Alþýðublaðið - 04.05.1921, Qupperneq 3
s
ALÞYÐUBLAÐtÐ
heldur aðalíund fimtudaginn 12. þ. m. kl. 7Vs
síðd. í Goodtemplarahúsinu.
DAGSKRÁ:
1. Skýrsla framkvæmdastjórnar um starfsemi fé-
lagsins á síðastl. ári.
2. Lagður fram til úrskurðar ársreikningur 1920.
3. Kosinn 1 maður í framkvæmdastjórn.
4. Kosnir 3 menn í gæzlustjórn.
5. Yms mál.
Arsreikningur 1920 liggur frammi félagsmönnum
til athugunar á skrifstofu gjaldkera, Bergþórug. 45.
Reykjavík 3. maí 1931.
Framkvæmdastjórnm.
b. Skuldir vegna styrks, er
veittur hefir verið eftir þessum
lögum, fyrnast á 5 arum.
Allar fátækraskuldir frá fyrri
árum, sem ekki er veð fyrir og
orðnar eru til fyri- 1 jau. 1920,
skulu falla i fyrningu, ef ekki
hafa verið innheimtar fyrir 1.
jan. 1922.
Greinatalan breytist samkvæmt
þessu.
Málið var til umræðu í deild-
inni á mánudaginn og fóru svo
leikar, að breytingartiiiögur þess-
ar voru allar feldar. Má það
furðu gegna. En við hverju má
ekkí búast af þeina skjáhröfnum,
sem Alþingi sitj i? Þetta verður
lagt á minnið til næstu kosn-
inga.
Jtumingja Jffðller.
Jakob Möller er aii reiður yfir
því í gær f Vísi, að Alþýðublað-
ið skyldi finna að ræfilsskap hans
í togaravökumálinu. Sannast á
honum hið fornkveðna, að sann-
leikanum er hver sárreiðastur.
Ýmsir vinir Möllers vilja halda
því fram, að honum hafi ekki
verið þetta sjálfrátt, og má svo
vera; en hans er villan hin sama
fyrir það. Ritstj. talar um óhlat-
drcega rannsókn í togaravöku-
málinu, og þykist þar hafa fund-
ið haldgóða ástæðu til þess að
bera af sér bleyðiorðið; en hve
margir skyidu honum sammála
þar? Ætii slík Hóhlutdrœg rann-
sókn* yrði ekki full lengi á leið-
inni. Eða finst „þingmanninum"
mörg hundruð áskoranir sjómanna
og frásögur þeirra um vökurnar,
ekki uægileg ástæða ti! þess, að
hafist sé handa? Hvað mundi
Dýraverndunarfél. segja ef farið
væri eins illa með hesta, eins og
farið hefir verið með (slenzka
togaraháseta? Eða kannskejakob
telji hásetana óþarfari þjóðfélag-
inu, en „skynlausar* skepnurnarl
Möller endar þessa dásamlegu
vörn sína á þessum orðum:
„Hins vegar riður nú meira á
því um þessar mundir, að vel sé
vakað en sofið á togurunum, með-
an alt er í óvissu um það, hvort
unt verður að halda þeim eða
þeir verða tekuir upp í skuldir.*
Jú, takið þið við því piltarl „Nú
hefði eg gefið þér á hann,* sagði
karlinn við strákinn, „ef þú værir
ekki þessi tuska.”
Þeim ferst, leppalúðum auð
valdsins, að vera að sletta því f
sjómenn, að þeir slóri, þegar vit-
anlegt er að engir menn starfa
eins ósleitilega og þeir. Og eng-
inn getur sakað sjómennina um
það, þó útgerðarmenn togara
„spili sig á hausinn” með alls-
konar asnastrikum. Ætli sjómenn-
irnir hefðu jafnóðum eytt öllum
strfðsáragróðanum i svallferðir til
útlanda,- Iaxveiðar upp í Borgar-
firði, sumarbústaði út um sveitir,
múrveggi utan um lóðir sínar,
silkikjóla, háa hatta o. s. frv,?
Nei, ónei. Togaraútveginum væri
ekki komið eins og er, ef s|ó
menn mættu ráða: Ef togararnir
hefðu altaf verið rfkiseign.
€rleii sínskeytl.
Khöfn, 4. mai
Skaðabætnrnar.
Sfmað er frá Mainz að riddara-
liðs og fótgönguliðshersveit sé lögð
af stað til Ruhrhéraðsins og að
haldið sé áfram herútboðinu.
Washingtonfregn hermir, að
svar Bandarfkjanna hafi hvatt
Þjóðverja til að senda bandamönn-
um beint tilboð.
Upptæk rit kommnnista.
Lundúnafregu hermir, að yfir-
völdinrhafi gert upptækar margar
smáiestir af hvatningaauglýsingum
kommunísta.
lim Saginn og veginn.
Ámicns. Alþb!. getur því miður
ekki flutt vísu yðar sem þér nefn-
ið „Mannkynssögu handa konung-
hollu fóiki*. Það yrði þá líklegast
gert upptækt.
Pétnr Jónsson. Tuttugu cg
tvö^ný lög hefir Pétur Jónsson
sungið nýlega á grammofónplötur,
og þykir hafa tekist mjög vel.
Sum af þeim eru lög sem feasis
hefir sungið áður, en var ekki á-
nægður með hvernig tekist hafði.
Hjálparstöð Hjúkrunarfélágstns
Líkn er opin sem hér segir:
Mánudaga. . . . kl. n—12 f. b.
Þriðjudaga ... — 5 — 6 e. h.
Miðvikudaga . . — 3 — 4 e. k,
Föstudaga.... — 5 — 6 e. h.
Laugardaga ... — 3 —4 e. h,
j