Skólablaðið - 01.08.1919, Qupperneq 9

Skólablaðið - 01.08.1919, Qupperneq 9
SKÓLABLAÐIÐ X2I Þau læra aö viröa öll þjóönýt störf og fá samúö meö öllum stjettum og öllum starfsmönnum þjóðfjelagsins. Þau líta ekki öfundaraugum á auömanninn, heldur virða þau hann fyrir að hafa hrundið franx stórvirkjum. Þau fyrirlíta ekki verkamann- inn, þótt hann sje óhreinn og illa til fara, því að nú skilja þau, að hann tilheyrir sama fjelaginu og þau, og er að vinna því gagn. Alt virðist benda á það, aö í framtíðinni verði iðnlistir megin-námsefnið í barnaskólunum. Er börnunum með því opnað hlið inn að virkileika mannlífsins. Leik er smámsaman snúið upp í starf, án þess að barnið viti af því sjálft. Verö- ur þetta til þess að halda uppi áhuga barnsins og þaulsæknt eftir nýjum fróðleik og vaxandi leikni. Ætti þetta að geta komið i veg fyrir þá grát'egu staðreynd, að nemandi, sem kemur í skólann brtnnandi af áhuga og tilhlökkun, verði hundleiður á náminu eftir lítinn tíma, og verði þeirri stund fegnastur, þegar hann má henda frá sjer námsbókunum, til þess að oþna þær aldreí framar. Þaö er mikill misskilningur, að æt!a að iðnlistir sjeu að eins líkamleg æfing. Ef til vill cr ekkert námsefni hæfara til að vekia sjálfstæða hugsun. En það mun besti mælikvarðinn á alla kenslu, hve mikið er sjeð fyrir hugsun af nemandans hálfu. Iðn'istir eru nátengdar öllum öörum námsgreinum. Reikn- ingsnám t. d. er ekki að eins að veita leikni i að fara með tölur, heldur lifandi reynsluþekking á stærð, þunga og rúm- taki hluta, og jafnframt verömæti þeirra. Ætti þvi reiknings- námið að vera samfara mælingu og vigt. Hagfræði ætti einnig að kenna. Sumstaðar er það siður, að börnin fari í skemtiferð,. og er það einkurn til þess að afla þeim þekkingarundirstöðu í 'andafræði. Leggja þau þá fram aura til þess að kaupa fyrir nesti. Er fyrst samræða um hvað kaupa skuli, síðan fara þau sjálf í búð og kaupa til ferðarinnar. Eru slíkar kaupstaðar- ferðir lifandi kensla í reikningi og hagfræði. Er vel þess vert

x

Skólablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.