Skólablaðið - 01.08.1919, Page 6

Skólablaðið - 01.08.1919, Page 6
ii8 SKÓLABLAÐIÐ uriim hefir gleymt, hafi orðið honum að engu. Eins og manni væri það t. d. einskisvert, að liafa lesið Landnámu með góðri hjálp og sæmilegum skilningi, þótt hann kynni hana ekki þaðan i frá. Hlútverk barnaskólanna er auðvitað það, að sjá börn- um fyrir þeirri kunnáttu, sem hverjum manni má teljast ómissandi þegar á barnsaldri, svo sem er lestur, skrift og almennustu atriði reiknings. En æðimikið af námi barna má engu síður vera bundið við líðandi stund, þess efnis að glæða athygli þeirra og skilning og' auðga hug- myndalíf þeirra og fegra, eftir því sem auðið verður. Börnin geta átt meira erindi i skólann en það eitt, að sækja þangað nokkra mola af borðum þekkingarinnar; skólinn á að vera, og getur verið, menningarstofnun, sem hafi í sem flestum efnum bætandi áhrif á þá, sem hann sækja, andlega og líkamlega, og sje hann það ekki, cða van- ræki það hlutverk sitt, mishepnast honum líka að fræða. pað er t. d. engu síður skólans verk að innræta barni al- mennustu mannasiði, kenna því að snýta sjer, ef þörf er á, — og það er næsta víða. Og góður barnaskóli bætir alt umhverfið. T. d. hefir lækniseftirlit í skólum víða hvar gerbreytt umhirðu á börnum, og þannig hefir skóla- gangan á ýmsan hátt vakið margt heimilið og marga foreldrana til meiri umhugsunar og metnaðar um þrifn- að barna sinna og sóma. Endurbætur í skólaskipun stefna nú ekki livað síst að því, að auka verklcgt nám, eða sjá fyrir likamlegum þrifnaði barnanna eigi siður en bókfræðslunni. Má þar til nefna fimleika og böð og hreinlæti, íþróttakenslu, húsverkakenslu fyrir stúlkur og margvíslega handavinnu- kenslu. Og hversu ómetanlegur menningarauki má ekki að slíku verða, þar sem sæmilega er á haldið? (Frh.)

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.