Alþýðublaðið - 25.09.1965, Blaðsíða 2
Íaeimsfréttir
siáastlióna nótt
★ KARACHI: — Indverskar og pakistanskar liersveitir skipt
Stjóm og ráðgjafanefnd Haf-
< rannsóknastofnunar skipuð
SAMKVÆMT III. kafla laga nr.
64 21. maí 1965, um rannsóknir í
þágu atvinnuvegaima, skal starf
raekt sjálfstæd' stofnun, Hafrann
sóknastofnunin, er heyrir undir
Sjávarútvegsmálaráðuneytið. —
Stofnun þessi tekur við þeiin verk
efnum, sem fiskideild Atvinnu-
deildar Háskólans hefur áður
sinnt.
Við Hafrannsóknastofnunina er,
samkvæmt 15. gr. sömu laga, starí
andi ráðgjafanefnd. í ráðgjaía-
■nefnd Hafrannsóknastofnunarirm-
ar hafa verið tilnefndir eftirtaldir
anenn:
NÝ FRÍMERKIA
MÁNUDAGINN
Mánudaginn 27. sept. næstk.
koma út Evrópufrímerkin
svonefndu, en slík frímerki
hafa verið gefin út af aðild-
arlöndum Evrópusamráðs
pósts og síma ÍCEPT) á
hverju hausti síðan árið
1960.
Að þessu sinni bera Evr-
ópufrímerkin mynd cftir ís-
. lendinginn Hörð Karlsson.
| íslenzku Evrópufrímerkin
1 eru tvö 5 kr. og 8 kr.
Ágúst Flygenring, framkvæmda
stjóri, Jón Sigurðsson, formaður
Sjómannasambands íslands Loft-
<ur Bjarnason, framkvæmdastjóri.
Már Elísson, skrifstofustjóri,
Sverrir Guðvarðarson, stýrimaður,
Sverrir Júlíusson,, alþingismaður,
Tryggvi Helgason, isjómaður.
Nefndin hefur kosið Má Elías-
son, skrifstofustjóra formann.
í stjórn Hafrannsóknastofnunar
innar skulu samkvæmt 11 gr.
sömu laga vera þrír menn skipað
ir af sjávarútvegsmálaráðherra til
fjögurra árá í senn, þár af einn
án tilnefningar, einn tilnefndur
af stjórn Fiskifélags íslands og
einn tilnefndur af ráðgjafanefnd
stofnunarinnar. Sömu aðilar til-
nefna varamenn. Riáðherra skipar
formann stjórnarinnar.
í stjórn Hafrannsóknastofnunar
innar hafa verið skipaðir eftirtaldi
ir me’nn:
Daðvíð Ólafsson, fiskimálastjóri,
formaður, tilnefndur af Fiskifclagl
íslands, til vara Hafsteinn Berg-
þórsson, framkvæmdastjóri. Loft
ur Bjarnason, framkvæmdastjóri,
tilnefndur af ráðgjafanefnd stofn
unarinnar, til vara Jón Sigurðsson,
Framhald á 15. síðu.
Hagstæður
jöfnuður
Reykjavík. — GO.
Vöruskiptajöfnuður íslands vlð
önnur lönd var í ágúst hagstæður
um 74,2 milljónir króna. Á tíma-
bilinu jan.-ágúst var vöruskipta-
jöfnuðurinn hins vegar óhagstæð-
ur um 407,5 milljónir. Út voru
fluttar vörur fyrir 3300,7 milljónir,
en inn fyrir 3708,3 milljónir.
Á sama tímabili í fyrra var vöru
skiptajöfnuðurinn óhagstæður um
659,5 milljónir króna.
3 ára drengur
fyrir bifreið
Reykjavík. — ÓTJ.
ÞRIGGJA ára drengur meiddist
er hann varö fyrir bifreið við
Laugalsek um 2 leytið í dag. Dreng
urinn hljóp fram frá kyrrstseðri
bifreið, og varð fyrir vinstra horni
annarrar bifreiðar er ók eftir göt-
unni. Hann var fluttur á Slysavarð-
stofuna, en meiðsli hans eru ekki
talin alvarleg.
SAROYAN HEIM
SÆKIR ÍSLAND
Bandaríski rithöfundurinn
William Saroyan kemur hing
að til lands í dag og
mun dvelja hér fram á
sunpudagskvöld.
Saroyan kemur frá Banda
ríkjunum með Loftleiðavél
og notfærir sér sólarhrings-
dvöl, sem félagið býður far-.
þegum sínum upp á með sér-
stökum kjörum.
William Saroyan er fædd-
ur árið 1908 og er af arm-
enskum uppruna. Hann hef-
ur skrifað bæði skáldsögur,
smásögur og leikrit og mun
einna frægastur fyrir smá-
sögtir sínar, sem einhverjar'
hafa Verið þýddar á íslenzku.
HMMMMMMMWMMMMMtMI
OOOOOOOOOOOÓÓOOOOOOOOOÓOOOOOOOOOél
Gamalt hús hverfur
Þessa dagana er verið að
rífa eldra verksmiðjuhús hf.
Dvergs við Lækjargötu í Hafn
arfirði. Hús þetta er komið á
sjötugsaldurinn, og hefur síð
usfu árin verið mikill þrösk
uldur í vegi allrar umferðar
um götuna. Hinn kunni athafna
maðúr Jóhannes Reýkdal reisti
það árið 1903, én í árslok 1912
keyptu tólf Hafnfirðingar verk
smiðjuna af Reykdal og stofn
uðu sameignarfélagið Dverg.
Fimm árum síðar var fyrir
tækinu breytt í lilutafélag, og
hcfur það starfað æ síðan,
lengst af í sömu verksmiðju
byggingunni. Árið 1959 flutti
DvergUf í nýtt húsnæði hand
an götunnar, og síðan hefur
gamla húsið heldur verið til
trafala — því að þröngt er og
hættulegt umferð. En nú er ævi
gamla hússins senn öll og öður
en langt um líður munu bifrejð
ar aka þar yfir, sem það eitt
sinn stóð. Mynd: J.V.
oooooooooooooooooooooooooooooooocí
-li31 á iskotum í gærkvöldi að eögn pakistanska útvarpsins, sem seg
ár að indverskt stórskotalið hafi hafið skothríð á pakistanskt yfir-
aáðasvæði umhverfis Lahore. í Nýju Delhi eru Pakistanar sakað
ir um mörg brot á vopnahléssamningnum.
★ NÝJU DELHI: Sovétríkin og Bretland voru harðlega gagn
trýnd þegar indverska þingið kom saman í gær að ræða Kasmírmál
ið. Bornar voru fram kröfur um, að Indland segi sig úr brezfka
<Samveldinu. Kröfu iþingmanns um, að brezkar eignir á Indlandi
yrðu þjóðnýttar, var ákaft fagnað.
★ NEW YORK: — Andrei Gromyko, utanríkisráðherra Rússa,
ftagði fram á Allsherjarþinginu í gær uppkast að isamningi um út-
tbreiðslubann og uppkast að yfirlýsingu þar sem látin verði í Ijós
andúð á afskiptum af linnanrikismálum erlendra ríkja. Hann lagði
4:1 að haldin yrði alþjóðleg afvopnunarráðstefna í Genf mæsta
fcumar með þátttöku allra ríkja, þar á meðal Kínverja.
★ PARÍS: —• De Gaulle forseti skýrir sennilega frá því í októ
•berlok hvort hann gefur kost á sér til endurkjörs eða dregur sig
á hlé, að því er áreiðanlegar heimildir herma. Flestir stjómmála
■fréttaritarar telja, að de Gaulle igefi kost á sér í forsetakosningun
jpm og beri sigur úr býtum.
★ SAIGON: — Suður-vietnamiskar hersveitir kváðust í gær
íiafa fellt yfir 700 vietcong-hermenn í nokkrum hörðum bardög-
úm undangengna daga. Yfir 600 Vietcongmenn voru felldir á þrem
<Ur isvæðum á 32 kílómetra löngum kafla af Þjóðvegi nr. 1, norðan
við Qui Nhon-stöðina í fyrradag og 138 í sex öðrum bardögum á
ýmsum stöðum.
★ WASHINGTON: — Bandaríkin og Panama hafa náð sam
(komulagi um að afnema Panamaskurðs-samninginn frá 1903 og
(hefja viðræður um samning er taki tUlit til fuUveldis Panama á
<3kurðsvæðinu svokallaða, að því er Johnson forseti iskýrði frá í
iSjónvarpsræðu í gærkvöldi. Nýi samningurinn á að gilda til
ékamms tíma eða þar til nýr skurður verður grafinn um Panama.
.Undirbúningur hefst bráðlega.
★ PARÍS: — Paul-Henri Spaak, uitanríkisráðherra Belgíu, lief
tir lagt til að utanríkisráðherrar Efnahagsbandalagslandanna haldi
•bráðlega fund með sér 02 þetta hefur vakið vonir um að deilan
í EBE leysist fyrir áramót.
2 25. sept. 1965 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ