Vísir


Vísir - 19.03.1959, Qupperneq 8

Vísir - 19.03.1959, Qupperneq 8
^áti :ert blað er ódýrara í áskrift en Vísir. látiS hann færa yður fréttir og annað lestrarefni heim — án fyrirhafnar af yðar hálfu. Sími 1-16-60. VfiS Munið, að þeir, sem gerast áskrifendur Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið ókeypis til mánaðamóta. Sími 1-16-60. Fimmtudaginn 19. marz 1959 Frá aðalfundi slysavarna- deiklarínnar Ingólfs. Eign deildarinnar 140 þús. kr. Aðalfundur Slysavarnadeildar- Innar Ingólfs í Reykjavík, var haldinn 24. febr. s.í. Formaður Gelldarinnar setti fundinn og minntist látinna félaga, sérstak- lega minntist liann þeirra 3ja, frú Guðrúnar Jónasson, Jóns Loftssonar og Geirs Sigurðsson- ar, en þau störfuðu öll mikið að eflingu slysavarnastarfseani landsins. Einnig minnist form. þeirra er fórust með togaranum Júlí og vitaskipinu Hermóði. Því næst flutti formaður skýrslu fráfarandi stjórnar og gjaldkeri, Jón Jónsson, las upp ■endurskoðaða reikninga deildar- innar. Hagur deildarinnar stend- ur með ágætum og skuldlaus ■ eign deildarinnar nemur nú rúm- lega 140.000 krónum. Gunnar Friðriksson varafor- maður deildarinnar gaf mjög it- - arlegt yfirlit um gang húsbygg- ingarmáls Slysavarnafélags ís- lands, og rikti á fundinum mikill - einhugur um þetta mál. Þar næst sýndi Jón Oddgeir Jónsson nýja, fullkomna tegund af sjúkrabörum og björgunar- . ílotholt af nýrri og handhægri ísfirðingar vilja menntaskóla. ísafirði í gær. Mikill áhugi ríkir meðal ís- firðinga fyrir stofnun mennta- skóla á ísafirði. Hafa ýmis félög bæjarins fyrir forgöngu Oddfellowstúk- unnar á ísafirði, bundizt sam- tökum um að vinna að því að komið yrði upp framhaldsdeild við gagnfræðaskólann, svo að nemendur geti lokið landsprófi á staðnum. Þá ríkir og mikill áhugi fyrir því að stofnaður verði fullgildur menntaskóli á ísafirði. Var almennur borgarafund- ur haldinn um þessi mál á ísa- firði í gærköldi, þar sem þeir Guðjón Kristinsson og Björg- vin Sighvatsson voru frum- mælendur. Samþykkti fundur- inn einróma að unnið yrði að framkvæmd þessa áhugamáls þeirra ísfirðinga. gerð, ennfremur skýrði hann nýja aðferð til lífgunar úr dauða dái. Einnig sýndi Jón Oddgeir nýja gerð björgunarkaðla til notkunar í húsum er eldvoða ber að höndum. Henry Hálfdánarson skrif- stofustjóri S.V.F.I. sýndi ný radíósenditæki til notkunar i gúmmíbátúm. Þá afhenti formaður deilarinn- ar Birni Pálssyni, flugmanni fjögur björgunarbelti til notk- unar í flugvél hans, og þakkaði honum vel unnin störf og óskaði honum blessunar í starfi. Stjórnin var öll endurkjörin, en hana skipa: Séra Óskar J. Þorláksson formaður, Jón Jóns- son gjaldkeri, og Gunnar Frið- riksson, Baldur Jónsson og Jón Oddgeir Jónsson meðstjórnend- ur, til vara Sigurður Teitsson og Björn Pálsson, endurskoðendur Þorsteinn Árnason og Júlíus Ól- afsson. Á fundinum voru gerðar svo- felldar samþykktir: Þar sem vit- að er, að erfitt er, eða jafnvel ekki leyfilegt að halda björgun- aræfingar með gúmmibjörgun- arbátum um borð í skipunum sjálfum, þá beinir aðalfundur slysavarnadeildarinnar Ingólís þeim tilmælum til stjórnar SVFÍ, að hún fari þess á leit, við Skipaeftirlit rikisins, að komið verði á einhverju föstu og við- unandi formi á þessar æfingar í staðinn. Vegna hinna tíðu umferða- slysa vill aðalfundur Slysavarna deildarinnar Ingólfs í Reykjavík, skora á alla ökumenn og stjórn- endur 'ökutækja, að gæta sem ailra mestrar varúðar í umferð- inni og fylgja í öllu settum regl- um um hraða og svo öðrum á- kvæðum hinna nýju bifreiðalaga. Með því að mjög er algengt, að þeir, sem bifreiðaslysum valda, reynast ölvaðir við akstur eða undir áhrifum áfengis, skor- ar aðalfundur Slysavarnadeild- arinnar Ingólfs á aila löggæzlu- menn og lögreglustjóra, að taka hart á slíkum brotum, og sýna enga linkind í sviptingu öku- leyfa í slíkum tilfellum. Lögin um Hawaii sem 50. fylkið undirrituð. Næsta skref þjóðaratkvæði og þingkosningar. Eisenhower forseti undirrit- aði í gær frumvarp um, að Hawaii skyldi verða 50. fylki Bandaríkjanna og varð frum- varpið þar með að lögum. Þrennt verður að gera, áður en Hawaii fær inngöngu í sam- bandsríkin: 1. íbúar Hawaii verða sjálfir að samþykkja það í þjóðar- atkvæði, sem landstjóri þeirra verður að boða til innan 60—90 daga. 2. Að því loknu, ef íbúar Hawaii lýsa sig samþykka lög- unum, sem enginn vafi er á, að þeir gera, skal boða til al- mennra þingkosninga, til þess að kjósa þingmenn og embætt- ismenn, tvo menn í öldunga- deildina í Washington og einn í fulltrúadeildina. 3. Staðfesta verður formlega úrslit kosninganna og þá lýsir forsetinn yfir formlega, að Hawaii sé búin að fá öll rétt- indi sem eitt sambandsríkj- anna, með öllum þeim skyld- um, sem því eru samfara. Það er oft býsna v i n d a s a ffl t á horni Lækjar- götu os Austur- strætis, eins og þessi mynd ber með sér. Þar að auki var suð- austan slagviðri, svo að hrakning- ar voru enn meiri en ella, þegar myndin var tekin fyrir nokkrmn dögum. Safnast hafa 3 milljónir króna og enn berast gjafir. Auk þess mun nokkurt fé vera í kauptúnum úti á landi. Fjársöfnunin til aðstandenda þeirra, sem fórust með Júlí og Hermóði heldur enn áfram, en j nokkuð er farið að draga úr^ framlögum. Þó berast enn gjaf- ir og í fyrradag var heildar-j söfnunin orðin 2 milljónir 965 þúsund krónur og var áætlaðj að upphæðin muni vera komin nokkuð yfir þrjár milljónir króna í dag. í þessari upphæð eru taldar með 100 þúsund krónur, sem blaðið Dagur á Akureyri til- kynnti að safnazt hefðu þar. Mun Akureyrarsöfnunin vera nokkuð hærri því langt er síðan tilkynnt var um þessa upphæð í blaðinu. Vitað er að safnað hefur verið Innhr&t í , Hafn nrfitt'ði* Aðfaranótt s.l. sunnudags var brotizt inn í Sjófatnaðar- og útgerðarvöruverzlunina Öld- una, Vesturgötu 20 í Hafnar- firði. Stolið var þaðan töluverðu magni af vindlingum og súkku- laði að því er séð varð, en pen- ingum var ekki stolið. Þetta er í annað skiptið í vetur, sem brotizt er inn í þessa sömu verzlun. Var það nokkru fyrir áramót í hið fyrra skiptið og þá sömu vörutegundum stolið. Fyrir þrem vikum var brotin rúða í þessari sömu verzlun, en í það skipti engu stolið. Atlasskeyti skotið í morgun. Bandaríkjamenn hafa enn gert tilraun með Atlantsflug- skeyti. Var því skotið í loft upp frá tilraunastöðinni á Canaveral- höfða á Floridaskaga. Ekki er annað vitað en að tilraunin hafi gengið að óskum. allmiklu fé í kauptúnum úti á landi en Vitamálaskrifstofunni, sem hefur með höndum varð- veizlu fjárins hefur ekki verið tilkynnt hve niiklu það nemur, en gera má ráð fyrir myndar- legum upphæðum. Engin tilkynning hefur verið birt um það hvenær söfnuninni lýkur eða hvort henni verður sett nokkurt takmark. Eigi heldur hefur verið ákveðið hve- nær úthlutun liefst eða hvernig hún verður framkvæmd enda er það geysimikið verk, sem tekur langan tíma. Heyrzt hefur en ekki fengizt staðfest, að Tryggingarstofnun- in muni verða fengin til þess að sjá um úthlutunina enda mun það liggja næst, þar sem hún hefur á að skipa starfsliði og hefur betri aðstöðu en aðrir að- ilar til að sjá um framkvæmd verksins. Frakkland liafnaði nú í vik- unni láni að upphæð 56,5 millj. stp. ef það þyrfti á því að halda vegna fjár- hagslegra erfiðleika fram- undan. Bankar í Bretlandi og fleiri löndum buðu lánið. Kaffídagur á Páfma- sunnudag. Kvennadeild Slysavarnafé-* Iagsins í Reykjavík hefir á- kveðið að efna til kaffisölu í Sjálfstæðishúsinu á sunnudag- inn kemur — Pálmasunnudag — og rennur allur ágóði til söfnunarsjóðs vegna sjóslys- anna. Kaffidagar reykvískra hús- ;mæðra eru löngu frægir orðnir fyrir myndarskap, bæði vegna hins ljúffenga og kjarngóða meðlætis, svo og rausnarlegrár framreiðslu. Á slíkum dögurn fjölmenna Reykvíkingar með fjölskyldur sínar til að njóta eftirmiðdagskaffisins í því sér- stæða og heimilislega and- rúmslofti, sem skapast við heimabakaðar kökur, „pönsur“ með rjóma, brauði og flatkök- um með rúllupylsu og ýmsu öðru góðgæti, og að sjá frúna í „húsinu hinumegin“ með svuntu framan á sér. Húsmæður leggja á sig mikla vinnu við undirbúning og framkvæmd slíkra kaffidaga og sýna mikinn áhuga fyrir málefni því, sem þær berjast fyrir. Reykvíkingar mega ekki, láta bregðast að sækja vel til Sjálfstæðishússins á sunnudag- inn, og ekki mun það spilla fyrir að vita að þeir eru um leið að leggja í söfnunarsjóð- inn. Félagsheimilið í Kópavogi opnað. Hið myndarlega félagsheim- ili, sem Kópavogsbúar hafa reist á Digraneshálsi verður opnað formlega á morgun. Að byggingu félagsheimilis- ins standa þessi félög: Kven- félagið, Leikfélagið, Ungmenna- félagið, Framfarafélagið, Skáta- félagið og Slysavarnadeildin í Kópavogi auk Kópavogskaup- staðar og ríkis. Neðsta hæð hússins er nú til- búin til notkunar, en þar er; veitingasalur og bíósalur, sem tekur um 300 manns í sæti. Bú- ið er að steypa upp aðra hæð, en alls mun húsið verða þrjár. hæðir. Táknmerki herast ekki lengur frá Könnuði II, Ifaifiri liringsólar ekki leaagn.r kringmn jörðn. Köimuður II mun nú ekki lengur á brautu kringum jörðu. í tilkynningu herstjórnar- innar bandarísku segir, að táknmerki berist ekki frá hon- um lengur og tilraunir til að fylgjast með honum í ratsjám hafi engan árangur borið. Könnuði n var skotið í loft upp frá Vandenbergstöðinni í Kaliforniu, þar sem flugherinn : hefur eldflaugastöð. Var stað- fest hinn 5. marz, að hann væri kominn á braut kringum jörðu og færi yfir bæði heimskautin á hringrás sinni. Byggðist þetta á 41 tilkynningu, sem borist höfðu frá athuganastöðvum í Alaska, Hawaii og Bandaríkj- unum. Könnuður II vó 585 kg., var 5.7 m. á lengd og 1.5 m. á breidd.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.