Vísir


Vísir - 21.02.1959, Qupperneq 4

Vísir - 21.02.1959, Qupperneq 4
4 ! Laugardaginn 21./ febrúar 1950 VÍSIR DAGBLAÐ Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIE H.F. Víslr kemur út 300 daga á ári, ýmist 8 eða 12 blaðsíður. Ritstjórl og ábyrgðarmaður: Hersteinn Fálsson. Skrifstofur blaðsins eru í Ingólfsstræti 3. Ritstjófnarskrifstofur blaðsins eru opnar frá kl. 8,00—18,00, Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00. Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00—19,00. Sími: (11660 (fimm línur) Vísir kostar kr. 25.00 í áskrift á mánuöi, kr. 2.00 eintakið í lausasölu. Félagsprentsmiðjan hl. Sýnuni Það eru mörg ár, síðan Kvenna- deild Slysavarnafélagsins hér í Reykjavík valdi sér konudaginn í upphafi góu til fjarsöfnunar í þágu starf- semi sinnar. Ævi Slysa- varnafélagsins er ekki löng, en félagið hefur unnið mik- ið og merkilegt starf, sem aldrei verður fullþakkað, og um það verður elcki deilt, að ef konurnar hefðu ekki unn- ið af alúð og frægum dugn- aði fyrir þetta málefni, væri alls ekki búið að ná þeim mikilvægum áföngum, sem þegar hefur verið náð. Einhvern tíma var það sagt hér í blaðinu, hvort sem það var í sambandi við slysa- varnamálin, barnaspítalann eða eitthvert annað málefni, sð þegar konurnar tækju sig *. til og ákvæðu að hrinda einhverju í framkvæmd, gæti enginn mannlegur máttur stöðvað þær. Þær I hefðu sitt fram, og það er harla gott í mörgum tilfell- ! um, ekki sízt í málum eins og þeim, sem hér hafa verið nefnd. Kvennadeildir Slysa- varnaféiagsins eru ekki sér- staklega stórar eða fjölmenn, ar á hverjum stað, en dugn- aður meðlimanna er þeim mun meiri, svo að ekkert stenzt, þegar þær taka sig til fyrir alvöru. Nú er enn komið að því, að konurnar, gefi almenningi kost á að leggja nokkurt fé af mörkum til slysavarna, því að enn er komið að konudegi, enn efna konurnar til söfnunar, svo að enn miði í áttina að því marki, að slysavarnir hér á landi verði einsfullkomnar og kostur er. Þótt mikið hafi verið gert á viijann! undanförnum árutn, koma þó alltaf ný verkefni, og nú er það meðal annars fram- undan að koma upp bæki- stöð fyrir Slysavarnafélagið og starfsemi þess, svo að það geti bætt þjónustu sína á marga lund. En vitanlega er það.margt fleira, sem deild- irnar beita sér fyrir. Ekki er ástæða til að rifja upp hina hörmulegu atburði, sem dunið hafa yfir íslenzku þjóðina síðustu vikurnar. Þeir eru öllum í fersku minni- og verða vafalaust lengi, hvort sem menn hafa átt ættingja eða vini meðal þeirra, sem farizt hafa eða ekki. Þessi slys minna menn á það, að auka þarf slysa- varnir, enda þótt þeim verði ekki ævinlega við komið, eins og þessi síðustu dæmi sanna. En þau ættu einmitt að vera hvatning til þess, að ekkert sé látið ógert, sem gæti orðið til þess að draga úr hættunum, sem ævinlega eru allt um kring', hvort sem er á sjó eða landi. Almenningur á nú að sýna, hversu átakanleg honum finnast þau slys, sem hér hafa orðið að undanförnu, með því að styrkja konurnar innan vébanda Slysavarna- félagsins af enn paeiri rausn en nokkru sinni fyrri. Það væri fagur vottur um hlut- tekningu almennings í sorg- um þeim mörgu, sem nú eiga um sárt að binda, ef menn létu kvepnadeildir Slysavarnafélagsins njóta góðs af rausn sinni, svo að starf þeirra mætti bera enn meiri árangur á komandi tímum en á liðnum árum. Pantaðar samþykktir. Það er gamanþekkt kommún- istabragð að panta allskonar samþykktir hjá félögum og samtökum, sem þeir ráða yfir, til þess að skapa eins- konar ,,almenningsálit“ í málum, sem þeir telja mikil- væg, Er þetta sú aðferð, sem þeir beita í sæluríkjum sín- um, þar sem vinnustöðva- fundir og verksmiðjusam- komur eru stimpill á gerðir valdhafanna, ef mikið þykir við liggja. Að undanförnu hefur það verið áberandi, hversu miklir kærleikar hafa verið með kommúnistum og framsókn- L armönnum, sem eru á margan hátt sem einn flokk- ur" síðan þeir fóru úr ríkis- stjórn. Nú hafa framsóknar- menn meira að segja tekið upp þá bardagaaðferð kom- múnista, sem fólgin er í að panta samþykktir og birta síðan. Panta f-ramsóknar- menn nú slíkar samþykktir varðandi kjördæmamálið, enda þótt endanlegar tillög- ur í því sé ókomnar fram, og síðan er Tíminn látinn birta „Þjóðviljann" til að sýna hug almennings í land- inu. Hvenær skyldu fram- sókn og kommúnistar sam- einast í einn flokk? VlSIB KIRKJA O G TRIMAL: Huggim í liiirmi. „Til blessunar varð mér hin sára kvöl“ (Jes. 38,17). Þannig fórust manni orð end- ur fyrir löngu. Þótt orðin séu ekki mörg, segja þau mikla sögu, þrautasögu fyrst, tjáða í tveimur orðum. Hann talar um sára kvöl, þungbæra raun. Hann hafði staðið í þeim sporum, að ekkert komst fyrir í huga hans, nema þetta eina — sársaukinn, kvölin vegna þess, sem við hafði borið og hann fékk bkki skilið né á neinn veg valdið og ekki með orðum tjáð. Dýpsta sæla og sorgin þunga eiga samleið í þessu, að þeirra mál ei talar tunga, tárin eru beggja orð. Og sumt er oss þyngra en tárum taki. 1 slíkum sporum er veikur maður smár. Hinn óvænti harm- ur getur orðið um megn, hin sára kvöl yfirbugað. En Biblian, svo raunsæ sem hún er á mannlifið og skugga- hliðar þess, er ekki vitnisburður veikra manna um vanmátt sinn. Hún er orð himneskrar misk- unnsemi og almáttugs kærleika: „Ákalla mig í neyðinni og ég mun frelsa þig og þú skalt veg- sama mig.“ Það hafði þessi mað- ur gert í sinni kvöl og neyð. Og það rofaði til, birti í kringum hann, hann öðlaðist þrek til þess að bera byrði sina, hugrekki til þess að horfast í augu við hlut- skipti sitt, hann fann að líkn var lögð með þraut. Svo liðu tímar fram. Og þar kom, að hann horfði yfir gengin harmaspor í rósemi og trausti og þakklæti og gat sagt sög- una alla, sem orðin hans fáii fela í sér: „Til blessunar varð mér hin sára kVöl.“ Þetta er ekkert einstætt dæmi. Þessi maðúr er fulltrúi margra, karla og kvenna, fyrr og síðar. Ekki aðeins í þeim skilningi, að harmaskýin svört ber tíðum yfir áföll og slys, sárar raunir. Hún trúir ekki á þann Guð, „er venji á gott með slys sem tækifæri." Jesús Kristur, sem hefur birt oss Guð, lét ekkert tækifæri ónotað til þess að varna slysum, forða dauða, hann gekk á hólm við sjálfar höfuðskepnurnar til þess að varna grandi af þeirra völd- um. Guð er mannsins megin í baráttunni við reginöfl náttúr- unnar og allt, sem tjóni getur valdið. Guð striðir sjálfur í öllu mannlegu striði, með mannin- um og fyrir hann. En trúin veit hitt lika með ör- uggri vissu, að þótt barátta endi með ósigri mannsins, þótt hann verði að lúta fyrir ofurvaldi vizku og annað gefið. Ekki lausrt leyndardómsins. Stafróf þeirrar lausnar er of stórt fyrir oss. Oss er ætlað og gefið það hlýja orð frá hjartarótum tilverunnar, sem sefar, hughreystir, vekur trú, traust, öryggi barnsins í þessari dularfullu, óskiljanlegu tilveru. Vér þörfnumst þeirrar vitneskju, að handan þess sviðs, sem dauðleg augu sjá yfir, sé sá máttur miskunnar og kær- leika, sem harmana bætir og breytir böli og kvöl í blessun og náð. Þessi vitneskja og vissa er oss veitt. Vér megum treysta þeiira mætti, sem lífið lýtur. Guð hef- ur í Jesú Kristi opinberast sem sá kærleikur, er sjálfur þekkir hina sáru kvöl, sjálfur líður og fórnar og sigrar þannig fyrir vora hönd. Drottinn vor hefur krossinn að tákni. Of krossinra er einmitt hin fyllsta opinberura brims og boða, ísa og storma eða annars skaðræðis, þá eru möguleikar Guðs ekki tæmdir þar með. I-skugga hörmuleg- ustu atburða getur trúin enn sagt við Guð sinn í öruggu trausti: Þig vantar hvergi vegi þið vantar aldrei mátt, þín bjargráð bregðast eigi til bóta á einhvern hátt, þitt starf ei nemur staðar, þín stöðvar enginn spor, af himni er þú þér hraðar með hjálp og líkn til vor. Ægileg sjóslys hefur borið að höndum, hvert ofan í annað. Vér spyrjum, hvað valdi svo váleg- um hlutum og vonarsnauða vizk- an veldur köldu svari. Og vér I þurfum annað en köldu svörin. Það finnum vér, þegar vér hugs- um til þeirra, sem eiga um sár- ast að binda. Og oss er annað ætlað en andsvör vonarsnauðrar sannleikans, sem í orðunum felst: Til blessunar varð hin sára kvöl. Öll þjóðin hugsar til þeirra mörgu, sem hafa orðið fyrir þyngsta áfalli og nistingssárura harmi. Hún blessar minningu' þeirra sona sinna, sem létu lífið á hættusömum hólmi þeirrar lífsbaráttu, sem háð er fyrir þjóðina alla. Þeir eru margir, sem hugsa í bæn til sorgbitinna vandamanna þeirra. En öll mannleg hluttaka er aðeins berg- mál frá þeim föðurbarmi, sera heyrir sinum himni frá hvert hjartaslag. Hann mun snúa böli til bóta á einhvern hátt, sárrí kvöl i blessun. Hann segir: Ótt- ast þú eigi, því að ég er með þér, lát eigi hugfallast, því að ég er þinn Guð. Eg styrki þig, ég styð þig, bæti úr öllu og sigra í öllu um siðir. Guði séu þakir, sem gefur os3 sigurinn fyrir Drottin vorn Jes- úm Krist. Frú Helga Thorsteinson. IVIinningarorö. og oft óvænt. Hann er ekki held- ur einn um játningu sina að lyktum. Vera má, að flestir þeir, sem komnir eru til vits og ára, geti að einhverju leyti tekið und- ir vitnisburð hans, þótt í smáu kunni að vera, um það, að sárs- auki og raun hafi orðið til bless- unar eftir á. En hin sára kvöl, hin mikla, birta reynsla, hin myrka sorg? Er slíkrar játningar að vænta í hennar slóð? Einn missti allt, sem maður getur misst. Hann sagði: Drott- inn gaf, Drottinn tók, sé nafnið Drottins vegsamað. Annar sagði: Á sorgarhafsbotni sannleiks- perlan skín, þann sjóinn máttu kafa, ef hún skal verða þín. Þriðji sagði: Augasteinarnir stækka í myrkri og finna að lokum ljós í því, eins og sálin stækkar í neyðinni og finnur að lokum Guð. Fjórði sagði eftir voveiflegan atburð og hörmu- legt áfall: Nafn Drottins sætt fær böiið bætt, blessað sé það án enda. Dæmin mætti margfalda. Og þó eru fæst þeirra kunn. Fæst voru skráó. Slikir sigrar eru ekki auglýstir. Faðirinn, sem er í leyndum, vinnur sin máttar- verk í kyrrþey. Kristin trú er svo djörf, að hún fullyrðir það, að öll kvöl geti orðið til blessunar, Hún er ekki með þvi að afsaka eða rétt- læta hörmuleg atvik, átakanleg í dag er gerð útför írú Helgu Thorsteinson, Mímisvegi 8, hér í bæ, konu Árna tónskálds Thorsteinson. Frú Helga var fædd að Hraunum í Fljótum 22. dag októbermánaðar 1875, dóttir hinna gagnmerku hjóna Einars dannebrogsmanns Guðmunds- sonar og Kristínar, sem var dóttir Páls prests Jónssonar í Viðvík. Hinn 15. scpt. 1900 giftist Helga Árna Thorstein- son. var hið farsælasta, þár vaC samheldni og kærleikur ríkj-* andi á fögru heimili, og hira sanna lífsgleði kulnaði aldrei, jafnvel ekki á dögum mótlætis og djúprar sorgar. Þau hjón eignuðust tvær, dætur og einn son. Eldri dóttir- in, Soffía, er gift á Englandi, en hin yngri, Jóhanna er gjald- keri hjá Sjúkrasamlaginu. Son- ur þeirra, Árni, lögfræðingur og bankastarfsmaður, lést fyrit' mörgum árum. Var hann harm- Frú Helg'a átti í ríkum mæli dauði öllum, er hann þekktu, alla beztu kosti sterkrar ættar, j sakir ljúfmennsku hans og; hún var gædd mikilli lífsgleði og starfsorku og góðum gáfum, takmarkalausri góðvild og hlýleik hjartans, sem allir nutu er í návist hennar komu í langri ævi, en að sjálfsögðu framar öðrum ástvinir hennar, og hinir mörgu, sem áttu því láni að fagna, að kynnast henni. Mín fyrstu kynni af þessari góðu konu eru frá barns aldri, og þá, sem jafnan síðan, hefur mér fundizt, að eg hefi vart nokkurri mannneskju kynnst, fyrr og síðar, er ávallt var jafnbjart kringum. Frú Helga lét til sín taka á sviði mannúðar- og félagsmála og innti mikið starf og gott af hendi í þágu Thorvaldsens- félagsins og Hringsins. Hjóna- j band hennar og rnanns hennar1 1 göfuglyndis. Ástvinir og fjöldi annarra vina kveðja í dag hinnstu kveðju góða og göfuga konu með söknuði, en í hugum þeirra verður jaínan sama birtan yfir minningunum og yfir henni var á löngum ævi- ferli. ATH. Filippus drottningarmaður er nú á leið til Singapore í drottningarskipinu Brit- annia, sem lét úr liöfn á miðvikudag í Rangoon, era Filippus lieimsótti fyrstur manna af kommgsættinni Burma frá því það var<S sjálfstætt.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.