Vísir - 11.03.1959, Side 3
Miðvikudaginn 11. marz 1959
VI SIR
3
f'KAMFARIR OG TÆKNI
>ar solnhorfyr nií
bíNðnaÍinum vestra.
tJtgstifö tsð íitiítttst hntííJ
i't nœstesntti*
Aineríski bílaiðnaðm’inn hefur
þegar fengið fleiri bílapantanir
á þessari sölutið, en nokkru sinni
fyrr i sögn bíiaiðnaðarins.
Vegna góðrar afkomu fólks,
aukinna fjárráða, má jafnvel
búast við að enn komi nýir kaup
endur til skjalanna. Fjöldamarg-
ir heifa ekki keypt sér bil síðan
1955 og má vænta þess að þeir
komi nú fram á sölumarkaðin-
um.
Það eru m. a. þessar stað-
reyndir, sem benda til þess að t.
d. Kanadamenn muni kaupa um
400 þús. nýja fólksbila og um
75 þús. flutningabíla á þessu ári.
Aðeins árið 1956 sýnir hærri
sölutölur.
Næstu mánuði munu bilaverk-
smiðjumar vúnna af fullum
krafti.
í Kanada er búizt við metfram
leiðslu og er reiknað með að
bílaiðnaðurinn þar verji um 1200
milljónum dollara til kaupa á
hráefni, þjónustu ýmis konar,
til launagreiðsla og í skatt-
greiðslur. Um 33,000 manns
vinna beinlínis við bílafram-
leiðsluna, sem mun smíða um
350 þúsund bíla. Um 100 þúsund
manns vinna við söluumboðin í
varahlutaverzluninni og við af-
Margvísleg tæki send
send út í geiminn.
I Bandaríkjunum eru nú
uppi ráðagerðir um að senda
ioftbelgi með sjónvarpstæki
og stjörnusjónauka innan-
borðs í ailt að 24.000 metra
hasð frá jörðu.
Það eru tvennskonar sjón-
aukar, sem notaðir verða —
þ. e. Stratoscope I, sem er 30,4
cm. í þvemiál, og Stratos-
. cope II, 91.4 cm. í þvermál.
Þar verður og komið fyrir
sjónvarpstengli og með lion-
um verður sjónaukumun
stjórnað frá jörðinni, þannig
að liægt verður að beina þeim
• að vild að stjörnunum, sem
skoða á.
Tilgangurinn með því að
senda stjörnusjónauka í loft
upp með loftbelgjum er sá, að
koma þessu.m tækjuni út fyr-
ir gufulivolf jarðar, en gufu-
hvolfið veldur því, að stjörn-
urnar sjást ekki greinilega í
sjónaukum. Það er sam?., live
i stórir og sterkir sjónaukarn-
- ir eru; vegna tniflunar gufu-
< hvolfsins sjást stjörnurnar
i varla nokkurn tíma betur í
þeim en 30.4 cm. sjónauka, ef
þeir eru á yfirborði jarðar.
greiðslu á hjólbörðum, benzíni
o. þ. 1.
I Bifreiðaeign Kanadamanna
| var 4.600.000 bílar 1958 og haíði
aukizt um 113,000 á árinu. Þar
af voru 3.525.000 fólksbílar og
1.075.0000 flutningabílar. Kem-
ur á 1 fólksbíll á hverja 4,S íbúa
landsins.
Um fimmti hver bíll, sem seld-
ur var í Kanada 1958, var fram-
leiddur í Evrópu. Ekki er talið
að hægt sé að byggja Evrópu-
bíla í Kanada í samkeppni við
hina upphaflegu framleiðendur,
þar sem þeir yrðu dýrari þar
vegna hærri launa og dýrara
hráefnis. •
Ef byggja ætti svokallaða litla
bila í Ameríku mundu þeir þó
verða stærri en Evrópubílarnir,
eða einhvers staðar á milli þeirra
og hinna venjulegu amerísku
bíla að stærð.
VeínisQíkan
og iiafið.
E'.iki er óliugsandi að fundið
sé tæki til þess að nýta hina svo
að segja óþrjótandi kjarnorku-
lind, sem fyrir er í höfiun jarð-
arinnar, og framleiða þannxg
hagnýta raforku.
j Frá þessum tækjum segir ný-
lega í tilkynningu kjarnorku-
| málanefndar Bandaríkjanna, og
| er þess jafníramt getið, að mörg
ár muni líða, þar til þessari hug-
mynd verði komið í fram-
kvæmd.
Tækið, sem um ræðir, nefnist
stellarator, og er því ætiað að
hita þungavetni úr sjónum upp
í margar milljónir gráður og'
breyta því í raforku.
í tilkynningu kjarnorkunefnd-
arinnar segir, að um nokkurt
skeið hafi verið unnið að þessu
verki við Princeton-háskóla og
við kjarnorkustöðvarnir í Oak
Ridge og Los Alamos og við
geisiavirknirannsóknarstofnun
Kalíforníuháskóla.
riiig reria bii
framtíiarinnar?
Og kannski verða þelr fljúg-
cMidl að auki.
Bifreið ársins 1980 verður létt-
ari, rúmbetri, gerir minni háv-
aða, verður ódýrari og enn meira
straumlínulag en bílar ársins
1960.
Hún verður eins frábrugðin
þeim bílum, sem við þekkjum 5
dag, eins og bíllinn í dag er frá-
brugðinn gerðinni 1936.
Hann verður þýðari og örugg-
ari, jafnvel þegar hratt er ekið,
og stórir bakuggar munu auð-
velda nákvæma stjórn á honum.
Hann verður svo lágur, að að-
eins verða fjórar til fimm tomm-
ur milli neðsta hluta búksins og
jarðar, enda verða vegir þá mun
betri en nú er. Yfirborð búksins
verður líkara þvi, að skinn sé
strengt yfir hann og máling eða
lakk þekkist ekki, heldur verð-
ur einskonar oxiðhúð komin í
staðinn. Það þarf því aldrei að
mála hann þvi að liturinn er í
sjálfri klæðningunni. Vélarnar
verða aílmeiri, en mun fyrir-
ferðarminni, og því verður meira
rúm fyrir farþega og farm.
Gler verður enn meira notað
en nú er, því sá galli, sem enn
er á gleri, að það er brothætt,
þekkist þá ekki.
Loks má búast við að fljúg-
andi bílar komi á markaðinn. Nú
þegar hefur tekizt að smíða
hreyfla, sem framleiða 3 hestöfl
miðað við hvert pund þyngdar
sinnar. Sá galli er þó á gjöf
Njarðar, að þessar vélar eru enn
of dýrar í framleiðslu, en ekki
er talið vafamál, að sigrast verði
á þeim erfiðleikum.
Klórvatn má nota vlð
að hreinsa fisk.
Mlórblttntlttðnr sjós* heSttr
rerið reyndttr.
Innanríkismálaráðuneyti Banda
rikjanna hefur tilkynnt, að til-
raunir liefðu verið gerðar með
fiskþvott í ldórblönduðuni sjó í
tog'urum á veiðiun í Norður-At-
Iantshafi.
Fóru þær þannig fram, að
nokkrir togarar, þar af einn með
klórblöndunartæki, létu úr höfn
á sama tíma, fiskuðu á sömu
miðum og komu samtimis aftur
i höfn. 1 ljós kom, að fiskur, sem
þveginn var i klórblönduðum sjó
jafnskjótt og hann hafði verið
verkaður, og fluttur í lestum,
sem hreinsaðar höfðu verið ræki
lega í svipaðri upplausn, var
bæði hreinni og ferskari á bragð
ið heldur en fiskur úr hinum
togurunum, þar sem venjulegur
sjór hafði verið notaður.
Eigendur nokkurra fiskibáta
og togara frá Nýja Englandi
hafa þegar gert ráðstafanir til
þess að útvega klórblöndunar-
tæki, en þau eru ódýr og auðvelt
að setja þau upp. Það þarf ekki
annað en klórmælidælu og raf-
magnsmótor, sem dælir klór-
blönduðum sjó inn i lestarrými
skipsins. Hlutföllin hér eru 50—
80 hlutar af klóri móti milljón
hlutum af sjó til þess að þvo
lestarrýmið, en 10—20 hlutar af
klóri móti milljón hlutum af sjó
til að hreinsa með fiskinn.
Fyrir nokkru fór í jómfrú-
ferð sína nýtt flutningaskip
Benloyal, 11 búsund lestir,
frá London til Port Said,
Aden, Singapore, Bangkok
og Hongkong. Skipið’ er
smíðaS í Glasgow, — af 60
. maana áhöfn eru 27 Kín-
verjar.
Tilraunir hafa áður verið gerðar að láta gúmmíbáta þenjast
út í frosti. Til frekara örj'ggis þótti skipaskoðun rikisins hins-
vegar rétt að gera tilraun með gúmmíbát í hinum n^ju gler-
fiberhyíkjum, þegar hylkið sjálft væri allt yfirísað. *
Tilraun þessi var gerð nýlega í frystihúsi hér i Reykja-''
vík. Var 12 rnanna gúmmíbátur í glerfiberhylki látinn vera í
4 sólarhringa í 20 stiga frosti. Var hann úðaður við og við með
vatnsdreifara, þannig að sterkur ferskvatnsís hlóðst utan á
glerfiberhylkið. Eftir 4 sólarhringa í frostinu var íslagið orðið
2—3 cm. að þykkt. Var þá kippt í snúruna án þess að losa
neitt um ísinn utan á hylkinu. Gúmmíbáturinn sprengdi utan
af sér glerfiberhylkið og islagið splundraðist. Síðan þandist
gúmmíbáturinn út á eðlilegan hátt. Þykir tilraun þessi sanna,
að jafnvel í 20 stiga frosti og yfirísun séu gúmmíbjörgunar-
bátar mikilvæg björgunartæki.
Flugvclar
og skip.
A vegum Grumman-flugvéla-
verksmiðjanna í Bandaríkjunum
hafa verið athugaðir möguleik-
ar á því að smíða kjarnorkuknú-
in farþegaskip. Niðurstöðurnar
urðu þær, að hentugast mundi,
að slík skip yi'ðu þúsund smá-
lestir að stærð, rúmuðu 320 far-
þega og ganghraðinn yrði 65
sjómílur.
Ný tæki til
veðurspár.
Á vegum Bandarikjaflota
er iill veiáð að reyna nýjar
aðferðir við að segja fyrir um
óveður, allt að því fjórum
dögimi fyrr en nú er liægt.
I þessu skyni var þremur
veðurathugunarduflum, sem
veita upplýsingar imi felli-
bylji, lagt í mið- og vestur-
hluta Mexíkóflóa, á svæði,
þar sem umíerð er tiltölulega
litil. Þessi dufl veita upþlýs-
ingar um veður á sex ldukku-
stunda fresti til veðurathug-
anastöðva Bandaríkjaflota og
bandarisku veðurstofimnar,
og þar vinna sérfræðingar úr
þcim. Á sama stað verður
einnig Iagt fjórða og stærsta
duflinu, sem í rauninni er 6.7
metra langur alúminíumbát-
ur.
Dufl þessi eiga að þola
mikinn og langvarandi veð-
urofsa og rafgeymana í þelm
á ekki að þurfa að endur-
hlaða oftar en á sex mánaða
fresti.