Skólablaðið - 01.08.1919, Síða 15
SKÓLABLAÐIÐ
127
ára, flestir um tvítugt, en tveir ekki fullra 17 ára. í stúdenta-
hópnum var engin kona í þetta sinn. — 25 luku inntökuprófi
í 1. bekk í skólalok.
Gagnfræðaskólinn á Akureyri. Þar voru 93 nemendur síö-
astliSinn vetur, og- luku gagnfræðaprófi 22, auk 2 utan skóla,
en 14 inntökuprófi í skólalok. KostnaSur í heimavistum varS
2,87 kr. á mann á dag, (en eldsneytiskostnaður var þvi nær
enginn, kolin gefin af einum manni).
Um sókn aö skólanum segir skóiameistari í skýrslu sinni:
„ÞaS er eins og unglingunum og aöstandendum þeirra miklist
engir erfiSleikar, þegar um skólasókn er aö ræöa. Ætti þessi
mentunarþrá æskulýösins aS vera þingi og stjórn nægileg hvöt
til þess aS leggja alt kapp á aS gera skólana svo úr garði, aS
þar væri eitthvaS verulegt aS græSa til þjóöþrifa.‘‘
Flensborgarskólinn. Nemendur voru 54, en einir 6 luku l^urt-
fararprófi. Skólinn misti tvo kennara í vetur var, annan, Lárus
Bjarnason, aS Akureyrarskólanum, en hinn, sjera Janus Jóns-
son, vegna veikinda. En guSfræðideild Háskólans hljóp drengi-
lega undir bagga og sendi skólanum þá Ingimar Jónsson, stud.
theol., og Freysteinn Gunnarsson, guSfræSikandídat, og þóttu
báSir eiga gott erindi aS skólanum. BáSir hafa þeir og lokiS
kennaraprófi viS kennaraskólann.
Kvennaskólinn. Þar voru yfir 90 námsmeyjar, þa-' af 24 í
hússtjórnardeildinni. 48 voru nýjar, en mörgum varS aS synj.v
aSgöngu. 15 tóku burtfararpróf. Leikfimi, söng og hjúkrunar-
kenslu hefir orSiS aS fella niSur 2 síSustu ár, en 1. bekk í 3 ár,
„þar eS hagur skólans var svo þröngur".
Blönduósskólinn. ÞaS kom til orSa í vetur, aS breyta hon-
um í almennann alþýSuskóla, en hitt varS þó aS ráSi, aS halda
honum áfram í sama sniSi, og hefir veriS auglýst eftir tveimur
kenslukonum aS skólanum. Eins og gerist um slíkar auglýs-
ingar eru kjörin ekki freistandi, en kröfurnar þó allharSar.
Út af þessu flytur kvennablaSiS „19. júni“ þarflega hugvekju,
ber saman auglýsingarnar um kjör kenslukvenna og síldar-