Alþýðublaðið - 07.04.1965, Blaðsíða 7
Telja sanngjarnt oð
borgin kaupi húsin
eftir brunabótamati
Hljóðfæraleikur og
dans á Litla Sviöinu
S.L. sunnudagskvöld var frura
sýning í Lindarbæ á tveim leik-
dönsum eftir Fay Werner, ball
ettmeistara Þjóöleikhússins- A
/undan Lelkdönsunum léku nokkr
ir nemendur úr Tónlistarskólan
um í Reykjavík tvær kammer
tónsmíðar eftir Mozart. Fyrst var
leikinn Kvartett fyrir flautu og
Strengi K. 285 og voru hljóð
færaleikaramir Jón H. Sigur-
björnsson (flauta), Guðný Guð-
mundsdóttir (fiðla), Ásdís Þor-
steinsdóttir (viola) og Gunnar
Björnsson (cello). Flutningurinn
var allþokkalegur þótt eigi
geti hann talizt merkilegur list
viðburður. Rétt er þó að geta
þess að ílautujeikarinn og cello
leikarinn virðast lofa góðu. Síð
ara Mozartverkið var Klarinett
kvintett K. 581 og hann léku Sig
urður Steinþórsson (klarinett),
Guðný Guðmundsdóttir (viola)
og Gunnar Björnsson (cello).
Þótt fullt tillit sé tekið til
hugsanlegs taugaóstyrks þessara
nýliða, þá var Jeikur hópsins lak
ari en við hefði mátt búast. Hug
myndin um efnisskrá sem sam
lanstendur af kammertónlist og
ballett er í sjálfu sér góð en
hitt er máski ámælisvert, að
leggja spilaþiennsku nemenda
fram sem söluvöru á opinberum
vettvangi og þó sérstaklega,
ar hún stenzt ekki lágmairkskröf
ur- Það er mikill ábyrgðarhluti
skólayflrvalda að veita sam-
þykki sítt til þess að nemendur
leikl opinberlega á samkomum
þar sem áheyrendur margir
hverjir hljóta að yfirvega frammi
stöðu hljóðfæraleikaranna án til
lits til þess að hér er um að ræða
nernendur sem komnir eru mis
langt á menntabrautinni.
Þetta er máski enn alvarlegra
vegna þess að íslenzkar (sem
erlendar) kurteisisvenjur ein-
kennast öðru fremur af hræsni
Því er hætta á að fóik, fyrir kurt
eisis sakir, tel ji nemendunum trú
um að leikur þeirra hafi verið
„sérstaklega góður".
Nei, þetta er ekki heppilegasta
leiðin til þess að byggja upp og
þroska virðingu nemandans fyr
ir sjálfum sér og tónlxstinni.
Framlag Þjóðleikhússins á
þessari kvöldskemmtun var það
að nemendur úr Listdansskólan
um dönsuðu tvo balletta er Fay
Werner hefur samið við tón
iist eftir Prokofieff og Dave Bru
beck.
Sá fyrri var Vision Fugitives
við samnefnda tónlist eftir Pró
kofieff.. Ekki verður sagt' með
sanni að hreyfingar þessa dans
fólks séu sérlega liðugar né
augnayndi. Sýning þessi var lík
ari skrautsýningu á skólaskemmt
un en ballett. Þyngsli mikil voru
yfir dönsurunum þó eigi væri
það í öllum tilfelium vegna kílóa
fjölda.
Síðari ballettinn néfnist Stúlk
Framhald á 10. síðu.
NÝLEGA var haldinn aðalfund-
ur Framfarafélags Seláss og Ár-
bæjarbletta F.S.Á. Þar var til um-
ræðu meðal annars hið nýja skipu
lag hverfisins, sem mun að fullu
lokið, að minnsta kosti fyrir Ár-
bæjarbletti, enda framkvaémdir
hafnar þar við götulagnir með
skólp- og vatnslögnum. Einnig er
þegar byrjað á byggingum.
í þessum hverfum er fyrirhugað
að búi um 7-8 þúsund manns. —
Vissulega má gera sér vonir um
að starfsemi F.S.Á. megi eflast
á ókomnum árum í vaxandi byggð-
arlagi austan Árbæjar, með sam-
vinnu við hina nýju íbúa til áfram-
haldandi starfa að hagsmunamál-
um sínum. Einkum á sviði mennta
mála, tómstunda og æskulýðsstarfs,
sem og annarra framfaramála.
Félagsheimilið, sem byggt var
fyrir liðlega 10 árum síðan, fyrir
gjafafé og í sjálfboðavinnu íbú-
anna, sýnir, að máttur samtak-
anna orkar mikils til til jákvæðs
félagslífs, og stofnun F.S.Á. hef-
ur stuðlað að ýmsum framfaramál
um okkar.
Skólastarfsemi hefur verið rek-
in í húsi félagsins um árabil, í
góðri samvinnu við fræðsluyfir-
völd. í húsinu hefur einnig farið
fram unglingastarf, svo sem skáta
starf, barnastúka, tómstundastarf
i samráði við æskulýðsráð. Einnig
barnagúðsþjónustur séra Bjarna
Sigurðssonar sóknarprests, og æf-
ingar kirkjukórs Árbæjarkirkju.
Ungmennafélag fékk einnig af-
not af husinu.
Félagið sækir fast um úthlutun
lóðar undir byggingu veglegs fé-
lagsheimilis og áhugi er fyrir í-
þrótta starfsemi og sundlaugar-
byggingu.
Á aðalfundi félagsins voru til
umræðu vandamál þeirra félags-
manna, sem eru svo óheppnir að
hús þeirra lenda utan ramma skipu
lagsins.
Hér var upphaflega leyft að
byggja flytjanleg sumarliús úr
timbri, 25 fermetra að stærð. —•
Varð það til þess að hér risu var-
anlegri hús, sem búið var í allt
árið.
Sum þessara húsa verða nú að
hverfa á næstunni, og samþykkti
fundurinn að sanngjarnt væri að
eigendum væri greitt fullt bruna
bótamat fyrir þau. Leit fundur-
inn svo á að vænta mætti skilnings
ráðamanna borgarinnar á þessum
lágmarkskröfum, og því ekki trú-
að, að vandamáli fólksins sem I
hlut á, verði svarað á neikvæðan
hátt.
Félagið hét því þessu fólkí að-
stoð sinni, eins og öllum með-
bræðrúm er skylt, og kaus þriggja
manna nefnd til samráðs við borg-
aryfirvöld um úrbætur.
Á aðalfundinum skýrði fráfar-..
andi stjórn frá viðleitni sinni til
að fá símamál hverfanna í beti'*
liorf.
Sjálfvirkt samband símans kom
hér á síðasta ári og eftir að hafa
verið aðnjótandi hálf-sjálfvirka
sambands um árabil, gerðu notend
ur sér vonir um að sjálfvirkt sam-
band við borgina yrði snurðulítið.
Önnur varð raunin á, varð sam-
band símans svo slæmt, að altalað
var, að fljótlegra væri fyrir sím-
notendur að fara með strætisvagni ,
til borgarinnar, en að bíða réttr-
ar tóntegundar biðtóns símans.ErU, ,,
þó ferðir strætisvagnanna strjálar
svo ekki sé meira sagt.
Boðið var bæjarsímastjói'a á
símnotendafund, þar sem hann upp
lýsti ýmsa tæknigalla á apparat-
inu, ásamt fleiri erfiðleikum í sam
bandi við hið flókna kerfi hinnar
nýju stöðvar.
Bæjarsímastjóri kvað unnið að
lagfæringum dag og nótt.
Tillaga var samþykkt að leita -
ásjár neytendasamtakanna fyrir I
símnotendur, sem töldu að um ■
svika-þjónustu væri að ræða og
engan veginn hægt að selja ']
fullu verði, eins og forráðamenn
símans heimta þó. Liggur sú mála
leitun hjá Neytendasamtökunum
til úrlausnar.
íbúar hverfisins eru undraijni,
yfir, að ekki skuli lagðir stokkar
í hinar nýiu götur fyrir hitaveit^,
Hefur félagið þó skorað á borgar-
ráð að hítavéita fyrir húsin sé tek
i in með í framkvæmdunum. Á þvf
hlýtur áð sparast mörg krónarj,,
þegar svo djúpir skurðir eru gcr'á-
ir, sém hér .má sjá fyrir skólp og
vatn. ,
Nokkrar ályktanir voru gerðar á
aðalfundnum, varðandi hagsmun'í|,
Frh. á 10. siðu.'
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 7. apríl 1965 J