Vísir - 23.02.1959, Page 7
Mánudaginn 23. febrúar 1959
7
VlSIB
•r.-A--
F| árveitingu skortir til
rannsókna á strontinm.
Samanborið við Dani þyrftum vi5 aó leggja
18 milij. kr. til kjarnfræðistöðvar.
ISætt við atómfræðiesgaiia prof.
i*orbJörn Sigurgcirsson og Fál
Theodórsson eðlisfræðing.
„Rannsóknum okkar og mœl-
ingum á geislavirkni hefur mið-
aS heldur hœgt áfram, tíminn
hefur fram að þessu farið mest
í það að smíða tæki, og svo
strandar á fleiru,“ sagði Þor-
björn Sigurgeirsson, er frétta-
maður Vísis skrapp í heimsókn
í Eðlisfrœðistofnun háskólans á
dögunum, en próf. Þorbjöm
veitir henni forstöðu, og þar er
miðstöð kjarnfræða á íslandi.
Vísir birti þá fregn í fyrstu
viku nóvembermánaðar, að
þarna í stofnuninni hefðu hafizt
mælingar á geislavirku ryki í
lofti yfir íslandi. Þær hófust,
eins og lesendur minnast, í októ-
berbyrjun og leiddu í Ijós að
tæpum þrem vikum liðnum, að
geislun ryksins hafði nálega tí-
faldast á þeim tíma. Fréttin
vakti að vonum mikla athygli.
Prófessor Þorbjörn’ tjáði Vísi
þetta aðspurður, og bjóst þá við,
að mælingar á geislun frá regn-
vatni og mjólk myndu hefjast
áður en langt um liði, eða strax
og allar aðstæður leyfðu. Og
það var nú erindi fréttamanns-
ins að þessu sinni, að forvitnast
um, hvað þessu liði.
Geislamagnið
hjaðnar.
— Er nokkuð nýtt að frétta
af mælingum á geislavirku
ryki?
— Það eru minni fréttir og
betri fréttir. Hina miklu aukn-
ingu á geisluninni í október var
eðlilegt að rekja til kjarna-
sprenginga Rússa, og þegar þær
lögðust niður, hjaðnaði einnig
geislamagnið í loftinu hér, og
við síðustu mælingar á rykinu
kom í ljós, að ryk í loíti yfir
landinu er nú komið í svipað
magn og það var„ þegar við
hófum mælingarnar. Við erum
að byrja mælingar á regnvatni.
En það er ýmislegt, sem háir
okkur við starfið. Okkur van-
hagar um vinnukraft og til þess
þarf meira fé. Enn sem komið
er, hefur tíminn farið í það að
smíða tæki. Og enn vantar mik-
ið af tækjum. Fé hefur fram
að þessu verið af svo skornum
skammti til þessa verks, að við
höfum reynt að fara eins spart
með það og mögulegt hefur ver-
ið. Það vill svo heppilega til,
að vel fær sérfræðingur hefur
valizt til þessarar stofnunar,
Páll Theódórsson eðlisfræðing-
ur, en.hann starfaði að ioknu
nárni í Danmörku, við Kjarn-
fræðistöðina miklu í Risö, og
vann hann þar m. a. við það
að búa til mælitæki og prófa
nýjar gerðir, smíðaði t. d. nýja
geigerteljara til að mæla litla
geislun, eins og í vatni og frá
ryki í lofti. Og hér hefur hann
sett saman flest þau tæki, sem
við notum.
Strandar á
fjárveitingu.
— Eru þá ekki enn hafnar
strontíum-mælingar?
— Nei, það eru þær ekki. Það
sem stendur á, er að greina
strontíum frá öðrum efnum, og
það þarf Atvinnudeild háskól-
ans að gera. Þetta krefst tölu-
verðrar vinnu, og enn strandar
á fjárveitingu til þess. Fé það,
sem við fáum til þessa starfa,
er enn svo lítið, að það hrekk-
ur ekki til mikils meira en að
borga þeim eina sérfræðingi,
er hér starfar. En þetta er vit-
anlega mörgum sinnum meira
starf en fyrir einn mann, ef vel
á að vera.
— Undir hvaða stofnun heyr-
ir annars þetta starf hér?
— Þessu hefur verið hrundið í
framkvæmd af Kjarnafræði-
nefndinni. Að henni standa 27
stofnanir, frá ríki, bæjum og
nokkrir einstaklingar eða fyrir-
tæki þeirra. í nefndinni eiga
sæti, auk mín, Jakob Gíslason
raforkumálastjóri, Jóhann Jak-'
obsson forstjóri iðnaðardeildar ^
Atvinnudeildar Háskólans, Gísli ^
Petersen yfirlæknir, Gunnar ^
Böðvarsson forstjóri Jarðbor-^
ana ríkisins og Steingrímur
Jónsson rafmagnsstjóri.
Ryksýnishornum
er safnað.
—- Nú væri gaman að líta á
þessi tæki, sem þið hafið komið
ykkur upp hérna.
— Já, það er svo sem sjálf-
sagt, og það er bezt að Páll taki
við og sýni ykkur þau og leiði
í allan sannleika, ég er að verða
of seinn hvort eð er, sagði pró-
fessor Þorbjörn og .skauzt upp
í eðlisfræðikennslustofu,
Páll Theódórsson eðlisfræð-
ingur bauð síðan að ganga inn
í sjálfa rannsóknarstofuna, þar
sem hann hefur komið fyrir
þeim mælingartækjum, sem not-
uð eru til mælinga á geislun
i ryki og regnvatni. Fyrsta stig-
ið er það, að sýnishernum af
ryki er safnað í síu, sem komið
er fyrir uppi á þaki útvarps-
stöðvarinnar á Rjúpnahæð, en
mælingin fer svo fram hér,sagði
Páll. Fiskideild atvinnudeildar
Háskólans var einnig nýverið
með rannsóknir á svifi með
geislavirku kolefni, og mæling-
ar á því voru einnig gerðar hér.
Á myndinni, sem fylgir þess-
ari grein, sjást tækin á borð-
inu, en eðlisfræðingarnir standa
hjá. Á borðinu standa tvö sí-
völ tæki, svokölluð járnhús,
æðiþykk með litlu opi og hurð
fyrir. Inn um opið er stungið
sýnishornunum, loftryki á bréf-
síu eða vatni í lítilli skál. Inni
í húsinu er geigerteljari, og eru
prufurnar, t. d. bréfsíurnar með
loftrykinu, lagðar undir teljar-
ann, þegar geislamagn þeirra
er mælt. Rafmangskapall liggur
frá geigerteljaranum í járnhús-
unum og til mælingaborðsins,
en það eru svokölluð elektón-
isk tæki, sem telja straumlögin,
og gefur ljós til kynna í hvert
sinn sem svokallaðar „beta“-
agnir fara gegnum teljarann.
Ekki 18 milljónir —-
heldur 107 þús. kr.
— Það þarf náttúrlega ekki
að því að spyrja, að mikill hljóti
munurinn að vera á aðstöðunni
við rannsóknir hér og í kjarn-
fræðistöðinni í Risö, þar sem
þér unnuð áður.
— Já, það er að sjálfsögðu
ekki sambærilegt, sem ekki er
von. Risö-stöðin var stofnuð ár-
ið 1955 og tók til starfa í apríl
árið eftir. Danir lögðu í hana
100 milljónir króna. Og það
samsvarar því, að lagðar hefðu
verið fram hér hjá okkur 18
milljónir króna til þessara rann-
sókna. En á síðasta ári var í
rauninni 107 þúsundum króna
varið til þessa starfs okkar. Enn
vantar raunverulegan stofn-
kostnað. Ef við Jáum hann ekki
innan tíðar, er þetta meira eða
minna kák eitt. Lítum aftur á
Dani. Þeir hafa gert áætlun um
rannsóknastarfsemi almennt og
hafa ákveðið að verja a.m.k.
1032 milijónum króna til ný-
sköpunar við háskóla og vís-
indastofnanir, samkvæmt þeirri
áætlun. En það mundi svara
til liðlega 30 milljóna íslenzkra
króna árlega, ef miðað er við
fólksfjölda og kaupmátt krón-
unnar.
Mikið fé
á atomöld.
— Svo það lítur þá út fyrir,
að Danir þykist eiga nokkuð í
húfi, enda er sjálfur Niels Bohr
einn af þeim.
— Já, það eru reyndar flest-
ar menningarþjóðir, sem leggja
fram mikið fé til undirbúnings
atómöldinni. Það er eitt til
dæmis, að þeir hafa hafið rann-
sóknir eða tilraunir, sem þeir
gera sér vonir um árangur af,
til að stöðva spírun í kartöflum
með geislum, og þarf ekki að
segja, að það mundi hafa geysi-
lega þýðingu fyrir geymslu á,
kartöflum og fleiri matvælum.
Það er máske ekki of sterkt að
orði kveðið að segja, að ef þetta
tekst, þá mundi það valda bylt-
ingu í geymslu á. matvælum.
Ef við íslendingar gerum okkur
ekki ljóst, að rannsóknir sem
þessar kunni að hafa æðimikla
þýðingu fyrir framleiðsluvörur
okkar og viðskipti, gæti svo far-
ið, að það drægi þann dilk á
eftir sér, að við yrðum aftur
úr öðrum þjóðum og undir í
samkeppni við þær á viðskipta-
sviðinu og heimsmarkaði.
Sparnaður til þessara hluta gæti
orðið okkur býsna dýr, eða me3
öðrum orðum enginn sparnað-
ur, heldur þveröfugt, þegar allfe
kemur til alls.
Vélsjárverðar
Kafmagnseftirlitið hefur
neyðzt til að aðvara fóik vegna
rafmagnspera, sem nú eru á
markaðnimí en hafa reynzt mikl
ir gallagripir i notkun og geta •
valdið slysum.
Perur þessar eiga til að-
sprengja vartappa, er þær bila,
og einnig hafa nokkur brögð'
orðið að því, að þær springi í
stæðunum og glerbrotin þyrlist
út um allt. Segir sig sjálft, að
slik glerbrotahríð getur valdið'
meiðslum. Einnig er hætta áf.
að einhver grípi í peruhálsinn,
sem eftir stendur i stæðinu, em
gleymzt hafi að taka strauminn
af, þegar peran sprakk, og er ó-
fyrirsjáanlegt, hvaða afleiðingar
það getur haft.
Almenningi er bent á að lesa
nákvæmlega aðvörun Rafmagr.sf
eftirlitsins, og fara að ráðum,
þess.