Vísir - 17.11.1958, Qupperneq 12
Ekkert blað er ódýrara í áskrift en Vísir.
Látið hann færa yður fréttir og annað
lestrarefni heim — án fyrirliafnar af
yðar hálfu.
Sími 1-16-60.
Munið, að þeir, sem gerast áskrifendur
Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið
ókeypis til mánaðamóta.
Sími 1-16-60.
Mánudaginn 17. nóvember 1958
Skrípakosningar í 2
kommúmstarikjum,
Fólki smalað á kjörstaði í A.-Þýzka-
landi og Ungverjalandi.
E;nt var til „kosninga“". í
tveim af leppríkjum sovét-
stjórnarinnar í gær og var
fólki smalað á kjörstaði að
venju.
Heldur gekk þó smölunin
betur i Austur-Þýzkalandi, því
að þar voru menn jafnvel látn
ir fara í hópum og lúðrasveitir
hafðar í fararbroddi, til þess að
allt væri sem hátíðlegast. Er
þess sérstaklega getið, að Otto
Grotewohl, forsætisráðráð herra
A.-Þýzkalands af náð sovét-
stjórnarinnar, hafi kosið manna
fyrstur á sínum kjörstað og
hafi hann kosið fyrir allra
augum^ en ljósmyndarar voru
hafðir viðstaddir, svo að hægt
væri að sýna mönnum ráðherr-
ann á kjörstaðnum^ þar sem
hann gerði skyldu sína við
flokk og skipulag.
Fregnir frá Berlín herma,
að þar hafi sérstök nefnd
haft á hendi smölun í hverju
hverfi og jafnvel í hverju
stóru fjölbýlishúsi .og var
hlutverk hennar einnig að
láta menn vita, að fylgzt
vœri með gerðum þeirra á
kjördaginn.
Árangurinn lét heldur ekki á
sér standa, því að austur-þýzka
stjórnin gat tilkynnt seint í
gærkvöldi, að þátttakan hefði 1
heild orðið 96,7 af hundraði,
en víða hefði hver maður neytt
atkvæðisréttar síns.
Eitthvað voru Ungverjar hins
vegar erfiðari viðfangs, eða
skipulag flokksins ekki eins
fullkomið. Þar varð kjörsókn
ekki nema rúmlega 90%.
Byltíng í Súdan.
Bylting hefur verið gerð i Súd.
an og hefur herinn tekið í sínar
hendur öll völd í landinu.
Er það haft eftir forustumönnum
byltingarsinna, að þeir hafi tekið
völdin í landinu til að binda endi
á gerviaðskilnað Arabíska sam-
bandslýðveldisins (Egyptalands
og fleiri ríkja) og Súdans.
Auði stóllinn á myndinni (að baki t.h.) hefur jafnan verið „að-
setur“ Aksels Larsens, foringja danskra kommúnista til skamms
tíma. Nú hefur Larsen verið sviftur formennskunnni og rekinn
úr flokknum að auki.
Flutningar með
áróðursgildi.
Globemaster — ein
stærsta gerð af flugvélum,
sem til er — lenti fyrir þrem
dögum á flugvellinum við
Varsjá. Var það í fyrstaj
skipti, að svo stór flugvél
lenti þar, og að auki flugvél,
sem skráð var vestan járn-
tjalds. Vakti koma liennar
mikla athygli og þó keyrði
fyrst um þverbak, þegar
,,ginnungagap“ vélarinnar
laukst upp og út úr henni
rann tveggja lesta vörubif-
reið, sem ætluð var banda-
ríska sendiráðinu í borginni.
Að sjálfsögðu hefði verið
hægt að scnda hana sjóleiðis,
en slíkir flutningar hefðu
ekki haft sama auglýsinga-
gildi.
Hjólbarðaþjófur gripinn.
Innhrot t efnaiang i nátt.
Á laugardaginn tók lögreglan inn og gerðu leit i honum og
lijólbarðaþjóf hér i bænum.
Hafði lögreglunni borizt til-
kynning um grumsamlegar ferð-
ir ákveðins bils nóttina áður. Hóf
lögreglan þá leit að bílnum á
laugardaginn og leitaði allan dag
inn fram á kvöld. Þá fannst bíll-
inn loksins í umferðinni i bæn-
um. Lögreglumenn stöðvuðu bíl-
Haustmótið:
Fyrsta tapskák
iémars.
Rei
Brezkur víðavangshlaupari
varð fyrir óvenjulegri árás
á laugardaginn. Ugla flaug
á hann og reif búning lians.
-fc Hollendingar segjast vera
fúsir til að hafa liersveitir
í Vestur-Þýzkalandi.
Mikil síld nærri Noregi.
Bátar verða varír við miklar torfur.
Frá fréttaritara Vísis.
Osló í gær.
Mikið magn síldar er á venju-
legum miðum undan ströndum
Noregs, segja skipverjar á tveim
bátum frá Álasundi, er komnir
eru fyrir skemmstu að landi.
Halda sjómennirnir, að þarna
■sé um feitsíld að ræða að ein-
hverju leyti, og magnið mun svo
mikið, að það er talið borga sig
fyrir báta að reyna veiðar.
Skipverjar á öðrum bátnum
segjast hafa siglt yfir síldar-
torfur á fullri ferð í 20 mínút-
ur, og þegar ljóskastara var
brugðið upp og lýst í kringum
bátinn, glampaði hvarvetna á
síld.
Ætlunin var, að síldarleit og
rannsóknir hæfust úti fyrir
vesturströndinni í dag, en að
sjálfsögðu liggur ekkert fyrir
enji um árangur. Síldarverk-
smiðjurnar hafa mikinn hug á
að athugað sé, hvort unnt sé að
hefja veiðar.
Veiðar á fs-
landsmiðum.
Gert er ráð fyrir, að norsk
skip hafi veitt alls um 240 þús.
tunnur síldar á miðum við ís-
land á síðasta sumri. Hafa bor-
izt skýrslur um nærri 210 þús.
tunnur, en ókomnar eru skýrsl-
ur frá mörgum bátum. Af þessu
magni voru rúmlega 90 þús.
tunnur kryddsíldar.
Annars eru bátar, sem verið
hafa að síldveiðum djúpt und-
an íslandi, allir á heimleið, þar
sem veður hefur spillzt og erf-
itt að athafna sig vegna sjó-
gangs. Afli hefur líka verið
tregur, því að bátarnir hafa að-
eins 2—400 tunnur. Stafar þetta
a fþví, að síldin heldur sig miklu
dýpra að þessu sinni en áður.
Reimar Sigurðsson tapaði í
gær fyrátu skák sinni í Haust-
móti Taflfélags Reykjavíkur.
Var það biðskák sem hann
átti við Jón Pálsson, og lauk
henni eins og að framan er
sagt, eftir 95 leiki.
Úrslit annarra biðskáka, sem
tefldar voru í gær, urðu þau að
Stefán Bri’em vann Eirík Mar-
elsson, en Ágúst Ingimundarson
og Ragnar Eiríksson gerðu
jafntefli.
Enn er Reimar efstur og hef-
ur 6 vinninga. Næstir honum
eru Jón Pálsson með 5 vinn-
inga eftir 6 skákir og Jónas
Þorvaldsson með 5 vinninga úr
7 skákum, Guðm. Ársæls-
son hefur 4% vinning og bið-
skák og Stefán Briem 4%
vinning.
Áttunda umferð verður
tefld í kvöld.
Hæsti útgjaldaliðurinn á
finnska fjárlagafrumvarp-
inu fyrir næsta ár er 29.5
milljarðar marka til að
bæta úr atvinnuleysinu.
Búizt er við, að atvinnu-
leysingjar verði orðnir
100.000 talsins þegar líður
á vetur. Útgjöldin eru áætl-
uð samtals 299.4 miljarðar
marka, og er það 1.3 mill-
jarði marka lægra en á
fjárlögum þessa árs.
Hussein, kóngur í Jórdaníu,
varð 23ja ára á föstudag-
inn.
fundu þá þrjá hjólbarða aftur í
honum. Við yfirheyrslu játaði
bílstjórinn að hann hefði stolið
tveimur þeirra uppi í Hlíðar-
hverfi.
Innbrot.
Innbrot var framið í nótt í af-
greiðslu efnalaugarinnar Hjálp,
sem er til húsa í skúrbyggingu
að Grenimel 12. Þar var stolið
einhverju af karlmannafatnaði,
en ekki vitað hve miklu. Fyrir
utan húsið var stolið skellinöðru
af Javagerð R-694, rauðbrúnu að
lit.
Slys.
Á laugardaginn datt kassi úr
stroffu við uppskipun úr Drottn-
ingunni og lenti á manni, sem
var að vinna við uppskipunina,
Helga Vilhjálmssyni í Knoxbúð-
um. Var hann fluttur í Slysavarð
stofuna.
Þá var lögreglunni gert aðvart
um ölvaðan mann, sem dottið
liafði og meitt sig við Sjómanna-
skólann. Hann var fluttur til
læknis.
50 þús. lestír
af karfa.
Nú lætur nærri að unt 50
þúsund lestir af karfa hafi
borizt á land af Nýfundna-
landsmiðum og Grænlands-
miðum, síðan veiðar hófust
þar í sumar.
Þann 21. október höfðu
togararnir flutt til Reykja-
víkur 39,378 lestir og síðan
hafa komið 22 farmar, eða
um 6600 lestir. Til Reykja-
vikur höfðu því borizt fyrir
helgi um 45 þúsund lestir.
Aðrir staðir á landinu þar
sem karfi hefur verið lagð-
ur á land eru Hafnarfjörð-
ur, Isafjörður, Patreksfjörð-
ur, Akranes og Akureyri.
Aflamagnið sem landað hef-
ur verið á ofannefndum
stöðum er aldrei undir 5
þúsund lestum, er því heild-
armagnið sem á land hefur
komið aldrei undir 50 þús-
und lestum, enda hefur
aldrei jafnmikið af karfa
borizt á land á fslandi og í
haust.
Nákvæmar heildartölur
liggja ekki fyrir hendi.
Ásiin að verki.
Japönsk blöð skrifa mikið um
það, að Akihito krónprins sé í
trúlofunarliugleiðingum.
Það er ekki nein háttsett að-
alsmær, sem pilturinn hefur
komið auga á, því að hin út-
valda er dóttir malara nokkurs,
og er 24ra ára, ári yngri en
prinsinn. Foreldrarnir eru sagð-
ir ráðahagnum samþykkir.
í kosningunum í Rhodesiu
og Nyasalandi hefir fráfar-
andi stjórn sigrað glæsilega.
Hlaut flokkurinn % þing-
sæta, en hann fylgir frjáls-
lyndri stefnu í kynþátta-
málum. Flokkslciðtoginn, R.
Velensky, er væntanlegur
til Lundúna í næstu viku.
V.-Berlín verður vonandi
ekki einangruð.
Ilrandá borgarsfjóri gerir
sér vonir um það.
Mikið hefur verið rœtt um
framtíð Berlínar síðustu dag-
ana, vegna ummœla Krusévs
um, að/sovétstjórnin hafi afhent
A.-Þjóðverjum öll völd í borg-
inni.
Vill Krúsév, að vesturveldin
geri hið sarna, kalli heim alla
sína menn, sem þar eru og láti
Berlínárbúa eða V.-Þjóðvertja
sjálfa um að stjórna málum sín-
um. Hinsvegar hafa vesturveld-
in svarað, að samningar gildi
um stjórn borgarinnar og vilja
enga breytingu. í því sambandi
hafa sumir látið í ljós ótta við,
að Rússar mundu enn setja
flutningabann á borgina, eins
og fyrir nokkrum árum, enda
látið að því liggja af kommún-
ista hálfu.
Meðal þeirra, sem rætt hafa
mál þetta upp á síðkastið, er
Willy Brandt, aðalborgarstjóri
í V.-Berlín, sem komst svo að
orði í gær, að ástæðulaust ætti
að vera að óttast, að afgreiðslu-
bann yrði settt á, því að senni-
lega mundu engin stórtíðindi
gerast í sambandi við borgina.
Um framtíð hennar og helztu
málefni væri í gildi alþjóðleg-
ur samningur, sem yrði vænt-
anlega ekki brotinn. Ætti þess
vegna að vera óþarfi að grípa
til bandaríska flughersins til
að flytja nauðsynjar til borg-
asrjœtar.