Vísir - 19.02.1959, Síða 8
Kkkert blaS er ódýrara í áskrift en Vísir.
Látið hann fœra yður fréttir ejg annað
yðar hálfu.
Sími 1-16-60.
ylsiR
Fimmtudaginn 19. febrúar 1959
Munið, að þefei; sem gerast á>krifendur '
Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðlö
ókeypis til mánaðamóta,
Sími 1-16-60.
Gífurlegt tjón af völdum veður-
ofsa á Akureyri og í Eyjafirði.
Fárviðrið brast á í gærmorgun og
sumir telja það mesta veður í hálfa öld
— í»ök fukai. veggir liroánaiðiK. íré
sleit upp með róáuna.
Frá fréttaritara Vísis.
Akurej’ri » orgun.
í gærmorgun brast hér á Ak-
ureyri, um Eyjafjörð og Þing-
eyjarsýslur eitt hið mesta stór-
viðri af suðvestri sem komið
liefur um áratuga skeið og hef-
ur það valdið gífurlegu tjóni í
heild.
f alla fyrrinótt hafði geysað
hvassviðri, en herti á veðrinu
imdir morguninn og náði há-
marki frá því klukkan að ganga
átta og til hádegis í gær.
Á Akureyri fuku járnplötur
af fjölmörgum húsum, rúður
brotnuðu víða, grindverk fuku,
loftnet slitnuðu niður og allt
fauk sem fokið gat. Meðal ann-
ars má geta þess að velflestar
sorptunnur sem stóðu vestan
íundir húsum á Akureyri stigu
djöfladans, ýmist um háloftin
eða eftir götunum og innihald
þeirra fauk sem skæðadrífa um
allan bæinn.
Nokkrir bílar urðu fyrir
meiri eða minni skemmdum af
foki, einkum af völdum járn-
plata, sem lentu á þeim.
í Gróðrarstöð Akureyrar urðu
stórsdcemmdir á trjágróðri. Með-
al annars reif þar 9 stór lerki-
tré upp með rótum, flest um 10
metra há og yfir hálfrar aldar
gömul, Það stærsta þeirra var
1% metri ummáls um stofninn.
Fjölda mörg tré önnur urðu og
fyrir skemmdum og reynt var
eftir föngum að binda þau nið-
ur.
Á ýmsum stöðum öðrum reif
tré upp með rótum úr trjágörð-
um og þ. á m. stærsta tré Ak-
ureyrar, 11 metra hátt sem
stóð við húsið nr. 52 við Aðal-
stræti. Tréð fauk langar leiðir
en um eins metra djúp gryfja
var þar, sem tréð hafði staðið
áður.
Allan morguninn unnu lög-
reglumenn með aðstoð verka-
mnna frá vatnsveitu og bæjar-
verkfræðingi að því að hjálpa
til þar sem þörfin var mest, m.
a. að því að negla niður þök og
50 drepnir í
Fr. Kongó.
S.l. mánudag kom til óeirða
í Brazzaville í Franska Kongo
og höfðu 50 menn verið drepnir,
er síðast fréttist.
Stjórnmálaerjur eru þar
miklar og ættbálkar flækst í
deilurnar.
koma í veg fyrir frekarí
skemmdir.
Börn og unglingar fóru ýfir-
leitt í skólana í gærmorgun
þrátt fyrir veðurhæðina, en
lögreglan annaðist flutning á
börnunum heim aftur og fékk
til þess strætisvagna bæjarins.
Eftir hádegið var öllum skólum
lokað.
Rafmagnstruflanir urðu tals-
verðar og símasmbandslaust um
tíma út úr bænum.
Við höfnina tók út 12 lesta
hringnótabát og 33 feta langan,
sem stóð þar uppi á malar-
kambi skammt frá frystihúsinu
nýja. Hann fauk út á sfió, rak
síðan yfir fjörðinn og náðist
þar í fjörunni stórskemmdur.
Særokið var svo mikið að
naumast sá út á Pollinn.
' í nágrenni Akureyrar urðu
meiri og minni skemmdir. Á
Kotá hjá Akureyri fauk 20
hesta hey, enn fremur þak af
hlöðu og fjárhúsi. Þkið brotn-
aði niður í fjárhúsið, sem í
voru 30 kindur og drápust 3
þeix-ra. Veggirnir, sem ýmist
voru úr torfi, grjóti eða timbri,
hrundu til grunna. Hey fuku
víðar á bæjum, en yfirleitt ekki
um stórtjón að ræða af þeim
sökum.
Meiðsli á fólki urðu ekki
tedjandi, þó munu tvær aldrað-
ar manneskjur, sem hættu sér
út fyrir hússins dyr, hafa skoll-
ið um og meiðzt.
í Kræklingahlíð skemmdust
víða þök á útihúsum, hey fuku
og heyvagnar sem brotnuðu í
spón. Á Þrastarhóli féll fjárhús
Verkalýðssamband jafnaðar-
manna í Belgíu ákvað í gær,
að allir námumenn Iandsins, á
annað hundrað þúsund, skyldu
taka þátt í verkfalli í námun-
um, en þegar þetta var boðað,
voru verkfallsmenn orðnir
yfir 50 þúsund.
Verkföll þessi eru háð til
þess að mótmæla þeirri ákvörð-
un ríkisstjórnarinnar, að hætta
starfrækslu náma, sem ekki eru
arðbærar lengur. Ýms önnur
verkalýðs- og iðnfélög hafa
gert samúðarverkföll. Komið
hefur til uppþota sumstaðar og
veggur inn, en fé sakaði ekki.
Á Dvergsstöðum í Glæsibæj-
arhreppi brotnuðu sex öflugir
raímagnsstaurar, sem báru
uppi raflínuna' frá Akureyri.
Þykir það einsdæmi að jafn
sterkir staurar brotni af völd-
um veðurhæðar þegar ísing er
ekki að verki.
í Hrísey fauk járn af húsum
og rúður brotnuðu, en að öðru
leyti var þar ekki um stórvægi-
legar skemmdir að ræða.
í Eyjafirði fram vai’ð veður-
hæðin ekki eins gífurleg og hún
varð utar í héraðinu og þar
hefur ekki frétzt um neina
meiri háttar veðurskaða.
Út með Eyjafirði að austan
varð veðurhæðin óskapleg og
telja elztu menn sig ekki muna
annað eins rok. í Grenivík fuku
plötur af húsaþökum og hey
sums staðar, og á bænum Litla-
Gerði fauk þak af hlöðu.
Á Svalbarði á Svalbarðs-
strönd tók hálft þakið af íbúð-
arhúsinu og víðar þar á strönd-
inni fuku járnplötur af húsum.
Auk þess slitnuðu rafleiðslur
og fleira tjón varð. Sögðu Sval-
barðsstrendingar að annað eins
veður hafi þar ekki komið í
hálfa öld.
í gær var 1—3 stiga hiti á
Akureyri, en í dag er sunnan-
andvari og gott veður.
Tiaiiis skVrir frá
áras.
Tunisstjórn hefur sent Or-
yggisráði Sameinuðu þjóðanna
greinargerð um árás franskra
orrustuflugvéla á þorp í Tunis
s.I. laugardag.
Ekki er árásin kærð form-
lega, en þess óskað að öll að-
ildarríki S. þj. fái afrit af
skýrslunni.
járnbrautarsamgöngur stöðvast
á nokkrum stöðum.
Málið er til umræðu á þingi.
Er búist við miklum atökum á
þingi í dag.
Nokkuð er rætt um hver
áhrif þetta muni hafa á Kola-
og stálsamsök Vestur-Evrópu,
en sumum þykir sveiga í þá átt,
bæði í Vestur-Þýzkalandi, og
Belgiu, að hlíta ekki fyrirmæl-
um stjórnar þess, ef það kemur
í bága við heimahagsmuni.
Búist er við algerri vinnu-
stöðvun í belgiskum kolanám-
um.
Alger vinnustöðvun í
belgískum kolanámum.
ITmræða á þingi í dag og mikil
áiök framundan.
Eltki eru öll kurl komin til grafar enn, að bví er sprengjur frá
stríðsárunum snertir. Nýlega þurftu Þjóðverjar að hleypa af
öllu vatni við Sorpc-stífluna í Sauerlandi, og kom þá í Ijós þar
12,000 punda sprengja, sem Bretar höfðu varpað' í árás haustið
1944 en ekki sprungið. Brezkur sérfræðingur var þegar fenginn
til að gera spengjuna óvirka, og tókst honúm það — með' að-
stoð þýzks sérfræðings — eftir klukkustund. En lieldur voru
menn taugaóstyrkir, meðan á því stóð eins og nærri má geta.
Myndin sýnir sérfræðingana tvo takast í hendur að loknu verki.
Fárviðri var í Vestmanna-
eyjum í gærmorgiin.
Eyjaskeggjar sáróánægðir vegna sleifar-
lags í flugvalðarmábnum.
Frá frétlaritara Vísis. —
Vestm.eyjum í morgun.
Enn gerði fárviðri hér í
fyrrinótt með 15 stiga vind-
hraða.
Samgöngur milli lands og(
Eyja hafa verið litlar að und-
anförnu og flugsamgöngur
ekki í marga daga.
Hafa Vestmannaeyingar
sjaldan eða aldrei fundið jatn
átakanlega til þess sern nú
hvílíkt sleifarlag ríkir í flug-
vallarmálum þeirra eyjar-
skeggja. Þar er í fyrsta lagi
ekki nema ein flugbraut og iðu-
lega ekki lendingarfært á
henni í bezta veðri, ef aðeins
nokkur gola stendur á hlið.
Hpfur það verið óskadraumur
Vestmannaeyinga í mörg ár að
fá þverbraut á þá flugbraut
sem nú er fyrir hendi, því með
þeim hætti yrði að verulegu
leyti ráðin bót á samgöngu-
málum Eyjarskeggja, sem ar.n •
ars eru í hinum mesta ólestri.
Þykir Vestmannaeyingum oeir
vera sniðgengnir mjög um
framlög til flugvallargeröar,
ekki sízt með tilliti til þess hve
Skíðakennsla á
Amarhóli í kvöld
Skíðaráð Reykjavíkur efnir
til skíðakennslu fyrir almenn-
ing á Arnarhóli í kvöld.
Kennslan hefst kl. 20, og
verður Svanberg Þórðarson
kennari og leiðbeinandi (Svan-
berg er bróðir Eysteins skíða-
kappa, sem nú er erlendis.
Nú er mjúkur, nýfallinn
snjór, og má því búast við
silkifæri í kvöld og fjölmenni
á Arnarhól, til að færa sér í
nyt hina ágætustu kennslu á
skíðum, sem veitt er ókeypis.
rík áherzla er lögð á flugvall-
argerð á Akureyri, sem þegar
hefur hinn ágætasta- flugvcll
og á Norðfirði, en þangað er
ekki flugfært hvort eð er nema
endrum og eins sökum þoku
sem þar ríkir oft dögum saman.
í öðru lagi er það ljóst dæmi
um sleifarlagið í flugvallar-
málum Vestmannaeyinga að
þar eru engin berghöld, engar
festingar til að binda flugvélar
niður nema fyrir austanátt. í
þriðja lagi er þar ekkert flug-
vélarskýli og í fjórða lagi engiu
brautarlýsing, sem þó myndi
oftlega koma að verulegu
gagni. Oft er það í suðlægri átt
að þótt hvasst sé í Vestmanea-
eyjum fram eftir degi, lægir
oft eftir miðjan dag, eða um
þrjúleytið. Að vetri til er þá
alltof seint að hugsa til Vest-
mannaeyjaflugs frá Reykjnvíl:,
því flugvél getur hvorki lent
né hafið sig til flugs eftir að
rökkva tekur á meðan braut-
arljós hafa ekki verið sett upp
Borg —
Framh. af 1. síðu.
'V
en það var allt sviðið. Þilklæðn-
ing var úr panel, sem brann að
sjálfsögðu. Allt brann í risinu
og gólf þar, en gólfið á aðalhæð
ekki meira en svo, að það er
mannhelt. Eldurinn komst ekki
í hinn enda hússins, þar sem
bóndinn býr, en þar urðu þó
einhverjar skemmdir af vatni
og reyk. En íbúð prests verður
sem sagt ónothæf um ófyrirsjá-
anlegan tíma, enda þótt útvegg-
ir standi.
Pretur á Borg á Mýrum er Leó
Júlíusson.
Þess má geta um prestseturs-
húsið á Borg, að það var upp-
haflega bygg í Kóranesi við
Straumfjörð á Mýrum.