Sovétvinurinn - 01.05.1935, Side 2
[Sovétviiiurinn]
»Sovétviiiuriitii«,
blað Sovétvinafélags Islands, kemur út ann-
an hvern mánuð. Askriftagjald er 2 krónur.
Verð þessa blaðs 50 aurar.
AFGREIÐSLA: Skrifstofa Sovétvina-
félags Islands, Lækjargötu 6. —
Reykjavík. — Pósthólf 392.
Ábyrgðarmaður: KRISTINN E. ANDRÉSSON
PRENTSMIÐJAN DÖGUN — REYKJÁVÍK
Efni þessa blaðs er m. a.:
Hið sanna lýðræði, Björn Franzson.
Kvenþjóðin rís til vegs og virðingar.
Baráttan gegn trúarbrögðunum, Þórbergur
Þórðarson.
Byr í segl friðarins
1. maí,
máttur og fögnuður |)ess ilags vex með hverju ári í Sovétríkjun-
um. 1. maí kemur verkalýðurinn frnm í öllu sínu velili. Það getur
enginn, sem ekki hefir sjálfur reynt, gert sér grein fyrir hiniim ó-
segjanlegu áhrifum hans. Þau þurrka burtu hinn Ieynrlasta efa um
það, í hverra höndum framtíðin er.
Eins og að undanförnu streyma nú verkamannasendinefndir víðs-
vegar að og þúsundir ferðamanna til Moskva til þess að taka þátt
í hátíðafagnaðinum 1. maí. Á þessum degi tengist allur verkalýður
heimsins, er um framtíð sína hugsar, í fullkomið bræðralag. Hvar
í heimi, sem 1. maí er haldinn hátíðlegur af verkalýðnum, beinist
hugur verkalýðsins til Sovétríkjanna, sem eru föðurland hans, vígi
og traust.
Frá So vét vinaíélagi n u.
Á þessu vori
fer engin sendinefnd til Sovétríkjanna. Sjómenn hafa ekki p;etað
tekió jiátt í vornefndunum. Leggur miðstjórn Sovétvinafélagsins því
áherzlu á, að koma héldur ót sendinefrid næsta haust, með sjó-
mönnum og bændum. Er það að vísu mikill skaði, að nefndir
skuli ekki geta farið þéttar. En hinn mikli ferðakostnaður gerir
okkur þetta svo örðugt. Þó ætti fyrir næsta haust, með þeim pen-
ingum, sem þegar eru í sjóði, að vera auðvelt að safna til 5
manna nefndar.
Fjöldi umsókna hefir Sovétvinafélaginu borizt, en þó flestar frá
liændum. Margir sækja um að fá að dveljast lengur en nefndirnar
standa við. En mönnum til leiðheiningar skal þess getið, að [>\'í
verður ekki við komið. *
Eftir unisóknunum að dæma, ættu að geta valizt beztu menn
til næstu sendinefndar.
Til kaupcnda Sovétvinarins.
Sökurn íjárhagsörðugleika er Sovétvinurinn að þessu sinni á eftir
tímanum. Eru kaupendur hans vinsamlega Iieðnir afsökunar á |>eim
drætti, sein orðið liefir. En um leið vill ritstjóri hlaðsins beina
þeirri áskorun til allra, sem nokkurs þykir vert um Sovétvininn,
að þeir greidi hann skilvíslega og safni að honum nýjum kaup-
endum. Innan urn allt það moldviðri af villandi fregnum, sem
borgarablööin þyrla upp um Sovétríkin, er ekki vanþörf á riti, sem
flytur sannar fregnir þaðan. Við Sovétríkin eru tengdar allar vonir
mannkynsins um bjartari framtíð. Sú ábyrgð hvílir á hverjum sovét-
vini, að hann starl'i daglega að því, að auka kynni almennings á
Sovétríkjunum. Einn þáttur í því starfi er að útbreiða Sovétvininn.
Ef hann á að geta komið út reglulega framvegis, verður kaupenda-
tala hnns að tvöfaldast.
LSSR im Bau.
Sovétvinurinn vill vekja athygli á þessu fagra og glæsilega mynda-
riti. Fyrsta heftið af þessu ári er nú nýkomið. Það sýnir mymlir
af flugvélaiðnaði Sovétríkjanna.
Nokkur hefti af fyrra árgangi eru ennþá til sölu á skrifstofu
Sovétvinafélagsins, Lækjargötu 6.
Oft hefir verið spurt eftir ritinu á ensku, og skal þess því getið,
að nú er það einnig koinið á því máli.
Gcrisí kaupendur að USSR im Bau.
Gerist haupendur að »Sovétvininum«.
Frá 7. nóv. síð-
astl. Upplýst
torgið við
Stóra leik-
I úsið í
Moskva.
2