Skólablaðið - 01.08.1919, Síða 8

Skólablaðið - 01.08.1919, Síða 8
120 SKÓLABLAÐIÐ ur, nema hann fái a'ð lifa fjelagslífi. Maður lærir ekki að synda á þurru landi. Einu sinni var skóli bygður þannig, aö kennaranum var ætlaöur staöur í miöju herberginu, og voru skilrúm á milli barnanna, svo há, aö þau gátu ekkert samneyti haft. Tak- mark skólans með þessu fyrirkomulagi var auðsjáanlega það, að girða fyrir allan fjelagsskap meðal nemendanna. Þó að þessu líkt fyrirkomulag eigi sjer ekki stað nú á dög- um, þá er það altítt, að börn eru í skóla árum saman án þess að vita hvað gerist í næstu kenslustofum. Þó tíðkast nú sá siður víða í nýrri skólum, að hafa sam- komusal í byggingunni, þar sem börnin úr öllum skólan- um koma saman tvisvar i viku. Hafa þau þá búið sig undir að lesa þar upp, halda ræður, syngja, leika litla sjónleiki o. s. frv. Eru þessir áheyrendasalir einnig notaðir fyrir foreldra- fundi, myndasýningar og allskonar samkomur; verður skól- inn svo að miðstöð menningar og fjelagsskapar. Það tíðkast og, að börnin búi sig undir að fara inn í aðra bekki, til jsess að skemta og fræða; einnig bjóða þau hin- um börnunum inn til sín, til þess að sjá þar leiknar sögur. sem j>au hafa sjálf fært í leikbúning. f kenslustundunum er lögð áhersla á sjálfstæða framkomu í samvinnu og fjelagsskap. Börnin kappræða áhugamál sín. Þeim er kent að finna að á vingjarnlegan hátt og ]>o!a að- finslur; verður Jjað Jiví auðveldara, sem takmarkið er aug- ljósara og sameiginlegra öllum hópnum. Ekki er numið staðar við það, að koma á góðri samvinnu og fjelagsskap innan skólaveggjanna. Skólinn er sameinaður lífinu. Áhugamál eru flutt úr heimahúsunum og fjelagslífinu inn í skólann, og úr skólanum út í lífið. Skólaástandið cr gert j>annig, að börnin fá að taka þátt í viðlíka störíum og tlðkast í umhverfinu; opnast þeim svo dyr inn á öll svið fjelags- lífsins og þroskast skilningur þeirra á öllum þeim störfr.m, sem Jíar eru framin, en jafnframt fá þau meiri áhuga á ]>eim.

x

Skólablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.