Vísir - 06.11.1958, Side 4
4
VtSIB
Fimmtudaginn 6. nóvember 1958
D A G B L A Ð
TWr kemur út 300 daga á árl, ýmist 8 eða 12 blatJsíCur.
Bltstjórl og ábyrgðaimaður: Hersteinn Pálsson.
/Skrifstofur blaðsins eru í Ingólfsstræti 3.
MMMniankrifstofur blaðslns eru opnar frá kl. 8,00—18,00.
Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00.
Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00—19,00.
Sími: 11660 (fimm línur).
Vísir kostar kr. 25.00 í áskrift á mánuSi,
kr. 2.00 ->intakiS í lausasölu.
Félagsprentsmiðjan hJ.
A$ sprengja eða ekki.
Fyrir nokkrum dögum komu
fulltrúar frá stóveldunum
saman í Genve í Sviss til að
ræða um mál málanna á
vettvangi alþjóðamála og þó
einkum áróðurs — bann við
kjarnorkutilraunum. Það
mál hefir verið dæmalaust
mikið þvælt á síðustu mán-
uðum og árum, því að ekk-
ert atriði af þeim mörgu,
sem valda deilum milli stór-
þjóðanna, hefir verið notað
, til eins gegndarlauss áróðurs
og einmitt kjarnorkutilraun-
irnar. Hafa kommúnistar
sérstaklega verið svo ákafir,
að áróður þeirra hefir hvað
eftir annað snúizt gegn þeim
sjálfum.
Ef þess skemmst að minnast að
að einn helzti áróðursmaður
þeirra, Zorin, varð fyrir fá-
einum dögum að leiðrétta
ræðu sem hann hafði hald-
ið aðeins sólarhring áður. f
blindum ákafa sínum hafði
hann ekki áttað sig á því, að
hann gekk of langt, mönnum
leyfðist skyndilega að kynn-
! ast hugsunarhætti komm-
únista eins og hann er 'í raun
og veru. Hann gerði þeim
greiða, sem sízt skyldi með
þessu, en hann skýrði líka
málin fyrir mörgum, er hafa
áður talið, að skjöldur
kommúnista væri hreinn að
þessu leyti, hvað sem öllu
öðru liði.
Eins og stendur virðist það ekki
aðalatriði, hvort gert verð-
ur í fyrstu samkomulag um,
að tilraunum verði hætt í
eitt ár, ef það verður jafnan
endurnýjað, eða hvort til-
raunirnar verða bannaðar í
eitt skipti fyrir öll. Aðal-
atriðið er að sjálfsögðu, að
hægt verði að fylgjast með'
því og ganga úr skugga um
það, að gert samkomulag
' verði haldið. Fram að þessu
hefir alltaf strandað á því,
að kommúnistar hafa ekki
viljað neitt eftirlit í þeim
efnum. Skyldi það vera
af því, að þeir vilja geta
haldið tilraunum áfram, ef
það er unnt á laun? Sam-
kvæmt venjulegum móral
þeirra er ekki ósennilegt, að
þeir hugsi þannig.
Togarakaup ríkfsstjórnarinnar:
Enginn tngari keyptur
ug ekkert lán fengik.
Fyrirspurn Magnúsar Jónssonar alþm. í
Sameinuðu Alþingi í gær.
„Utanstefnur viljum vér...
//
Einhver frægasta setning úr
íslands sögu er þessi: „Utan-
stefnum viljum vér engar
hafa,“ og menn hafa oft
tekið hana sér í munn á síð-
ari árum. Þeir, sem einna
oftast hafa notað hana —•
eða öllu heldur misnotað —
eru kommúnistar, sem telja
sig eina þjóðholla íslend-
inga með einskonar patent
eða leyfisbréf upp á slíkt
upp á vasann.
Þó eru það einmitt foringjar
þeirra, sem mest eru gefnir
fyrir utanstefnur, því að á
hverju ári fara fleiri en einn
úr þeirra hópi austur til
Moskvu til nokkurrar dval-
ar. Enginn gerir ráð fyrir, að
þeir fari þangað til að hlýða
á fuglasöng enda þótt þeir
leggi við hlustirnar, en
þeirra utanstefnur eru ein-
mitt af því tagi, sem um var
rætt forðum.
Fyrir fáeinum dögum var lokið
þingi kommúnistaflokksins
danska. Honum var gert svo
hátt undir höfði, að þingið
sótti einn af helztu foringj-
unum í Moskvu. Ekki mátti
gera minna til að kenna
dönskum kommúnistum
mannasiði en senda einn úr
sjálfri miðstjórninni í
Moskvu. Þetta virðist benda
til þess, að eitthvað mikið
hafi legið við, enda féll for-
ingi danskra kommúnista
fyrir áhlaupinu úr austri.
Sendimanns er ekki þörf.
En rússneskir kommúnistar
þurfa ekki að senda neinn
mann á fund eða þing ís-
lenzkra kommúnista. Þvert
á móti, því að þeir hafa ekki
við að taka á móti „frjáls-
ræðishetjunum góðu“, sem
reyna að færa íslendingum
sönnur á, hvernig bezt og
réttast sé að hugsa.
f’etta er hin mesta móðgun við
íslenzka kommúnista. Þeir
eru settir skör lægri en Dan-
ir, enda þótt þeim hafi tek-
izt að afla enn meira fylgis
í gær bar Magnús Jónsson
alþm. fram fyrirspurn í Sam-|
einuðu alþingi út af togara-!
kaupum ríkisstjórnarinnar, en'
eitt af helztu atriðum í mál-
efnasamningi stjórnarflokkanna
eftir síðustu kosningar og jafn-
framt loforð ríkisstjórnarinnar,
eftir myndun hennar, var kaup
á.15 nýjum togurum til lands-
ins.
Frumvarp var borið fram af
hálfu ríkisstjórnarinnar um
heimild til þessara togarakaupa
á alþingi 1956, og þá lögð á það
áherzla að málinu yrði hraðað
svo unnt væri að hefjast handa.
Siðan hafi ekkert frétzt úr
stjórnarherbúðunum um þetta
mál og enginn togari enn kom-
inn til landsins. Stjórnarblöðin
hafi að visu birt ósamhljóða
fregnir um þetta mál og stund-
um skæting hvort í annars garð,
en ekkert af því sem þau hafi
birt jákvætt um málið hafi stað-
izt.
Nú væru menn orðnir lang-
eygðir eftir togurunum og eftir
efndunum af gefnum loforðum
ríkisstjórnarinnar. Fyrir þá sök
kvaðst hann bera fram eftirfar-
andi fyrirspurnir:
Hvað líður smíði þeirra 15
togara, sem ríkisstjórninni var
heimilað að láta smíða, með
lögum nr. 94 1956?
Hafa lán verið fengin til þess
ara skipakaupa og þá hve há
og hvar?
Lúðvík Jósefsson sjávarút-
vegsmálaráðherra varð fyrir
svörum af hálfu ríkisstjórnar-
innar. Játaði hann fyrir þing-
heimi að ekki hefði tekizt að fá
lántil togarakaupanna ennþá og
því ekki verið unnt að semja
um kaup né smíði á þeim. Hann
gat þess að hugmyndin hfi ver-
ið sú að láta skipasmíðastöðv-
arnar, sem önnuðust smíði tog-
aranna útvega lán. Snemma á
þessu ári var send út sérstök
samninganefnd, enda lágu þá
einhver lánstilboð fyrir hendi
til kaupa á 8 togurum, en samn-
ingaumleitanir hefðu farið út
um þúfur og enn stæði því allt
við hið sama. Það síðasta sem
gerzt hafi í málinu væri það, að
aðalbankastjóra Seðlabankans
hafi verið falið að reyna lánsút-
vegun og að því hafi verið unn-
ið síðustu dagana. Ef þær til-
raunir bæru ekki árangur
kvaðst ráðherrann krefjast ann-
arra ráðstafana í máli þessu. Þá ^
gat ráðherrann þess enn frem-|
ur, að ríkisstjórnin hafi samið,
um kaup á 12 minni togskipum. I
Væri smíði þeirra senn lokið
og það fyrsta afhent 10. þ. m.
Auk frummælanda og sjávar-
útvegsmálaráðherra tók Sigurð-
ur Bjarnason alþm. til máls og
bar m. a. fram eftirfarandi fyr-
irspurnir til sjávarútvegsmála-
ráðherra:
1. Hvort munu togararnir ó-
dýrari nú eða fyrir 2 árum?
2. Hve mikið hækka togar-
arnir vegna hins nýja 55% yf-
irfærslugjalds?
3. Hve mikið kostar hvert
þeirra tólf togskipa, sem smíð-
uð hafa verið í Austur-Þýzka-
landi?
Játaði ráðherra, að verð skip-
anna hækkaði verulega til kaup-
enda vegna yfirfærslugjaldsins
og myndu litlu togskipin kosta
hátt á 6. milljón króna nú með
yfirfærslugjaldinu. Hins vegar
hafi verð á skipum erlendis far-
ið lækkandi.
Kvæðasafn Magniísar Ásgeirs-
sonar kemur út í dag.
en danskir skoðanabræður
þeirra. Maður skyldi ætla,
að þeir væru heiðraðir ár-
lega með heimsóknum frá
æðri stöðum.
En það er öðru nær. Þeir verða
að koma til að sækja þá
línu, sem þeim er ætlað að
fylgja. Þeir njóta ekki einu
sinni þeirrar þjónustu, gem
þykir sjálfsögð í viðskiptum
i flestum löndum og tilkynnt
er í auglýsingum með tveim
orðum: „Sækjum — send-
Á um!“
Helgafell sendir í dag á mark-
aðinn kvæðasafn Magnúsar Ás-
geirssonar. Hér er um að ræða
helminginn af heildarútgáfu á
kvæðum Magnúsar, frumsömd-
um og þýddum, og mun mörg-
um þykja það forvitnilegt, að
hér birtast nokkur fruriisamin
kvæði, sem ekki liafa sézt á
prenti áður. Síðari helmingur
safnsins kemur út á næsta ári.
Annars vita það allir hinir
mörgu aðdáenda Magnúsar, að
það eru ekki einkum hin
frumsömdu kvæði hans, sem
halda munu nafni hans á lofti,
heldur fyrst og fremst Ijóðaþýð-
ingar hans. Og reyndar er það
svo um-suma úr þessum hópi, að
þejr muna varla eftir þ'ví, að til
væri frumsamin kvæðabók 'eftir
Magnús. En Ijóðaþýðingar hans
eru að flestra dómi hið bezta af
því tagi, sem íslenzka þjóðin
hefur eignazt, og I,ka fjölbreytt-
asta safn þýddra ljóða, sem eftir
einn mann liggur.
Fyrsta bók Magnúsar, frum-
sömdu ljóðin, Síðkveld, kom út
1923. Síðan liðu íimm ár, unz
fyrstu þýddu Ijóðin birtust í
bók, en þau komu siðan í heftum
undir nafninu „Þýdd ljóð“, að
undantekinni einni bók þýðinga,
sem kallaðist „Meðan sprengj-
urnar falla‘“.
Tómas Guðmundsson býr
býr kvæðasafnið til prentunar
og segir í formála, að Magnús
hafi sjálfur ákveðið fyrir löngu
að ráðast í það verk sjálfur.
Nokkuð mun röð kvæðanna
verða breýtt frá því er var í
fyrstu útgáfu, og er von til, að
Tómas geri það samkvæmt á-
formum Magnúsar sjálfs, en þeir
miklir vinir og samverkamenn
í ritstjórn um nokkur ár.
Að lokum skal hér birt eitt er-
indi úr ljóðinu „Det borde varit
stjárnor" eftir Gustaf Fröding, á
frummálinu og í þýðingu Magn-
úsar:
I skimret om din panna var
sorgen och musiken,
mcn frusen. besviken
av toner, din visa. pá lápparne
lág.
Din váxt var full gratie, men
aldrig fick den följa
Útflutningur lirossa.
Eitt er það mál, sem talsvert
hefur verið rætt í blöðum, sem
jafnvel börnin og unglingarnir
hafa skapað sér skoðun um, en
það er útflutningur hrossa. Berg
mál fékk fyrir nokkru bréf frá
unglingi um þetta mál, og fer
það hér á eftir:
„Nú er orðið allmikið um út-
flutning hrossa til Þýzkalands
og einnig hefur eitthvað af hest-
um verið flutt til Skotlands. Áð-
Ur voru hestar fluttir til Dan-
merkur og Bretlands, og þar not-
aðir i námum, og áttu vist mis-
jafna ævi. Sem betur hefur
hrossaútflutningurinn legið niðri
um hríð, en nú er farið að flytja
út hross aftur. Eg sá í blaði, að
31. október voru flutt út 300
hross. Þótti mér það há talaf
alltof há.
Stjörnótti klárinn.
Þá sá ég í Morgunbl. mynd af
stjörnóttum klár, sem verið var
að teyma út í dallinn, og undir
myndinni stóð: Stjarni leggur
upp í sjóferð. Varð mér á að
hugsa: Aumingja klárinn, en
það sá ég á myndinni, að ekki
var Stjarni ánægður yfir óskun-
um. Reyndar vorkenni ég öllum
hrossunum, sem út eru flutt.
Stúlkan og foldaldið.
Eg sá í sumar mynd í blaði af
þýzkri stelpu, sem er að leika
sér með folald, og var það mýlt.
Var hún að æfa það í hindrunar-
hlaupi og var brosandi út undir
eyru, en ég fann til með folald-
inu, því að sjá mátti á myndinni,
að það var grindhorað. Ef nú
hefði verið settur múll á stúlk-
una og folaldinu verað lofað að
skemmta sér, er hún var æfð í
hindrunarhlaupi. Ætli hún hefði
þá brosað út undir eyru af kæti?
Eg vil banna allan útflutning
hésta, og veit ég um fleiri á mín-
um aldri, sem það vilja, en við
eigum að fara betur með hest-
ana okkar. — Hestavinur (14
ára)
sitt vásen att bölja
med frigjort behag i var linje-
vág.
Þér hvíldu sorg og söngvar í
bjarma um brúnavikin,
er bundin og svikin
af tónum lá vísan á vörum þér
hljóð.
Þú áttir vöxt sem gyðja, en
aldrei mátti hann fylgja
sínu eðli og sig bylgja
í mjúklínum frjálsum sem fall-
andi í óð.
Athugasemd.
1 sambandi við fréttir dag-
blaðanna um kauphækkun tog-
arasjómanna, er rétt að benda á
eftirfarandi:
Sagt er að togarasjómenn hafi
fengið 22% kauphækkun. En sú
hækkun kemur aðeins á fasta-
kaup, ekki á aflahlut, sem er svo
til óbreyttur.
Aflahlutur nemur hinsvegar
um og yfir helmingi launa tog-
arasjómanna. Er því raunVeru-
leg hækkun á kaupi þeirra 9—
11% eftir aflabrögðum.
Þá ber að benda á það, að þeg-
ar samið var við togarasjómenn
í júní s.l. fengu þeir eingöngu
lögboðnar hækkanir (þ. e. 5%
aug lífsyrissjóð), en siðnn bafa
flest stéttarfélög önnur fengið
allmiklar kjarabætur umfram
þær er lögboðnar voru.
Fél. ísl. botnvörpskipáelgenda.