og kölluð sparsemi eða hagsýni, sem í rauninni er glæpsamlegt athæfi; sannast það of mjög á mörg- um skólum, eins og fleiri slíkum stofnunum, sem horfa til almenningsheilla, ef vel er, en tjóns og vandræða í mörgum efnum, ef óviturlega cr með farið. En aðfinslunum um barnaskólana er engu síður stefnt að „góðu“ skólunum, „fyrirmyndar“-skólunum, eða að

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.