Alþýðublaðið - 19.01.1965, Blaðsíða 13

Alþýðublaðið - 19.01.1965, Blaðsíða 13
Er nokkur hræddur... Framhald af 7. síðu. ist skilningur leikstjóra og Helgu Valtýsdóttur á hlutverki Mörtu, stöðu hennar í leiknum, varla fullnægjandi. Yfirdrottnun Mörtu, blóðsugueðli hennar, er engan veginn nógu skilmerki- lega lýst í upphafi; þar koma rétt venjuleg, hversdagsleg hjón til móts við okkur; og þar með raskast upphafs-afstaða þeirra innbyrðis og rökvísin í byggingu leiksins. Fyrir vikið varð allur fyrsti þáttur of dauflegur, sam- hengislaus; sýningin komst varla á skrið fyrr en skriðið hefur til skarar með hjónunum í lok þátt- arins. Eftir það auðnaðist henni að visu sannfærandi tónn, jöfn reisn til loka; og lokaatriði sýn- ingarinnar gerðu þau Róbert og Helga ákaflega fallega, með öllu sannfærandi. En bersýnilega er það ofsinn, ástríðan í fari Mörtu, sem bezt er að skapi Helgu Val- týsdóttur, og svo uppgjöfin sem er hin hlið ástríðunnar; hún skilaði miklu miður sjálfbirg- ingshætti Mörtu, illvilja henn- ar, óbilgjörnu háði og fyrirlitn- ingu á karlmönnunum umhverf- is hana, öllu lífi sínu. En Marta Albees er gerð af öllum þessum þáttum i senn. Róbert Arnfinnsson vann miklu afdráttarlausari sigur í sínu hlutverki: Georg hans galt að vísu leikstjórnarinnar i fyrsta þætti; en hann var þar fyrir al- veg réttsköpuð persóna, undir- okaður menntamaður í frama- þjóðfélagi, hugvera móti kyn- verunni Mörtu. Þau eru livort annars andstæða, óðskiljan- leg og ósættanleg í senn og bæði jafnsek ,um örlög sín; þessum dulkynjaða skilningi tókst þeim Róbert og Helgu þrátt fyrir allt að miðla þegar á leið leikinn. Það var ekki sízt að þakka næmum skilningi Róberts Arnfinnssonar á öllum tilbrigð- um Georgs, vanmætti hans, ólik- . ipdalátum, raunverulegum styrk þegar á reynir. Gísli Alfreðsson og Anna Her- skind voru ungu hjónin í leikn- um, Mick og Honey, í senn á- horfendur og þátttakendrrr í við- ureign þeirra Mörtu og Georgs og með nokkrum hætti spegil- mynd þeirra. Afstaða þeirra tveggja innbyrðis og út á við, til hinna eldri, markar enn eitt spennusvið leiksins, tepurstúlk- an gegn hinni lífsþyrstu, full- . þroska konu, sagnfræðingur gegn líffræðing, innisetumaður gegn íþróttamanni, og tókst furðuvel að gefa það til kynna í sýningunni. Anna Herskind þreytti hér frumraun sína sem gaf hin beztu fyrirheit um leik- konuna; Honey hennar var tví- mælalaust réttmótuð persóna, ó- þvinguð og mjög hæfilega bros- leg. Gísli Alfreðsson átti af- bragðsgóð atriði móti Róbert í öðrum þætti; en auðnaðist þó varla nógu heilleg, útfærð lýs- ing hins upprennilega vísinda- og íþróttagarps; persónumótun hans brast eitthvert innra sam- hengi sem torvelt er að skil- greina. Þorgrímtir Einarsson gerði snyrtileg leiktjöld um sýn- inguna sem í heild sinni er ein- hver liin markverðasta sem Þjóðleikhúsið hefur flutt okkur lengi; hefur Edward Albee nú reynzt báðum leikhúsunum happagestur mesti í vetur. ★ ATHUGASEMD UM ÞÝÐINGAR. Jónas Kristjánsson þýðir Hver er hræddur við Virginíu Woolf og leysir það vandaverk af hendi svo undrum sætir. Málfar leiks- ins er í senn ótrúlega grófgert, berort, og ferskleg, hnitmiðuð og hnyttin sviðsræða sem hvergi má bregðast eigi leikurinn að komast til skila. Jónasi hefur auðnazt að skapa leiknum sam- fellt lifandi málfar á íslenzku, mjög hæfilega klúryrt, — þó vitaskuld sé ógerningur að skila á íslenzku allri grófgerð hans í hálfyrðum^ myndmáli og orða leikjum á frummálinu. Gerist nú Jónas einhver snjallasti þýðandi okkar fyrir sviðið; og er vonandi að leikhúsin eigi enn eftir að njóta margra góðra verka hans. En að lokum er vert að spyrja hvaða stefnu leikhúsin liafi í Frh. af 6. síðu. úm ástandið 1980 eru skelfi- legir. Hér fara á eftir tölur um fólks- fjölda í ýmsum lieimshlutum og löndum eins og manntalsskrif- stofan í Washington áætlar þær fyrir árin 1964 og 1980 (í millj- ónum); 1964 1980 Norður Ameríka 211 267 M,- og S.-Ameríka 236 374 Afríka 303 449 Asía 1 843 2 404 Evrópa 443 479 Sovétríkin 220 278 Ástralía og Kyrra- hafseyjar 18 23 Ailur heimurinn 3 283 4 274 Tölumar skelfa vissulega, og nú er eftir að vita hve fúsir menn eru til að taka ábendingum. FiLTBBS MAOC IN U.8 A. LI6G6TTÍ MY6R6 TOBACCO CO. meðferð erlendra nafna á sýn- ingum sinum. Það er hvimleitt að heyra orðskrípi eins og Dsjordsj og Honní -)eða Onní) notuð á sviðinu með jafnvönduðum texta og þessari þýðingu Jónasar Kristjánssonar. Georg er hins vegar gott og gilt nafn á ís- lenzku; gælunafnið Honey má auðveldlega þýða. Er ekki sjálf- sögð sú stefna að færa nöfn til íslenzks framburðar, sé það á annað borð unnt. Og það er hægt í þessum leik. — Þessi umsögn varð í fyrsta lagi óhóflega síðbúin. Nú er hún að auk orðin óhóflega löng. Mál er að linni. — Ó.J. safnið og sé það mál lagalega mun ljósara. Það er ríkiseign, sem ríkið ræður yfir. Hin ágæta bók Poul Möller endar á þessum orðum: Ekki er hægt að setja rökin með eða móti afhendingu hand- ritanna á vogarskálar. Einn leggur áherzlu á það, sem ann- ar telur engu skipta. Hver verð- ur að mynda sér eigin skoðun um málið. Ole Malmquist. „Lee“ Vinnuföt Hin þekktu „Lee‘ vinnuföt eru komin aftur í öllum stærðum. Geysir hf. , Fatabúðin. BIFREIÐA TRYGGING SKIPAUIGfcRÐ RIKISINS Herðubreið fer austur um land til Kópaskers 23. þ.m. Vörumóttaka þriðjudag og mið vikudag til Djúpavogs, Breið- dalsvíkur, Stöðvarfjarðar, Mjóa- fjarðar, Borgarfjarðar, Vopna- fjarðar, Bakkafjarðar, Þórshafn- ar og Kópaskers. Farseðlar seldir á þriðjudag. Herjólfur Og fer til Vestmannaeyja Hornafjarðar á miðvikudag. Vörumóttaka til Hornafjarðar í dag. BIFREIÐAEIGENDUR: Bjóöum yður dbyrgðar og kaskó- tryggingu á bifreið yðar. HEIMISTRYGGING HENTAR YÐUR HRYGGINGAFELAGIÐ HEIMIRf LINDARGATA 9 SIMI 21260 SENDISVEINN óskast. — Vinnutími fyrir hádegi, Alþýðubiaðið Sími 14 900. vantar unglinga til að bera blaðið til áskrif- enda í þessum hverfum: Hverfisgötu Laugaveg efri og neðri. Högunum Laugarás Lönguhlíð Barónsstíg Lindargata Seltjarnamesi Framnesveg Skjólin Rauðarárholti Bergþórugötu Afgreiósla Aiþýðublaösins Sími 14 900. NAUÐUNGARUPPBOÐ Eftir kröfu innheimtumanns ríkissjóðs og fleiri verða eftirtaldar bifreiðar seldar á nauðungaruppboði sem fram fer við Bílaverkstæði Hafnarfjarðar miðvikudaginn 20. þ.m. kl. 2 sd„ G-891, G-1530, G-1643, G-1953, G-2030, G-2772, R-10382. Greiðsla við hamarshögg. Bæjarfógetinn i Hafnarfirði. ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 19. janúar 1965 |,3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.