Skólablaðið - 01.08.1919, Síða 7

Skólablaðið - 01.08.1919, Síða 7
SKÓLAULAÐIÐ 119 Uppeldi. Eftir Steingrím Arason. III. Iðnlistir.* Þitt er mentað afl og önd, eigirðu fram að bjóða: hvassan skilning, haga hönd, hjartað sanna og góða. Stephan G. Stephansson. Til þess eiga skólar að vera, að kenna barninu listina að lifa. Til þess aS ná þessum tilgangi, verður aö gefa því frelsi til af lifa æskulífi sínu. Það þarf að gefa þvi þannig lagað um liverfi, að þaS læri að nota huga og hönd i samvinnu við aðra og að góðu takmarki. Það er að sönnu mikilsvert, að kunna mikið og vita mikið, en aðalatriðið er þó, að læra að nota þekkinguna, og þó er enn meira vert, að fá þá afstöðu gagnvart meðbræðrunum, þjóðfje- laginu, að hún knýi manninn til þess að nota þekkingu sína og mátt því til gagns. Verkleg notkun þekkingarinnar og sömuleiðis afstaöan við fjelagslífið hefir verið vanrækt i skólunum og aðaláhersla lögð á það að vita, stundum meira að segja á það að hafa eftir orð án hugsunar. Það er tiltölulega stutt síðan sú alda reis, að gera skólann að þjóðfjelagsstofnun, þar sem þær venjur eru festar — með- an tími er til — sem gera komandi kynslóö betri og hæfari en þá, sem riú byggir landið. Maðurinn getur ekki lært að verða þjóðhæfur, fjelagsnýt * Með orðinu iðnlistir er hjer átt við listir þær, sem aðallega miða að efnislegum notum, svo sem smí'ðar, saumaskapur, teiknun, leirbrensla o. s. frv. Hliðskipaðar við þær eru fagrar listir, þær, er einkum stefna r.ð því, að hrífa og glæða fegurðartilfinninguna, svo sem málaralist, höggmvndalist, ljóðlist, tónlist o. fl. Hjer verður að sönnu engin greini- leg takmarkalína dregin, því að iðnlistir geta verið fagrar og fagrar listir nothæfar.

x

Skólablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.