Vísir - 06.11.1958, Blaðsíða 5
Fimmtudaginn 6. nóvémber 1958
V I S I B
jtð vestati:
Húsbyggingar eru enn
í fullum gangi.
Mikill fjöldi húsa í smíðum.
ísafirði, 31. okt. 1958.
Það er til marks um milda tið,
að líúsbyg'g'ingar úti eru enn í
fulíum gangi.
Undanfarið hafa menn átt því
að venjast, að hús hafa lítið eða
alls ekki orðið steypt síðarihluta
september. Nú hefur verið unnið
að slíkum húsabyggingum allan
október. Voru þrjú íbúðarhús
hér í bæ útibyrgð um síðustu
helgi. Nú hefur kólnað í bráð, en
menn væntu þess, að hlýindin
komi bráðlega aftur, bæði til
þess að vinna við húsbyggingar
og annað.
Óvenju mörg hús
í byggingu.
Líðandi ár er áreiðanlega met-
ár i húsabyggingum hér um
langt skeið. Meira en tíu ibúðar-
hús eru í smiðum. Sum að verða
tilbúin til ibúðar, önnur
skemmra komin. Þá er Lands-
bankinn nýi, sem vigður verður
í næsta mánuði, og eitt verzlun-
arhús í smíðum.
Að íbúðarbyggingum vinna
menn nú langt um meira sjálfir,
en áður var venjulegt. Sumir
byggja lika með samhjálp sam-
starfsmanna og kunningja. Það
hefur tafið margan illa hve erf-
iðlega hefur verið að fá bygg-
ingarefni og ýmislegt til húsa.
Má segja, að furðanlega hafi
ræzt úr hjá flestum.
Það eru nær allt ungir menn,
sem nú standa í húsabyggingum.
Er dugnaður þeirra og bjartsýni
lofsverð, þvi það er mikið átak
nú að koma sér upp húsnæði fyr-
ir sig og fjölskylduna.
Fjárlieimtur í réttum
voru víða slæmar.
Stafar það af góðviðrinu í
haust. Hefur fé leitað lengra á
fjöll en oft áður. I síðustu viku
var farið í eftirleitir frá mörg-
um bæjum hér í Djúpinu. Fannst
margt fé á fjöllum, sem ekki
hafði áður komið til rétta.
Flugvöllur við ísafjörð.
Bygging flugvallar fyrir land-
flugvélar er hafin fyrir nokkru.
Hefur hingað til verið unnið að
þvi að færa þjóðveginn til Súða-
víkur, sem á kaíla lá um það
land, sem tekið verður til ofani-
burðar og undir flugbraútir.
Haldið mun áfram með flugvalla
gerðina eftir þvi sem tíð leyfir.
Nýjung við losun
togara og vélbáta.
Togarafélagið Isfirðingur h.f.
hefur látiö, smíða fyrir sig færi-
bönd til lpsunar á fiski úr tog-
urum og vélbátum. Vélsmiðjan
Klettur í Hafnarfirði hefur smið
að færiböndin að miklu leyti, en
sumt í þeim fengið erlendis frá.
Færiböndin á að reyna i Hafnar-
firði í dag eða morgun. svo víst
sé að þau skili fullu verki. Reyn-
ist svo verða þau bráðlega sett
upp á hafnarbakkanum hér.
Færibönd til losunar á sild
hafa verið i notkun hjá Síldar-
versmiðjum ríkisins í mörg ár,
eins og alkunnugt er. Hinsvegar
eru færibönd til losunar á fiski
nýjung. Verða þau aðeins notuð
með góðum árangri í þeim höfn-
um, þar sem sjaldan er sjóþungi
og mismunur flóðs og fjöru ekki
ýkja mikill. Slík skilyrði eru
einmitt fyrir hendi hér á Isa-
firði. Vænta menn því, að þessa
mikilsverða umbóta komizt sem
fyrst í framkvæmd.
Alhvít jörð í fyrsta sinn nú.
I morgun var hér aihvit jörð
í fyrsta sinni á þessum vetri.
Þetta var bara föl, sem kallað
er, en samt ábreiða yfir jörðina,
allt til sjávar. Þetta er eins og
viðvörun, að veturinn sé kominn.
Þorsknetaveiðar
hér í Djúpinu halda enn áfram.
Afli hefur nú glæðzt aftur, en
fiskurinn smærri og meira í
hnöppum. Lítur út fyrir að þetta
sé ný fiskiganga. Sumir bátarnir
hafa fengið 9—10 lestir í lögn.
dag og dag í einu, én svo minna teknir eftir
annað veifið.
Búið er nú í haust að taka 40
lestir af fiski til herzlu norður í
Grunnavík. Mun það eins dæmi,
að slíkur afli hafi þar borizt að
landi um veturnætur. — Arn.
Gefsiavirkni -
Fi'h. af 1. s.
margfaldazt þar og á öðrum
Norðurlöndum undanfarnar
vikur. Er óhætt að gera ráð
fyrir, að liin uggvænlega
aukning á geislavirkni í lofti
hér stafi einmitt af þessum
tilraunum sovétstjórnarinn-
ar.
S.þj. slofna
ekki fastaBið.
Oll áform um að stofna fast
gæzlulið Sameinuðu þjóðanna
hafa verið lögð á hilluna.
Hin sérstaka stjórnmála-
nefnd samtakanna gerði sam-
þykkt í þessu efni eftir að
Hammarskjöld hafði sagt í
greinargerð, að skilyrði væru
fyrir hendi til þess að bregða
við, ef hættuástand skapaðist.
í skyndi, og hefðu samtökin nú
nokkra reynslu í þessum efn-
um.
Breti veginn
á Kýpur.
Brezkur borgari var myrtur
í Limasol á Kýpur í nótt, en
ekki var sagt nánara frá morð-
inu í morgun.
Þrír unglingar voru hand-
að skammbyssa
hafði fundizt í bíl, sem þeir
voru í. — Öllum, 26 ára og
yngri, er bannað að vera úti að
næturlagi. Bann í þessu efni
var endurnýjað nú í vikunni.
Fiítttía:
75 kvikmyndir
á 5 árum.
Um næstu helgi hefst sjötta
starfsár Filmíu með því, að
sýnd verður brezka kvikmyndin
„Kona hverfur“ eftir Alfred
Hitchcock.
Þau fimm ár, sem Filmía
hefur starfað, hefur félagið
sýnt 75 úrvalsmyndir frá öllum
skeiðum kvikmyndalistarinnar
— allt frá aldamótum fram á
síðustu tíma. Flestar myndirn-
ar hafa verið um 10 ára gamlar.
Árlega hafa verið sýndar 13—
15 myndir og verður svo í ár.
Ákveðið er að sýna 4 myndir
fyrir jól.
Mikil aðsókn hefur verið að
Filmíu öll þau ár, sem félagið
hefur starfað, en kannske aldrei
meiri en í fyrravetur, er marg-
ir urðu frá að hverfa. Hver
mynd er sýnd tvisvar hverju
sinni, á laugardögum kl. 15 og
sunnudögum kl. 13. Sýhing-
arnar eru í Tjarnarbió.
ChurchiBI heiðraður.
i
| Sir Winston Churchill flaug
í gær til Parísar og verður í dag
við hátíðlega athöfn afhentur
frelsunarkrossinn, sem tveir
menn, sem ekki eru franskir,
hafa fengið.
Flugvélarnar.
Saga er væntanleg til Rvk.
kl. 18.30 frá Hamborg, Kbh.
og Osló; fer síðan til New
York kl. 20.00.
■
FILMIA
Skírteini verða afhent í
Tjarnarbíói f DAG KL. 5-7
og á morgun og föstudag á
sama tíma.
Nýjum félagsmönnum
bætt við.
Beit a5 auglýsa í Visí
AÐALFUNDUR
Stúdentafélags Reykjavíkur
verður haldinn í Sjálfstæðishúsinu laugardaginn
8. nóvember 1958 klukkan 3 síðdegis.
D a g s k r á :
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
AFCREIDSLUSTARF
Stúlka óskast í kjötbúðina Sólvallagötu 9. 7
Sími 18644— ' i f
6 og 12 volta.
! '
BÍLAPERUR
6 og 12 volta, flestar gerðir. 'f'.
SMYRILL, Húsi Sameinaða — Sími 1-22-60.
SENDISVEINN ÓSKAST
Röskur piltur 14 ára eða eldri óskast til sendiferða.
Uppl. í skrifstofunni.
Dagblaðið Vísir.
STÚLKA
vön að sauma og sníða
kvenfatnað getur fengið
góða atvinnu nú þegar. —
Tilboð sendist blaðinu fyrir
laugardag merkt: „87“.
Kaupi gull og silfur
Pappírspokar
allar stærðir — brúnir úi
kraftpappír. — Ódýrari ei
erlendir pokar.
Pappírspokagerðin
Sími 12870.
ÓDÝRT
Útsala af eldri gerðum og
lítið eitt gölluðum
herrapcplínkápum
Verð frá kr. 200/—
kvenpoplínkápum
frá kr. 350/—
og barnaregnkápum
frá kr. 100/—
Salan fer fram á 3. hæð
verksmiðjunnar, Skúlagötu
51.
0
Sjóklæðagerð Islands
FATASKÁPUR
einfaldur eða tvöfaldur, má
vera notaður óskast til
kaups. Uppl. í síma 1-6013.
Aðeins 3 söludagar eftir í II. flokki
Vinningar 996, samtals 1.255.000 kr.
HAPPDRÆTTI HASKOLA ISLANÐS