Skólablaðið - 01.08.1919, Side 11
SKÓLABLAÐIÐ
123
Alþýðufræðsla um uppeldismál.
A aðalfundi Hins íslenska kennarafjelags 1917 var samþykt
áskorun til Alþingis, um að veita fje til alþýðufyrirlestra um upp-
«ldismál, í líkingu við alþýðufræðslu stúdentafjelaganna. J7ing-
ið tók þessu vel og veitti þegar 500 krónur á ári í þessu skyni,
með því skilorði þó, að % fyrirlestranna væru haldnir í sveit, og
að ekki yrði greiddur ferðakostnaður af fje þessu.
Stjórn kennarafjelagsins á að annast framkvæmdir málsins.
Fyrir svona lítið fje er auðvitað ekki hægt að fá menn til að
fara fyrirlestraferðir, og er heldur ekki til margskiftanna, ef
sæmilega skyldi borga. En fjelagsstjórnin gerði í fyrra ráðstaf-
anir um fyrirlestra allvíða um land, en sumstaðar varð ekki úr
framkvæmdum, ýmsra orsaka vegna. J?ó er þess ekki getið að
fyrirlestur fjelli niður fyrir það, að ekki væri sótt.
pessir menn hafa haldið fyrirlestra árið 1918, samkvæmt
skýrslu kennarafjelagsins:
Magriús Helgason, skólastjóri (um barnakenslu og samvinnu
heimila og skóla) í Hrepphólum og að Húsatóftum, fyrir miklu
fjölmenni á báðum stöðum. (Fyrri fyrirlesturinn var sjerprentað-
ur og sendur öllum skóla- og fræðslunefndum; síðari fyrirlest-
urinn birtist í Skólablaðinu í vetur leið).
Helgi Hjörvar kennari (um nauðsyn andlegrar menningar og
kjör kennara og menningarfrömuða) á íþróttamóti á Hvítár-
bökkum, að Kolbeinsstaðakirkju í Hnappadalssýslu og í Stykkis-
hólmi, sömuleiðis fyrir miklu fjölmenni.
Asmundur prestur Guðmundsscn (um barnssálina og þroska
hennar) að Helgafelli og í Stykkishólmi, fyrir hátt á 2. hundr-
aði áheyrenda.
Snorri Sigfússon, kennari á Flateyri, (um sálarþroska barna,
heimili cg skóla) að Holtskirkju í Onundarfirði.
Frú Aðalbjörg Sigurðardóttir (um kensluaðferðir dr. Maria
Montessori) á Grund í Eyjafirði, að Reistará í Arnarnesshreppi