Vísir


Vísir - 13.11.1958, Qupperneq 5

Vísir - 13.11.1958, Qupperneq 5
Fimmtudaginn 13. ndvember 1958 Vf SIR Leikfélag Hafnarf jarðar: Gerviknapinn eftir John Chapntan Leikstjóri: Kíemens Jónsson. .. ! Sjónlei’vurinn „Gerviknap- inn“ eftir John Chapman er sagður hafa verið sýndur nærri 26C0 sinnum í London, og það getur vel verið rétt. Eg dreg það ekki í efa, mér þj’kir meira að segja heldur trúlegt, að það verði sýnt eins oft í Hafnar- firði — að tiltölu við fólks- fjölda. En hitt er aftur vafasamara, að flest hið sama prýði leikinn i báðum borgunum. Þó hef eg því miður ékki samanburð. Englendingar kalla þetta ,,farce“, sem útleggst ýmist skopleikur eða skrípaleikur, og hlýtur þá auðvitað að vera tals- vert frelsi til að ýkja hlutina og sýna allskyns afkáraskap, enda var það óspart gert, en bara of ótamið. Það er líf í tuskunum þarna á sviðinu og mikið hlegið í salnum svo sem vera ber. Leikritið er þó ekki að neinu leyti nýstárlegt, nokkuð um gömul margtuggin skopleikjabrögð, en þó laglega samið. Leikstjóra hefir tekizt að fá ágætan hraða í leikinn, hafa hann misfellulausan, í honum er ekki dauður punktur, og er það út af fyi’ir sig rnikill kost- ur. Þetta er í heild skemmtileg vitleysa. En ósköp er leikui'inn xnisjafn. Þó er það nú svo, að það er fi'eistandi að taka vilj - ann fyrir verkið. Yfirleitt er leikið af svo miklu lífi og fjöri, að flestir hljóta að vera í bezta skapi á meðan á þessu stendur. Þótt ekki væi'i annað, þá er þess virði að fara að horfa á ..Gerviknapann11 til þess eins að sjá vinnukonu ofurstans, leikna af Steinimni Bjarnadóttur. Það er ekki ofsagt, að hún ,,á“ svið- ið í hvert sinn sem hún birtist, án þess að trana sér fram. Skop íeikaragáfa hennar er frum- leg og gróf. Og útlitið á nxanneskjunni, guð ' minn góð- tir. Það eitt var nóg til' að manni datt í hug það sem karl- inn sagði: Nú skyldi eg hlæja, væri eg ekki dauður. Hin dá- samlega heimska og afkára- skapur, sem hún gerir sér upp, er svo ósvikið og einlægt og náttúrulegt, að hún hlýtur | sannai'lega að vera með beztu leikkonum okkar. Og hún átti lika aðdáun allra áhorfeixda þetta kvöld. Langflestir leikararnir virð- ast vera talsvert sviðvanir en ekki eftir því þjálfaðir. Sumir þeiri'a leika, ekki aðeins af miklum áhuga, heldur af svo mikilli atorku, að þeir eru lengst af utan og ofan við hlut- vei'kið. Þetta einkennir þrjót- ana þrjá, nema helzt Eagnar Magnússon, sem hefir bezt hóf á bægslaganginum. Af aðal- leikurum er ofurstinn Guðjón Einarsson svo ójafn í mæli, sem stingur í stúf við hið ágæta gervi, að tal hans kemur í gus- um um of, enda þótt hounm takist oft vel í geðshræringum. Katla Ólafsdóttir er eiginlega full „sönn“ innan um allan af- kái'askapinn. Og tilhugalíf unglinganna er hvorki fugl né fiskur. Að öllu samanlögðu er þetta hið skellihlægilegasta grin. Hafi allir aðstandendur þakkir fyrir dugnað og áhuga og Steinunn Bjaraadóttir lof fyrir leikinn. Leiktjöld gerði Magnús Páls- son og þau gerðu sýninguna heilsteyptari en ella. G. B. MokafEi hjá Akureyrartogurum. Sfuiida ílcslir veiðar vid JSý- fi:<ii(lEialand. Akureyri í morgun. Mokafli hefur verið hjá flest- um Akureyrartogaranna að ! undanförnu, einkum þeim, sem stundað hafa veiðar á hinum nýju karfamiðum við Ný- fundnaland. Þrír togarahna hefa veitt þar vestra að undanförnu, Kaldbak- ur, Svalbakur og Harðbakur. Um miðja síðustu viku kom Kaldbakur af Nýfundnalands- miðum með fullfermi af karfa. sem allur fór í hraðfrystingu á Akurey.ri. Togarinn fór út aftur s.l. sunnudag. Svalbakur kom af sömu miðum 2. nóv. s.l. með 283 lestir af karfa. Togar- inn fór á veiðar aftur daginn eftir. Hann v.ar í gær búinn að afla 120 lestir og hefur til- kynnt löndun ri.k. mánudag. Togarinn Harðbakur landaði föstud.aginn 7. nóv. .343 lestum af karla og fór á veiðar á sunnu- daginn. Sléttbakur stundaði veiðar, einn Akureyrartogai'- anna, á Vestfjarðamiðum, og fór með afla sinn til Þýzka- lands. Hann seldi afla sinn. ca. 130 lestir, í Cuxhaven 8. þ. m. fyrir rúmlega 102 þúsund mörk. Togarinn' lagði af stað til ís- lands s.l. þriðjudag. Vegna hins mikla afla togai'- anna og löndunar þeirra á Ak- ureyri hefur verið mjög mikil atvinnar-þar í landi að undan- förnu. Deildi a skólakerfi landsins. Akureyri í morgun. í gær flutti Jónas Þorbergs- son fyrrv. útvarpsstjóri erindi um þjóðfélags- og uppeldisniál í Alþýðuhúsinu á Akureyri. Erindi sitt nefndi ræðumaður „Brotalöm íslenzkra sögu- tengsla" og deildi í því fast á núverandi skólakerfi. Taldi ræðumaður fulla þöi'f á að kennsla á fyrstu árum skólaskyldunnar yrði að mestu leyti vei'kleg og að hin bóklega ítroðsla hæfist ekki fyrr en um eða eftir 10 ára aldur barnsins. Kringkonur endurtaka kvöSdskemmtun. Kvenfélagið Hringurinn hélt ; kvöldvöku í Sjálfstæðishúsinu s.I. föstudagskvöld. Fjöldi fólks varð frá að hverfa, enda var um óvenju- fjölbi’eytt skemmtiatriði að ræða og fýsti mai'ga að sækja skemmtun þessa. Hefur því ver- ið ákveðið að endurtaka skemrrit unina í Sjálfstæðishúsinu næst komandi sunnudagskvöld, en ekki næstk. laugardagskvöld eins og misi'itaðist í Morgun- blaðinu í morgun. ýatla Ólafsdóttir, Guöjón Einarsson, Steinunn Bjarnadóttir, Uóra Iteyndal og Harry Einarsson ss% a> Eftirtaldar bækur eru nýkomnar í bókaverzlanir: 1. „Svíður sárt í brenndum" Ekki þarf að minna á, að bóka Guðrúnar frá Lundi ei* ævinlega beðið með mikilli eftii’væntingu af alþýðu manna til sjávar og sveita. — Sagan, sem nú er komin i bókaverzlanir, er ný, hefur hvergi birzt áður og gerist á síðustu árurn í sveit og við sjó. Verð bókarinnar er sama og á þeirri, sem kom í fyrra: Kr. 125,00. 2. Hanna, vertu hugrökk Sjötta bókin í röðinni af hinum vinsælu Hönnu-bókum. Fimmta bókin, „HANNA HEIMSÆKIR EVU“, kom í vor og er nú því nær uppseld. 3. Matta-Maja vekur athygli Að undanteknum HÖNNU-bókunum hafa engar telpna- bækur náð jafnmiklum vinsældum og sögurnar um Möttu-Maju. 4. Jonni í ævintýralandinu Segir þar frá 13 ára röskum dreng af enskum ættum og vini hans, kínverskum dreng, sem lenda í miklum ævintýrum í frumskógum Malajalanda. Um þessa bók hefur verið skrifað: „Sagan er ótrúlega skemmtileg og spennandi, en auk þess hefur hún að geyma ógleyman- legar lýsingar á töfrum frumskógarins og háttum og siðum frumbyggja þessara landa.“ 5. Kim og félagar Hér kemur fyrsta bókin í bókaflokknum um Kim og félaga hans. Kim er hörkuduglegur strákur og lendir mörgum æsandi ævintýrum, en þið munuð kynnast því, hvernig honum t.ekst að greiða úr þeim flækjum. 6. Sonur veiðimannsins Höfundur þessarar bókar, Karl May, er víðfrægur fyrir Indíánasögur sínar, og eru þær þýddar á mörg tungu- mál. Sonur veiðimannsins gerist á sléttum Norður- Ameríku á þeim tímum, er ekki var þar komin nein föst byggð, en aðeins Indíánaflokkar og hvitir veiði- menn reikuðu um slétturnar. — Fyrsta bókin af sög- um Karls May um hina villtu Indíána og veiðimenn: „Bardaginn við Bjarkagil“ kom fyrir síðustu jól og er nærri uppseld. 7. Smaladrengurinn Vinzi Eftir Jóhönnu Spyri. Meðal vinsælustu unglingabóka, sem þýddar hafa verið á íslenzku, er sagan af Heiðu, eftir Jóhönnu Spyri. Sú bók er löngu uppseld, en myndasagan af Heiðu og Pétri hefur komið í einu af dagblöðunum og kvikmyndin af þeim naut óvenju- mikilla vinsælda. Þó er af mörgum talið, að sagan af litla smaladrengnum Vinzi sé bezta bók .Jóhönnu Spyri. Sagan gerist í hinu undurfagra landslagi sviss- nesku alpanna og lýsir hinu nána sambandi ungling- anna við húsdýrin. 8. Stefán Sigurðsson kennari þýddi. Fyrir nokkrum árum kom þessi bók út undir nafninu Boðhlaupið í Aiaska. Hér kemur hún í nýrri útgáfu. í bókinni segir frá mikilli hetjudáð, er fimm menn lögðuTíf sitt í hættu til þess að bjarga börnunum í Nome í Alaska frá því að verða barnaveikinni að bráð. Og þó var það George litli, sonur læknisins, sem fann ráðið til þess að koma hinu dýrmæta lyfi á leiðarenda. Sagan er fögur og ógleymanleg. 9. eftir Robert Stevenson. — Gulleyjan, þessi spennandi sjóræningjasaga, hefur verið þýdd og lesin á fjölmörg- um tungumálum og kvikmynduð í ótal útgáfum. Hver er sá, sem ekki kannast við einfætta sjóræningjann, sem öllum skaut skelk í bringu. Lýsingar Stevensons á hinum hrjúfu mönnum, sem fengust við sjórán á átj- ándu öld, eru .Ijósar og snilldarlegar og gleymast áldrei. 10. Tfgrlsdýríð frá Sasi Pedrö Ekki þarf að Iýsa Sherlock Holmes leynilögreglu- sögum. — Þær eru lesnar af ungum og gömlum og fyrnast ekki. — Allar bessar bækur eru í vandáðri útgáfu, nijög ódýrar. ^Prentsmiðjan LEIFTUR Bezt ai) auglýsa í Vísj

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.