Vísir - 03.04.1959, Síða 11
TÖstuclaginn 3. apríl 1959
VfSIB
1!!
V.-ðslendingur látinn.
Hafsteinn Sigurðsson.
Þann 16. febrúar 1959, and-
aðist í almenna spítalanum í
Neenora, Ontario, Thomas
Edward Johnstone (Hafsteinn
Sigurðsson), 93ja ára gamall.
Á fyrstu árum sínum í þessu
landi, rak Hafsteinn sig á það,
að flestum hérlendum mönnum
gekk illa að bera fram nafnið
hans, það var afbakað, gert
grín að því og snúið allavega
upp á það eftir því sem hægt
var. Hafsteinn kunni þessu illa,
þvi honum þótti of vænt um
.sitt íslenzka nafn til þess að
láta annarra þjóða fólk þeyta
því á milli sín með allskonar
kerskni, svo hann tók það ráð,
að breyta um nafn, taka annað
sem var alveg óskilt íslenzku
nafni, án þess þó að ástæðan
væri sú, að hann skammaðist
sín fyrir það að vera íslend-
ingur. Fjarri því, það get eg
borið um, því að eg kynntist
Hafsteini vel og fann að hann
var sannur íslendingur undir
enska nafninu. Og síðar hygg
eg að hann hafi séð eftir því að
breyta nafni sínu, en hann fékk
þetta nafn löggilt og gekk und-
ir því ætíð síðan.
Hafsteinn tók mikinn þátt í
íslenzku félagslífi í Keewatin á
meðan þar var nokkur sem tal-
aði íslenzku og hafði þar fé-
lagssamtök. Hann var skáld-
mæltur vel, las mikið af ís-
lenzkum bókum og fylgdist vel
með öiju sem gerðist í opinber-
um málum á íslandi, eftir því
sem möguleikar leyfðu.
En þegar árin liðu fram,
hvarf hann að mestu leyti fs-
lendingum hér, öðrum en þeim,
sem áttu heima í Keewatin og
Kenora. En kona hans var á-
kaflega vel íslenzk og hafði
oftar en einu sinni orð á því
við mig, að henni féll illa að
Hafsteinn skyldi breyta nafni
sínu, en hún sagði það væri
ekkert við því að gera af því
áð hann hefði íátið löggilda það.
Hafsteinn var einn af elztu
frumbyggjum íslendinga í
Kanada. Hann var fæddur á ís-
landi 19. júlí grið 1865 cg flutt-
ist til Kanada árið 1876, og
vann fyrlr sér við ýmiskonar
vinnu, unz hann flutti til Dar-
lington Bay í Keewatin árið
1887.
í Keewatin stundaði hann
viðarhögg og fiskveiðar fyrst í
stað eða þar til hann réðist til
,JLake of the Woods Milling
Co.“ í Keewatin 1893 og vann
hann hjá því félagi alltaf þang-
að til hann var settur á eftir-
laun árið 1936.
31. október 1890 kvæntist
Hafsteinn éftirlifandi konu
sinni, Ingibjörgu Magnússon,
Þorkelssónar, Rafnssonar
(Rabbi). Hún var fædd á
Grímsstöðum a Seltjarnarnesi
við Reykjavík 25. maí 1872.
Þau áttu langa samleið og
hjónabandið var dásamlegt og
samvinna hin bezta gegnum
langt æfiskeið. Það var haldið
upp á gullbrúðkaupsafmæli
þeirra árið 1940 ,og demanstaf-
mæli þeirra árið 1950. Árið
1956 var haldið upp á 66. gift-
ingarafmæli þeirra; þá var
Hafsteinn 91 árs en Ingibjörg
84 ára og þá bæði við állgóða
heilsu og hugsaði hún af mestu
Prýði um heimilið þótt aldurinn
væri orðinn hár.
Hafsteinn og Ingibjörg voru
elskuð og virt af öllum í Kee-
watin og áttu því marga góða
og trygga vini þar, sem og víða
annars staðar.
Þau eignuðust aldrei barn
sjálf, en þau tóku til fósturs
þrjú börn og gengu þeim í for-
eldrastað. Börnin hétu Ingman
og Ena, sem bæði eru fyrir
löngu látin, og Esther, sem nú
er gift og á heima í Winnipeg.
Hafsteinn var Skagfirðingur
að ætt.
Guðmundur Jónsson Aust-
fjörð, andaðist 11. marz 1959
á Grace sjúkrahúsinu hér í
borginni 76 ára að adri.
Hann var frá Tókastöðum í
Hjaltastaðaþinghá í Norður-
múlasýslu og fluttist til Kan-
ada fyrir 55 árum. Hann var
smiður og húsamálari að iðn
og stundaðd þá vinnu í Winni-
peg og víðar.
Lengst af átti hann heima að
Hecla, Man.
Hann lifa sonur, Sigurður,
búsettur að Hekla og tvær
dætur, Margret (Mrs. H.
Schwabe) í Winnipeg, Christ-
ine (Mrs. K. Grahn í The Pas,
Man. og sjö barnabörn og ein
systir, Jennie Johnson í Pasa-
dena, Kaliforníu.
Guðmundur var greindur
vel, bókelskur og ritfær í betra
lagi. Reit oft í íslenzku blöðin,
Heimskringlu og Lögberg.
Útförin fór fram frá
lúthersku kirkjunni í Mikley,
séra Jón Bjarman flutti
kveðjuorðin.
Hinn látni var lagður til
hinztu hvíldar í grafreit byggð-
arinnar við hlið konu sinnar
Guðfinnu, er lézt fyrir all-
mörgum árum.
Sjávarútvegsmál -
Frh. af 4. síðu:
maður stjórnar Hlutatrygginga-
sjóðs.
Hafnargerð og
lendingarbætur.
Fundurinn telur brýna nauð'
syn á því að auka hafnargerðir
og lendingarbætur svo að fiski-
flotinn hafi sem bezt tök á að
nýta fiskimiðin.
Skal leggja áherzlu á, að
fjárveiting sé fyrir hendi til að
](júka framkvæmdum á hverj-
um stað á sem skemmstum
tíma, enda verði sú meginregla
upptekin að verkin verði boð-
in út.
Þá bendir fundurinn á nauð-
syn þess að keypt verði fullkom
ið sanddæluskip til landsins.
Fyrningarafskriftir.
Fundurinn áréttar ályktun
síðasta landsfundar um nauð-
syn þess, að heimilaðar verði
ríflegar fyrningarafskriftir af
hvers konar byggingum og tekj
um, sem notuð eru við fiskveið-
ar og fiskvinnslu, þ. á m. ver-
búðum og bryggjum.
Johan Rönning h.f.
Raflagnir og viðgerðir i
öllum heimilistækjurn. —
Fljót og vönduð vinna.
Sími 14320.
Johan Rönning h.f.
Rósir í pottum
og afskornar
Gróðrarst. v. Miklatorg.
Sími 19775.
BÍL vill skattleggja segul-
bandstæki í heimahúsum.
¥i!S leita að ráði£in ti8
vernd&Dnar upptöku.
Aðalfundiu- Bandalags ísl.
listamanna var nýlega haldinn
í baðstofu Naustsins og var fjöl
sóttur.
í stjórn Bandalagsins höfðu
verið tilnefndir af sjö sam-
bandsfélögum þessir menn:
Fyrir hönd Rithöfundasam-
bandsins íslands Snorri Hjart-
arson, sem er kjörinn fqrseti
i sambandsins, en hann tilnefndi
jfulltrúa leikara Brynjólf Jó-
hannesson sem varaforseta
þess. Fulltrúi Tónskáldafélags-
ins Jón Leifs var kjörinn ritari
Bandalagsins, en gjaldkeri Jó-
hannes Jóhannesfeon, fulltrúi
myndlistarmanna. Meðstjórn-
endur eru Bryndís Shram, full-
trúi listdansara, Ágús Pálsson
fyrir hönd arkitekta og Einar
Vigfússon fulltrúi Félags ísl.
tónlistarmanna.
Á aðalfundinum voru m. a.
samþ. þessar ályktanir:
„Aðalfundur Bandalags ísl.
listamanna mótmælir eindreg-
ið frumvarpi. því sem borið hef-
ur verið fram á yfirstandandi
Alþingi um að leyfð skuli í
heimahúsum hljóðritun hug-
verka án heimildar höfunda og
flytjenda, og án endurgjalds
til þeirra, og skorar á flutnings
menn frumvarpsins að draga
það til baka. Aðalfundurinn
telur að með framangremdu
; frumvarpi kynni að skapazt
hættulegt fordæmi fyrir alla
vernd andlegra verka og list-
rænnar vinnu — fordæmi, sem
gæti einnig haft áhrif á mat
annars eignaréttar v og á at-
vinnuvernd -annarra vinnandi
stétta í framtíðinni,"
„Fundurinn beinir því til
stjórnar Bandalagsins að und-
irbúa til umræðu og e. t. v; af-
greiðslu á næsta fundi tillögu
um ■■ fyrirkomulag varðandi
vernd listaverka, sem tekinn
er á segulband í heimahúsum
og flutning þeirra.“
íitséliir VÍS8S
AUSTURBÆR:
Hverfisgötu 50. — Vciziiun.
Hverfisgötu 69. — Florida.
Hverfisgötu 71. — Verzlun.
Hverfisgötu 74. — Veitingastofa.
Hverfisgötu 117. — Þröstur.
Söluturninn — Hlemmtorgi.
fiaukastræíi 12. — Adlon.
Laugavegi 8. — Boston.
Laugavegi 11. — Adlon.
Laugavegi 30 B. — Söluturiniiu.
Laugavegi 34. — Veitingastofan.
Laugavegi 43. — Silli & Valdi.
Laugavegi 64. — Vöggur.
Laugavegi 86. — Stjörnukaffi.
Laugavegi 116. — Veitingastofan.
Laugavegi 126. — Adlon.
Laugavegi 139. — Ásbyrgi.
Snorrabraut. Austurbæjarbar.
Einholt 2. — Billiard.
Hátún 1. — Veitingastofan.
Vitastíg. — Vitabar.
Samtún 12. — Drífandi.
Miklubraut 68. — Verzlun.
Mávahlíð 25. — Krónan.
Leifsgötu 4. — Veitingastofan.
Barónsstíg 27. — Veitingastofan.
fi ~jT
‘i ifif
11 : í
. 1
i. 1.
« 1
í I
' ■ i
-JÚtLi 3 r
• í. •a«áiT. i
TfT'-fU
I. r.-S < t
i>: -ft
SUÐAUSTURBÆR: Tf
Skólavörðustíg. — Gosi. ! j i 1 j \
Bergstaðastræti 10. — Verzlun. !;
Bergstaðastræti 40. — Verzlun, i i
Bergstaðastræti 54. — Veitingastofan.
Fjölnisvegi 2. — Víðir. , i
Lokastíg 28. — Veitingastofan. | i -
Þórsgötu 14. — Þórskaffi. 1 ' ! |’ í ! *
Óðinsgötu 5. — Veitingastofan. I , j
Týsgötu 1. — Havana. 1 ' i j
Klapparstíg. — Verzlun. i |
Frakkastíg 16. — Veitingastofan. j 1 1 *
MIÐBÆR: f , ...
Söluturninn við Arnarhól. i 1
Hreyfilsbúðin við Arnarhól. : j
Söluturninn við Lækjartorg.
Pylsusalan við Austurstræti.
Hressingaskálin við Austurstræti.
BJaðasalan, S. Eymundsson, Austurstræti.
Sjálfstæðishúsið. — Austurvöll.
Söluturninn. — Kirkjustræti.
Aðalstræti 8. — Adlon. ; i : rj7f
Veltusund. — Söluturninn, .
! i I I : >
VESTURBÆR: , ", '
i ' *-
Vesturgötu 2. — Söluturninn.
Vesturgötu 14. — Adlon. j
Vesturgötu 29. — Fjólan.
Vesturgötu 45. — West-End.
Vesturgötu 53. — Veitingastofan.
Mýrargötu. — Vesturhöfn.
BrEeðraborgarstíg 29. — Veitingastofan.
Framnesvegi 44. — Verzlun.
Sólvallagötu 74. — Veitingastofan,
Kaplaskjólsvegi 1. — Verzlun.
Melabúðin. — Verzlun.
SÖrlaskjóI. — Sunnubúð.
Straumnes. — Verzlun.
Hringbraut 49. — Silli & Valdi.
Blómvallagötu 10. 'i-r- Veitingasíofan.
Fálkagötu 1. — Reynisbúð.
ÚTHVERFI:
Lauganesvegi 52. — Söluturninn.
Lauganesvegi 52. — Laugancsbúð.
Brekkulækur 1.
LangheUsvcgi 42. — Verzlun G.
Langhcltsvcgi 52. — Saga.
Langhoiísvegi 131. — Veitingastofan.
Langhcltsvegi 174.—- Verzlun.
'Skipasiiml. — Rangá.
Rcttarholtsvegi 1. — Söluturninn.
Ilólmgarði 34. — Bókahúð. j
Grensásvogi. i— Ásinn.
Fossvogur. —- Verzhm.
Kópavogsháls. — Biðskýlið h
Borgarholtshraut. — Biðskýlið.
Silfurtún. — Biðskýlið við Ásgarð.
Hótel Hafnarfjiirðar.
Strandgötu 33. — VeitingigtsfsK.
Söluturninn við Álfaskeit.
Aldan, veitingastofan við Strandgötu.
| rt
i Mj»
ÍJi FT
tjlEÉ I
l
f; I J
‘ ?
^ n
■V