Sovétvinurinn - 01.07.1934, Qupperneq 16
ISovétvinurinn]
]\ýtt!
Bezta ráðið til að geyma góð-
ar ræður og senda þær út um
land er að tala þær inn á
SILFURPL0TU.
Spyrjist fyrir í
Hlj óð r itunar stöð
Hljódfærahússins
Bankastræti 7. Rvík.
Ný sendinefnd í haust.
Sovétvinafélaginu gefst enn kostur á að senda 5
manna nefnd í haust til Sovétríkjanna. Að þessu
sinni verða fyrst og fremst bœndur og sjómenn fyrir
valinu. Nefndin leggur af stað héðan um miðjan
október, en öllum undirbúningi, vali mannanna og
fjársöfnun verður að vera lokið fyrir 1. október.
Sovétvinir um allt land eru áminntir um, að líta
ekki á það, þó að langur tími sé til stefnu, heldur
hefja þegar í stað að einhverju leyti undirbúning
fararinnar: skýra tilgang hennar og nauðsyn fyrir
kunningjum sínum, vekja áhuga fyrir henni, finna
heppilega menn í sendinefndina o. s. frv. Um miðj-
an ágúst sendir Sovétvinafélagið út söfnunarlista,
eins og að undanförnu, og treystir það öllum með-
limum sínum og öðrum, er áhuga hafa fyrir þessu
máli, að bregðast við skjótt og vel og safna í tæka
tíð nægilegu fé, svo að nefndin geti koinizt full-
skipuð.
Verndið Sovétríkin!
Stríðið gegn Sovétríkjunum er nú undirhúið af
meira kappi en nokkru sinni áður. Það er þegar
myndað bandalag hins alþjóðlega fjármálaauðvalds
til árásar á Sovét-Rússland. Forustuna í því banda-
lagi hafa Japan og Hitler-Þýzkaland, en England
styður þau. Japan gerir nú hverja tilraunina af ann-
ari til þess að æsa Sovétríkin til ófriðar, með viku-
legum árásum á austurlandamærum þeirra. En Rúss-
ar láta ekki egnast, heldur fletta jafnharðan ofan
af fyrirætlunum Japana. Fasistastjórn Þýzkalands
leitar opinberra samninga við önnur ríki um hern-
að á hendur Ráðstjórnarríkjunum. Pólland, Tsche
choslovakia og fleiri lönd eru dregin inn í þetta
hernaðarbrugg. Jafnframt þessu skerpast einnig mót-
setningar auðvaldsríkjanna innbyrðis, svo að stjórnir
sumra þeirra, t. d. Frakklands og Bandaríkjanna,
telja sér vænna, minsta kosti á yfirborðinu, að halda
frið við Sovétríkin í bráð. En öll vígbúast auðvalds-
ríkin af ofurkappi. Sovétríkin ein halda uppi bar-
áittu fyrir friði. Það er þeim að þakka, ásamt bylt-
ingarsinnuðum verkalýð heimsins, að heimsstyrjöld
hefir ekki löngu brotizt út. Styrjöldin, sem verið
er að brugga, er árásarstyrjöld auðvaldsins á verka-
lýð heimsins. Henni er beint gegn Sovétríkjunum,
af því að verkalýður heimsins á þar höfuðvígi sitt.
Það vígi þarf að vinnast, ef takast á enn um skeið
að haida niðri frelsisbaráttu verkalýðsins. Sovétríkin
og verkalýður heimsins eru samherjar. Sovét-Rúss-
land, ásamt Sovét-Kína, er eina handaríki verka-
lýðsins í stéttabaráttu hans. Verkalýðnum er frið-
urinn fyrir öllu, því að hann blæðir sárast í styrj-
öldum auðvaldsins. Sovétríkin eru fyrsta verklýðs-
ríkið og jafnframt fyrsta friðarríkið. »Kapítalisminn
er stríð, sósíalisminn er friður«. Verndun Sovét-
ríkjanna, ásamt baráttunni gegn auðvaldinu, er eina
tryggingin fyrir friði. Verkalýður allra landa, allar
starfandi stéttir, allir friðarvinir, verða að mynda
traustan varnargarð um Sovétríkin.
Lækkun húsaleigu í Sovétríkjunum.
I Sovétríkjunum greiða menn húsaleigu lilutfalls-
lega af launum sínum, 3 8%. Maður með 100 rúblna
Jaun á mánuði borgaði aðeins 3 rúblur fyrir íhúð.
En 15. júní 1 sumar voru gefin út lög um 10—80%
lækkun húsaleigu fyrir þá, sem ekki hafa yfir 145
rúblur í kaup mánaðarlega.
Mikið úrval al* ■
ágætuni löitipum
ii v ii pplckii). ■
Skoðið og kaupið með-
an nógu er úr að velja.
RAFTÆKJAVERZLUN
EIRÍKS HJARTARSONAR
LAUGAVEG 20 B. SÍMI 4690.
16