Vísir - 23.02.1959, Blaðsíða 1
12
sí5ur
12
síður
49. álg.
Mánudaginn 23. febrúar 1959
44. tbl.
ex bílstjórar teknir fyrir
olvnn við akstur.
Innbrot og þjófnaðir um helgina.
"Veruleg brögð voru að ölvun í
Reykjavík uin helgina og m. a.
tók lögreglan sex bifreiðarstjóra,
sem grunaðir voru um ölvun við
akstur.
Fjóra þessara bifreiðarstjóra
tók lögreglan i fyrradag og hafði
Þósundirnar
streyma að.
veí vi5.
Það er greinilegt, að al-
menningur ætlar að bregðast
vel við áskorun um að hlaupa
undir bagga með .vanda-
mönnum þeirra ,sem fórust
með togaranum Júlí og vita-
skipinu Hermóði, en í gær
var birt ávarp frá biskupi ís-
lands og fleiri mönnum um
þetta efni. Fyrsti maðurinn,
sem bað Vísi að koma gjöf
áleiðis fyrir sig, ónefndur
borgari, afhenti 500 krónur
fyrir klukkan tíu í morgun
og síðan bárust nokkrar gjaf-
ir minni, svo að fyrsta þús-
undið er þegar komið. — Þá
samþykkti Hið íslenzka
prentarafélag á 500. fundi
sínum í gær að leggja 5000
kr. í söfnunina. — Vonandi
verður áframhaldið eins, og
Vísir hvetur almenning til að
afhenda gjafir sínaí* sem
fyrst. — Ávarpið varðandi
söfnunina er birt á öðrum
stað í blaðinu í dag.
einn þeirra lent í árekstri inni á
Sundlaugavegi. I gærkvöldi eða
í nótt tók lögreglan tvo bifreið-
arstjóra, sem grunaðir voru um
, ölvun við akstur. Hafði annar
þeirra lent í harkalegum árekstri
á mótum Hringbrautar og Njarð
argötu, og urðu verulegar
: skemmdir á farartækjunum í
árekstrinum.
I
Innbrot og' þjófnaðir.
; Brotizt var í fyrrinótt inn í
bókaverzlun Sigfúsar Eymunds-
sonar í Austurstræti og stolið
þaðan 200—300 krónum í skipti-
mynt.
1 fyrinótt var farið inn í rúss-
neskan jeppa, sem stóð fyrir ut-
an Vetrargarðinn. Billinn var
þurrkaður að innan af öllum á-
höldum, sem í honum voru
geymd.
Þá var og stolið pyngju af
manni með 1500 krónum í pen-
ingum í fyrrakvöld eða fyrrinótt.
Hafði eigandinn setið að tafli í
svokölluðum Ásaklúbb þegar
hann varð stuldsins var og var
lögreglan þá kvödd á vettvang.
Slys.
Á laugardaginn var ekið á
dreng, sjö ára gamlan, á mótum
Spítalastígs og Þingholtsstrætis.
Drengurinn heitir Sveinn Benó-
nýsson til heimilis að Kárastig
3. Drengurinn var fluttur í slysa
varðstofuna, en ekki er blaðinu
kunnugt um meiðsli hans.
Slökkviliðið gabbað.
Slökkviliðið var tvívegis gabb
að á laugadag, en í þriðja skipt-
ið, sem það var kvatt út var
um linusnertingu að ræða og því
enginn eldsvoði.
Þessi mynd er úr rannsóknastofu Eðlisfræðlstofnunar Iláskólans, óg tækin sem sjást þarna, eru
notuð við mælingar á geislavirkni í lofti, láði og legi. Páll Theódórsson eðlisfræðingur situr
við borðið og stillir saman minna „járnhúsið“ og mælitækin í hilluborðinu, en Þorbjörn Sigur-
geirsson prófessor styður hönd á stærra „járnhúsið“. Sjá viðtal við þá atómfræðinganna á 7.
síðu blaðsins.
Macmillan vel fagnað í Rússlandi.
Hann er nú talinn ætla sér annað og
meira en að eins að „kanna hugina“.
Geíið í skyn, að griðasáttmáli
sé til uasiræðBi.
Frá fréttaritara Vísis.
Akureyri í morgun.
Það var ekki laust við að hýrn
aði yfir bæjarbúiun á föstudag-
inn var þegar 8 daga samfelld
bið eftir pósti var á enda og
fjórar flugvélar hlaðnar pósti
og farþegum komu til Akureyr-
ar. Síðan hefur verið flogið
daglega.
Allan þennan tíma var sam-,
göngulaust við Akureyri að
sunnan og sama kvöld og flug-
vélarnar voru hér, kom hrað-
ferðin að sunnan, einnig hlaðin'
pósti. Póstur er ekki sendur með
Það mnnar um miima:
Skyndileg og mikil hita-
breyting á Akureyri.
úr 13 st. frosti í 10 st. hita á eisini nóttu
skipum og verða menn því að
bíða, ef flugsamgöngur teppast.
Tíðarfarið hefur verið um-
hleypingasamt með afbrigðum.
Eins og áður hefur verið skýrt
frá í Vísi fóru Akureyringar
ekki varhluta af óveðrinu, sem
gekk yfir Norðurland og frá
því á laugardag til sunnudags-
morguns breyttist hitastigið um
23 gráður á Celsius. Á laugar-
dag var 13 stiga frost, en á
sunnudagsmorgun var komið
vorveður og 10 stiga hiti. í
morgun var hitinn nærri frost-
marki og hríðarmugga var á.
Þeir Harold MacmiIIan for-
sætisráðherra Bretlands og
Selwyn Lloyd utanríkisráðherra
komu aftur til Moskvu í gær-
kvöldi, efti að hafa dvalist í gær
á sveitarsetri Krúsévs fyrir ut-
an borgina.
Þar var ræðst við óformlega
í samtals um tvær klukku-
stundir. Setið var við arineld
og þar sem ekki voru til kvadd-
ir neinir sérfræðingar. er litið
svo á, að viðræðurnar hafi verið
um vandamálin almennt. í dag
hefjast formlegar viðræður íj
Moskvu og er gefið í skyn í
brezkum blöðum,
að Macmillan kunni nú,
þrátt fyrir fyrri yfirlýsing-
ar, að tilgangur hans væri
aðeins að kynnast og kanna
hugi sovézkra leiðt, að hafa
annað meira í hug, og jafn-
vel tæpt á griðarsáttmála.
Þessir menn voru viðstaddir
viðræðurnar á sveitarsetri Krús
évs í gær: Mikojan, varafor-
sætisráðherra, utanríkisráð-
herrarnir Gromyko og Selwyn
Llovd, Malik sendiherra sovét-j
stjómarinnar í London og Sir
Patrick Riley, sendiherra Breta
í Moskvu.
Minni drukkin. —
Sleðaferð.
f hádegisverðarboði voru
drukkin minni Elisabetar II.:
drottningar og Voroshilovs for- j
seta. — Þeir Krúsév og Mac- j
millan fóru í sleðaferð um^
landareignina með fram vatn-
inu, þar sem fjöldi fólks var á
skautum, en aðrir dorguðu nið-
ur um vakir í ísnum.
Góðar
undirtektir.
Tvær ræður, sem Macmillan
flutti í Moskvu á laugardag, við
Frh. á bls. 10.
Kardelj hefmsækir
Norðurlönd.
Tilkynnt hefur verið, að Kar-
delj varaforseti Júgóslavíu muni
heimsækja Norðurlönd á vori
komanda.
Fer hann til Oslóar, Kaup-
mannahafnar og Stokkhólms til
þess að endurgjalda heimsóknir
forsætisráðherra Noregs, Dan-
merkur og Svíþjóðar.
Ferðin verður að líkindum
farin í mai og júlí.
Ávarp til þjóóarínnar.
Skammt hefur orðið milli liörmulegra sjóslys undan-
farna daga, er togarinn Júlí og vitaskipið Hermóður hafa
farizt með allri áhöfn, alls 42 mönnum.
Hafa þessir atburðir vakið sárustu sorg á mörgum heim-
iluin og auk þess svipt fjölda manns fyrirvinnu.
Islenzka þjóðin liefur jafnan verið fús til að sýna hlut-
tekningu sína í verki við slíkar aðstæður, og mun svo
vissulega enn. Slysabætur ríkisins til aðstandenda ná
skammt og því brýn þörf á meiri hjálp til margra heimila,
sem eiga við erfið kjör að búa.
Vér undirritaðir viljum vinna að því, að fjársöfnun verði
haíin með þjóðinni til styrktar þeim, sem erfiðast eiga, enda
hafa oss þegar horizt óskir um það, og vér vitum vilja þjóð-
arinnar.
Prestar eru vinsamlega beðnir þess að veita gjöfum við-
töku, ennfremur blöð landsins. Biskupsskrifstofan, Bæjar-
útgerðin í Hafnarfirði, Vitamálaskrifstofan og vér undir-
ritaðir munum einnig veita gjöfum viðtöku.
Reykjavík, 21. febrúar 1959.
Ásmundur Guðmundsson,
biskup íslands.
Aðalsteinn Júlíusson,
vitamálastjóri.
Garðar Þorsteinsson,
prófastur.
Adolf Björnsson,
form. útgerðarráðs
Bæjarútg. Hafnarfjarðar.
Pétur Sigurðsson,
forstj. landhelgisgæzl.