Alþýðublaðið - 17.03.1965, Qupperneq 9
■MiiisiBiffliireitiiiiiMiiifflOiiiLiiHiiími’noniiiiriiinniiniiinaiiiMiiMmiuiiiiiiiiiiiiiininiiiiiiíiiiiiMiiiiiniiiiniinifnniiiiti’iiiimiiiiniiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiniiiiiiiiiilnininiiiinnHiiiiiinMkiiiniiiiHiiiiiiiiiiifiíiiiiiiiiiiiHniiiiiiiiHHnnHiiniíiiiiiiiiiiiniiiiiMíiMiiniiiiminM
Endurbóta börf við jj
Suðurlandsbraut \
Opið bréf tii borgaryfirvalda frá Framfarafélagi Seláss og 1
Árbæjarbíetta
Reykjavík, 11. marz 1965.
VIÐ leyfum okkur hér með
að tilkynna yður að eftirfarandi
tillögur voru samþykktar með
samhljóða atkvæðum fundar-
mánna á aðalfunöi félagsins 28.
febrúar 1965:
„Aðalfundúr ' F.S.Á. haldinn
28. febrúar 1965 leyfir sér að
bera fram eftirfarandi kröfur
við borgaryfirvöld Reykjavíkur:
1. Að fyrirhugaðri rafmagnslýs-
ingu á Suðurlandsbraut frá
Elliðaám að Rauðavatni verði
nú þegar hrundið í fram-
kvæmd.
2. Að meðfram framangreindum
vegarkafla verði gerðar mal-
bikaðar eða steyptar afmark-
aðar brautir fyrir hjólríðandi
og gangandi vegfarendur.
3. Að hámarkshraði bifreiða á
þessum vegarkafla verði lækk-
aður úr 60 km. niður í þann
hámarkshraða, sem gildir ann-
ars staðar í þéttbýli í Reykja-
vík. Jafnframt verði þeirri
reglu framfýlgt og allir þeir,
sem gerast brotlegir við hana
látnir sæta ábyrgð samkvæmt
gildandi umferðalögum.
4. Að hinni miklu umferð Suður-
landsvegarins verði hið fyrsta
bægt frá - þessu sívaxandi í-
búðahverfi. — Hraðað verði
staðsetningu og lagningu hins
fyrirhugaða nýja Suðurlands-
vegar, enda verði hann ekki
í nánum tengslum við þessa
byggð.
5. Að hið allra bráðasta verði
staðsett verzlun á þessu svæði,
byggðarmegin við Suðurlands-
brautina.
6. Að uppgreftri úr skurðum, sem
nú er unnið við og öðrum
framkvæmdum við þá, verði
þannig hagað, að þær á engan
hátt skerði eða gangi út á
það litla brautarrými, sem nú
er á fyrrgreindum hluta Suð-
urlandsbrautarinnar.
7. Að allir þeir opnu sljurðir og
húsgrunnar, sem eru og verða
kunna hér í hverfinu, verði
rækilega merktir og afgirtir,
svo börnum stafi ekki hætta
af þeim.
8. Að strangt eftirlit verði sett
með grjótflutningum frá grjót-
námi borgarinnar, svo að hið
tíða grjótkast af flutningabíl-
um þess geti ekki átt sér stað.”
Með tilvísun til eftirfarandi
samþykktar, sendri borgarráði
Reykjavíkur 9. marz 1964, svo-
Iiljóðandi:
„Aðalfundur Framfarafélags
1 Seláss og Árbæjarbletta 23. febr.
1964, skorar á háttvirt borgar-
ráð Reykjavíkurborgar, að það
hlutist til um að götulýsing frá
Árbæ að Rauðavatni verði komið
á sem allra fyrst.”
í greinagerð segir:
„Hægt er að benda á, að á þess
um kafla vegarins hafa orðið
mjög alvarleg slys, þar á meðal
a.m.k. eitt slys, er leiddi til
dauða, og má rekja mörg þeirra
til ónógrar götulýsingar.”
í svarbréfi borgarstjóra dags.
29. apríl 1964 segir m. a.:
-----„Borgarráð samþykkti, að
í framkvæmdaáætlun rafmagns-
veitunnar á yfirstandandi ári og
næsta ári, verði gert ráð fyrir
rafmagnslýsingu á Suðurlands-
braut frá Elliðaám að Rauða-
vatni.”
Okkur er ekki kunnugt um að
enn hafi verið byrjað á fyrr-
greindri lýsingu á þessum hluta
Suðuriandsbrautar og ekki orðið
vör neinna framkvæmda í þá
átt. Hörmum við stórlega þær
miklu vanefndir sem þegar eru
orðnar á þessu sjálfsagða ör.vgg-
ismáli okkar sem búum í þessu
bæjarhverfi.
Hinn 27. jan. sl. varð á þess-
um slóðum hörmulegt dauðaslys,
sem greint var frá í blöðum og
útvarpi og því ekki rakið frekar H
hér.
Orsök þess slyss má án efa .g
rekja til þess ógurlega myrk- j
urs, sem ríkir yfir allri umferð H
hér á Suðurlandsbraut.
Þegar ekið er áleiðis út úr j|j
bænum að kvöldi eða nóttu til, ||
eftir Suðurlandsbraut og komið m
yfir brýrnar á Elliðaánum er eins J
og farið sé inn í kolsvartan - ■
vegg. Bílljósin hverfa í kolsvart ■
malbikið. Vegamót Suður- og jj
Vesturlandsvegar er stundum ■
illt að greina. Þannig er Suð- H
urlandsbrautin öll frá Elliða- :;j
ám algjörlega óupplýst. íbúða- J
hverfið fyrir ofan Árbæ sem H
nefnt er Selás og Árbæjarblett- j|
ir verður að nota Suðurlands- jl
brautina sem tengilið innan B
hverfisins þar sem hún er eina H
samgönguleiðin í hverfinu. Á ■
Suðurlandsbraut skammt frá m
vegamótum Suður- og Vestur- jj
landsvegar er skilti sem á stend- ■
ur 60 km., þar með er aflétt ■
þeim lægri hámarkshraða, sem jj
gildir annars staðar í bænum.
Nú þegar er allmikil umferð f j
á þessum hluta Suðurlands- jj
brautarinnar af gangandi og J
FraAihald á 10. síðu.
Skákb’mg íslands
hefst ' Breiðfirðingabúð laugardaginn 10. apríl n.k.
kl. 13.30.
Keppt verður í landsliðsflokki, meistaraflokki, I. og II.
flokki og unglingaflokki.
Þátttökutilkynningar sendist fyrir 3. apríl í pósthólf 674,
Reykjavík.
'Skáksamband íslands.
GARÐSKÚR ÓSKAST
Góður garðskúr óskast keyptur
til flutnings
Upplýsingar í síma 37010.
V erkamenn
vantar til frystihúsavinnu. — Mikil vinna.
Fæði og húsnæði á staðnum.
F R O S T h/f.
Hafnarfirði. — Sími 50165.
Hafnarfjörður
Okkur vantar stúlkur og karlmenn til vinnu i fiskiðju-
•verinu.
Hafið samband við verkstjórann í síma 50117 og eftir
vinnu í síma 50678.
Bíll ekur fólkinu til og frá vinnustað.
Bæjarútgerð Hafnarfjarðar.
Staða yfirbjúkrunarkónu
við röntgendeild Borgarsjúkrahússins í Fossvogi er laus
til umsoknar frá 1. júlí n.k.
Laun samkvæmt kjarasamningum Reykjavíkurborgar.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf
sendist Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur, Heiisuverndarstöð-
ínni fyrir 20. apríl n.k.
Reykjavík, 16. marz 1965.
Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur.
Skipstjóri
Vér viljum ráða skipstjóra á 3500 tonna síldarflutn-
ingasxip. Skipinu er ætlað að taka á móti síld úr
fiskibátum á veiðisvæðinu og flytja sildina til Reykja-
víkur.
Síldar og fiskimjölsverksmiðjan h.f.
HAFNARHVOLI.
SENDISVEINN
óskast. — Vinnutími fyrir hádegi.
Aiþýðublaðiö Síml 14 900.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 17. marz 1965 9