Alþýðublaðið - 23.03.1965, Side 1
m£m$)
45. árg. — Þriðjudagur 23. marz 1985 - 68. tbl.
ísinn hamlar
rauðmagaveiðum
Reykjavík, 22. marz.
WmHHWMMHmWMHMM
VOGMÆR
VEIÐIST
60 MÍLUR
ÚT AF RIFI
Hellissandi,
22. marz. — GH. GO.
VÉLBÁTURINN Sæborpr sem
gerður er út frá Rifi fékk
furðufisk í þorskanet, sem
liann var að drajva í dag 60
mílur út af Öndvcrðanesi.
Fiskurinn reyndist vera vog:-
mær, hún er 145 cm. á iengvd
og mjög- fagurlituð. — Bak-
ugginn er samfelldur eftir
endilöngu bakinu, fagur-
rauður að lit. Sporðurinn er
mjór og rauður eins og ugg-
inn. Fiskurinn er ailur þunn-
ur og glær. Augun eru mjög
stór, enda er þetta djúpfisk-
ur.
Vogmær rekur alltoft á
fjörur, en sjaldgæft er að
hún komi í veiðarfæri báta,
Þó kom fiskur af þessari
tegund í þorskanet hjá Bol-.
ungavíkurbátum í vetur,
wvwwuwwwvwwvw
MÖDEL1927
Þetta er einn af elztu bílum á íslandi, sem enn er á skrá. Hann
er af Ford-gerð, módel 1927. Eigandi hans er Magnús Jónsson í
HafnarfirðL Á Iandinu eru aðeins þrjár bifreiðir eldri. Sú elzta frá 1923.
Iðnrekendur fylgj
andi stórvirkjun
Reykjavík, 22. marz. —
ÁRSÞINGI Félags íslewekra iðn
rekenda lauk síðastliðinn laugar-
dag. Á síðara fundi þess flutti dr.
Jóhannes Nordal erindi mn orku-
frekan iðnað, byggingu alúmini-
umverksmiðju og stórvirkjun.
Á fundinum var samþykkt til-
laga um að lýsa stuðningi við
framkomnar hugmyndir um stór-
virkjun, og segir í henni, að á-
stæðulaust sé að ætla, að sjálf-
stæði þjóðarinnar sé hætta búin
þótt erlendu fyrirtækl yrði heim-
ilað að reisa hér alúminium
verksmiðju. Fer hér á eftir frétta
tilkynning frá FÍI:;
„Síðasti fundur iársþings iðn-
rekenda var haldinnií Þjóðleikhúss
kjallaranum laugardaginn 20. marz
1965. Á þeim fundi flutti dr.
Jóhannes Nordal, seðlabankastjóri
mjög ýtarlegt og fróðlegt erindi,
þar sem hann gerði grein fyrir
möguleikðum orkufreks iðnaðar
hér á landi og sérstaklega um bygg
ingu aluminiumverksmiðju og stór
virkjunar.
Að lokinni ræðu bankastjórans
urðu nokkrar umræður í sam-
bandi við erindið og var m. a.
rætt um möguleika á því að setja
Framhald á 5. síðu.
LOGN var um Norður- og Austur-
land í dag og lítil hreyfing á ísn-
um nær landinu. fs er allt um-
hverfis Grimsey og töluverf. ísrek
suðaustur af eyjunni. Stapafellið
tilkynnti Veðurstofunni, að mikið
ísrek væri út af Melrakkasléttu og
ísspangir á reki inn á firði þar um-
hverfis.
Frá Skagaströnd er ekki hægt
að hefja rauðmagaveiðar vegna íss
ins, en veiðitímabilið þar byrjar
að öllu jöfuu £ marzbyrjun.
GORDON LONSDALE
Njósnari leysir frá skjóðunni
London, 22. marz. NTB-Reuter.
Njósnarinn Gordon Lonsdale
upplýstl í blaðagrein, sem birtist
í einu Lundúnablaðanna í gær,
að hann hefð'i í fimm ár starfað
sem njósnari fyrir Sovétríkin í
Bandaríkjunum, og að upplýsingar
hans myndu orsaka nokkur af-
skaplega rauð andlit meðal starfs
manna alríkislögreglunnar FBI,
ef þeir fengju a'ð vita um þetta.
Lonsdale var tekinn fastur í
Bretlandi árið 1961 og dæmdur í
25 ára fangelsi fyrir njósnir í
þágu Sovétríkjanna. í aprílmán-
uði í fyrra var hann látinn í
skiptum fyrir brezka verzlunar-
manninn Greville Wynne, sem sat
í rússnesku fangelsi fyrir njósn-
ir.
í grein sinni, sem birtist í blað-
inu, „The People”, segir Lons-
dale, að hann hafi komið til USA
árið 1951, og þá undir fölsku,
þýzku nafni. Hann hafði fengið
skipun um að vinna í samráði
við „Alec“ nokkurn, sem seinna
reyndist vera Rudolf Abel ofursti.
Hann var tekinn fastur fyrir
njósnir í Bandaríkjunum árið
1957, og seinna látinn í skiptum
fyrir Francis Gary Power, flug-
manninn á U-2 vélinni, sem skot-
in var niður yfir Sovétríkjunum,
Mikilvægasta staðreyndin er,
skrifar I.onsdale, að ég var njósm
ari í fimm ár í Bandaríkjunum
og kom það aldrei í ljós í réttar-
höldunum í Bretlandi.
Á þeim tíma sem réitarhöldin
fóru fram, var álitið að lnnn hefði
komið til Bretlands beint frá Kan-
ada, til að skipuleggja þar njósna
Framliald á 5. síðu.
Bifreiðaeignin fvö-
faldast á 10 árum
Reykjavík, 22. marz. — OÓ. I að finna ýmsar upplýsingar um
KOMIN er út bifréiðaskýrsla bifreiðaeign íslendinga. Eftirtald-
Vegamálaskrifstofunnar, Er þar I ar tölur eru teknar úr skýrslunni
en hún er miðuð við 1. janúar
1965.
Alls voru þá skrásettar 31924
bifreiðir á öllu landinu og 308
bifhjól. Bifreiðaeigp Reykvíkinga
flokkast þannig: Fólksbifreiðar
með sæti fyrir allt að átta far-
þega 11204, meS sæti fyrir fleirl
en átta farþega 180. Vörubifreið-
ar með sæti fyrir tvo til sex far-
þega 961, með sæti fyrir 1. far-
þega 1384, bifhjól 161, samtals
eru þetta 13890 bifreiðar og bif-
hjól.
Fólksbifreiðar sem taka aUt aff
átta farþega eru samtals á öllu
landinu 25228. Fólksbifreiðir sem
Framliald á 5. síðu.