Skólablaðið - 01.08.1919, Page 14

Skólablaðið - 01.08.1919, Page 14
I2Ó SKÓLABLAÐIÐ Skólar. (Úr skólaskýrslum 1918—19 flest). Eiðaskólinn. GuSgeir Jóhannsson, kennari í Vík, er ráðinn aSstoSarkennari að EiSum, settur fyrst um sinn, og er sú ráð- stöfun í samræmi viS það ákvæði í launafrumvarpi stjórnar- innar, að enginn geti fengið veitingu fyrir kennaraembætti við æðri skólana, nema hann hafi fyrst verið settur til að gegna því, í eitt ár að minsta kosti. Þessir sóttu um stöðuna aðrir: Arnór Sigurjónsson, Guð- mundur Ólafsson frá Sörlastöðum, Magnús Björnsson f. rit- stjóri, Ólafur Kjartansson úr Vík, Sigurður kennari á Hóluns Sigurðsson og Þórir Guðmundsson frá Gufudal. Guðgeir er bóndason úr Grafningi, en fóstursonur Þorláks alþingismanns í Fífuhvammi og þeirra hjóna, tók kennara- próf 1912 en dvaldi við nám í Englandi og ferðaðist um Sviss og Þýskaland sumarið 1913. Hann hefir staðið fyrir hjeraðs skóla Vestur-Skaftfellinga í Vík og Þykkvabæ, og hvarvetna getið sjer hinn besta orðstír. Endurreisn Eiðaskólans er fyrsta rækilega sporið á sjálf- sagðri framtíðarbraut: að reisa. hjeraðaskóla, þjóðleg höfuð- ból, sem ungmennum sveitanna þyki meiri fremd að sækja til en í sjóþorpin. Það er því mikils um vert, að þessum skóla farnist vel. Og það er fylsta ástæða til að gera sjer bestu vonir um skólann í höndum þeirra manna, sem hann er nú falinn, Mentaskólinn. í honum voru í vetur leið 144 nemendur, er flestir voru, en rúmir 20 heltust úr lestinni frá hausti til vors. Nemendur voru álika nrargir i gagnfræðadeild og lærdóms- deild, en i bekkjum flestir í n og 4., og var þeim báðum skift í tvent. Gagnfræðaprófi luku 20 skólanemendur og n utan skóla, en stúdentsprófi 29, 17 skólanemendur og 12 utan skóla, og höfðu allir verið í lærdómsdeildinni áður, en 8 af þeinr lokiö 5. og 6. bekkjar nárni á einum vetri. Elsti stúdentinn var 27

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.