Skólablaðið - 01.08.1919, Page 13

Skólablaðið - 01.08.1919, Page 13
SKÓLABLAÐIÐ að leita sér lækninga viö innvortis meinsemd, er hann haföi gengiö meö lengi. Holskuröur var reyndur en dugöi því miður ekki, og ljest Ketill á Landakotsspítala 6. maí 1918. 14. s. m. var hann jarösettur i kirjugaröi Reykjavikur aö viöstöddu fjöl- menni, og lagöur í sömu gröf, sem vinur hans, og fyrverandi sveitungi, Tryggvi bóndi Guðmundsson, haföi veriö jaröaöur í fáum dögum áöur. Vandamenn og vinir hafa reist beim þar hautastein. Ketill sál. haföi gert kenslu aö aöallífsstarfi sínu og hans seinasta verk í banalegunni var aö arfleiöa barnaskóla Kirkju- hvammshrepps aö mestum hluta eigna sinna. Uröu þaö rjettar 4000 krónur, er komu i hlut skólans, og má þaö teljast allveglegur stofn. Fræöslumálastjóra er falið í arfleiösluskránni, aö gera skipulagsskrá fyrir sjóöinn, og mun hún verða birt almenningi á sínum tíma. Ketill sál. var kominn af hinni alkunnu ætt Hrólfs sterka lögrjettumanns á Álfgeirsvöllum, sem margir munu kannast viö. * Þetta eru í sem fæsturn orðum helstu æfiatriði Ketils sáluga. Hann var fyrir margra hluta sakir merkur maöur. Þaö er gott að minnast hans á þeirri flysjungsöld og framhleypnis, sem nú lifum vjer á. Stiltur, gætinn, þjettur á velli og þjettur í lund, þrautgóöur og tryggur. Honum var kenslan og barna- uppeldiö alvörumál, eins og alt, sem hann lagöi hönd á. Dán- argjöf hans ber þess greinilegt vitni, aö hugur hans og hjarta fylgdi skólastarfinu. í arfleiösluskránni segir svo, að sjóönum, sem stofnaöur er með henni, skuli variö til bókakaupa handa unglingum, sem lúka fullnaðarprófi viö barnaskóla þann, sem hann haföi unniö við. Hann vildi halda áfram að gróöursetja góöar hugsanir eftir sinn dag, og betra veganesti gat hann ekki kosið unglingunum en góöar bækur. Hugsunin er fögur og góö til eftirbreytni fyrir aðra. G. + J-

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.