Vísir - 13.04.1959, Blaðsíða 3

Vísir - 13.04.1959, Blaðsíða 3
Mámidaginn 13. apríl 1959 VtSIB 3 Hvert sœti í flugvélinni var ' skipað, og kómust miklu færri en vildu. Það var Sólfaxi Flug- , félags íslands, sem lagði af stað frá Reykjavík miðvikudags- kvöld fyrir páska, með full- fermi íslenzkra ,,Iúxustúrista“ til að njóta sólar og sumars í páskafríinu. Farþegar voru alls 60 talsins, en áhöfn vélarinnar var 6 manns. Þar voru saman komnir karlar og konur úr flest um stéttum þjóðfélagsins, ung- ir og gamlir, ríkir og fátækir, giftir og ógiftir. íslenzk flugvél í fyrsta sinn. Lagt var af stað frá Reykja- vík kl. 11 um kvöldið í hrá- slagaveðri og lent við Palma, höfuðborg Mallorca (frb. Maj- orka) á Miðjarðarhafi kl. 11 um morguninn eftir í steikjandi sól og hita. Þessi vegarlengd var flogin í einum áfanga og tók 10 klukkutíma, en vegna tímamismunar staðanna „töp- uðum“ við tveim tímum. Ferð- in gekk í alla staði snuðrulaust, vélin haggaðist ekki allan tím- ann, menn sváfu, lásu eða röbbuðu saman, milli þess að kræsingar voru á borð bornar. Þetta var í fyrsta sinn, sem íslenzk flugvél lenti hjá Palma. Samt var ekki mikið um dýrðir, utan þess að farar- stjórinn, Guðni Þórðarson blaðamaður, tók nokkrar mynd ir af ferðalöngunum, er þeir stigu á land. Síðan var ekið gegnum borgina til gistihúss- ins, sem er á hæð nokkurri í lithverfi hennar. Þeir verjast sólu. Eg hefi aldrei séð spænska borg áður, né spænskan bygg- ingarstíl. Það sem mér þótti einkenna bæinn, var fyrst og iremst litur húsanna. Það var hrein undantekning, ef maður sá málað hús. Öll voru þau frekar lágreist, ein til þrjár hæðir, byggð úr Ijósbrúnum leirsteinum. Steinarnir virtust að stærð og lögun svipaðir vikursteinunum, sem við þekkj um svo vel, en liturinn ljós- leirbrúnn. Þök húsanna voru flest úr sama efni, nema hvao þakflísarnar voru í laginu eins og skolprör, klofin eftir endi- löngu og lagðar þannig, að þær mynduðu bárulagað þak, ekki ósvipað bárujárni, nema miklu stórgerðara. Það, sem mér þótti kynlegast, voru gluggarnir. Fyrir utan þá alla voru grænir tréhlerar eða rimlar, ekki ó- svipaðir sóltjöldum í laginu. Hver gluggi var þannig byrgð- ur, nema ef til vill nokkrir verzlanagluggar í aðal vei'zl- unarhverfinu. Fyrst datt mér í hug, að við værum að aka um pakkhúsahverfi borgarinnar, því hvergi sá inn um glugga eða dyr, en svo fór eg að átta mig á því, hvar við raunveru- lega vorum, og að hér væru önnur náttúruskilyrði en heima. Hér höfum við tvöfalt gler í glugg’um til að verjast kuldan- um, en á Palma hafa menn tréhlera utan glugga til að verjast sólu. Gistihúsið okkar var byggt á höfða utan við aðal-borgina, . stór og mikið hús, 5 eða 6 hæð- ir. Úr gluggum herbergjanna blasti við fjörðurinn, sem börg- • inn liggur við. Hún er byggð í hálfhring fyrir botni fjarðar- ins og er óneitanlega fögur til- sýndar. Beint niður af gistihús- inu var innsiglingin inn í höfn- ina, handan fjarðarins há og tignarleg fjöll, skógi vaxin, en utanfjarðar glampaði á Mið- jarðarhafið himinblátt. Allar búðir lokaðar. Hér máttum við vera í þrjá og hálfan dag. Nú var um að gera að nota tímann. Þessi dag- ur var öllum algerlega frjáls. Engar áætlanir. En hvað skyldi gera? Flestar verzlanir voru lokað- ar á skírdag, nema veitinga- stofur og minjagripaverzlanir, svo að ekki þýddi að hugsa um þær. „Nei, við skulum bara ganga um bæinn og skoða hann.“ Það var ráðgazt við konurn- ar. Og viti menn! Þær kunnu ráð. „Pissa.“ „Já, mér sýnist það eða hitt heldur. Bíddu bara til morguns, góði. Þá skal eg eyða peningun- um í óþarfa.“ Og svona gekk það meira og og minna fram eftir degi, þang- að til fólk dróst aðframkomið af þreytu, en Ijómandi af ánægju, heim í gistihús. Það var oft búið að telja peningana í huganum þann daginn, og reikna út hvað hægt væri að kaupa og gera. Páskahátíð. Um kvöldið var aftur fario niður í bæ. Það er siður þar, og líklega víðar, að klerkar og kirkjunnar menn fara skrúð- göngu mikla eftir götum borg- arinnar, til heiðurs Maríu mey. Þetta þurftu auðvitað allir að sjá. Við fundum okkar pláss á sem þeir skimuðu um í ýmsár áttir eins og væru þeir að leita að einhverjum aumum syndárá til að hremma á aftökupallinn. í höndum báru þeir logandi kerti, sem blöktu aðeins í logn- inu. Eins og tvílyft liús. Nokkru aftar í skrúðgörig- unni kom geysistór burðarstóll. allur uppljómaður með kerta- ljósum. Himinn var yfir stóln- um, og virtist mér hann álíka hár og tveggja hæða hús. í stólnum miðjum var komið fyr- ir líkneski af Maríu Guðsmóð- ur, klætt í íburðarmikil skraut- klæði. Burðarstóllinn var geysistór um sig, og má hafa það til marks, að það tók langan tíma fyrir burðarmennina að ná beygju nokkurri, sem var á vegi þeirra þarna á torginu. PARÍS i PALMA -K ~Y á jtá^kw íslenzku milljónararnir stíga á land í Palma. Röðin virtist endalaus, enda segja kunnugir, að hún hafi verið hálfan annan klukkutíma að ganga framhjá. Talaði spænsku. Satt að segja var eg búinn að fá nóg. Eg vorkenndi aum- ingja mönnunum sem báru j stólinn, svo mikið, að eg ákvað ! að fá mér einn bjór í þeirra j nafni. — Einn fyrir hvern | mann. — Það var bara verst að j eg hafði ekki hugmynd um, hve margir þeir voru, og ekki mátti skilja neinn útundan. . . . Mér er sagt, aö eg hafi talað spænsku eins og innfæddur á leiðinni heim í strætisvagnin- um um kvöldið. Víst er það, að morguninn eftir, þegar eg hitti strætis- vagnstjórann aftur, brosti hann út undir eyru, veifaði hend- inni kankvíslega og bauð mér alúðlega góðan daginn. „Buenos Dias, Senor.“ „Já, komdu blessaður," svar- aði eg, og hefði nú gleymt allri minni spænsku. En við vorum mestu mátar eftir þetta. Föstudaginn langa var ekið um 17 kílómetra leið upp í fjöllin, sem liggja nokkru norð- ar. Þar uppi í fjalladal er lítið en fallegt klausturþorp, sem heitir Vallemosa. Þar er klaust- ur mikið og fallegt og dvald- ist hið fræga tónskáld Chopin þar um tíma. Þar var ennþá píanóið, sem hann samdi mörg sín tónverk á, og ýmsar aðrar minjar, bæði um hann og munka þá, er dvöldust þarna áður. íslenzkir milljónarar. Á leiðinni upp til fjallaþorps- ins var stanzað um stund við fjallsræturnar. Leiðsögumaður okkar var spænskur, Rafael að nafni og var hinn alúðlegasti í hvívetna. Hann vildi sýna okk- ur tré, sem þarna vaxa. Það eru olíutré, yfir tvö þúsund ára gömul. Þau eru samt enn í fullum blóma og bera ávöxt á ári hverju. Þegar við stigum út úr bílnum þarna, barst okk- ur til eyrna einkennilegúr bjölluhljómur. Eg fór að litast um til að komast að því, hvað- an þessi hljómur kæmi. Sá eg þá fjárhóp á beit inni í girð- „Við skoðum í búðarglugga í dag og athugum vörurnar og verðið, og þá vitum við, hvert við eigum að fara á morgun til að kaupa.“ Já, ekki deyja þær úr ráða- leysi. Endirinn varð því sá hjá flestum, að þeir gengu með konum sínum um bæinn í steikjandi hita. Innan skamms tíma voru flestir karlmennirnir farnir úr jökkunum, og voru rennsveittir samt. Jafnvel svo að óhjákvæmilegt reyndist að skjótast einstöku sinnum inn á veitingahús „bara til að fá sér vatnsglas!“, en utan við sýn- ingarglugga verzlananna heyrð ust hróp og skrækir. „Guð, komdu og sjáðu þessa dásamlegu skó!“ „Je minn góður, en draum- ur. Eg sver eg hefi aldrei .... Hvað ertu alltaf að gera inni á þessari sjoppu, inaður?“ aðaltorgi bæjarins og biðum þar nokkra stund í mannþrönginni. Loks heyrðist trumbusláttur í fjarska, og færðist nær. Eftir nokkra stund birtust fjórir mjallhvítir, hnarreistir gæð- ingar, og sátu þá skrautklædd- ir hermenn alsettir heiðurs- merkjum, með þríhyrnda hatta á höfði. Á eftir þeim kom flokkur trumbuslagara, er slógu sama, einfalda hljóðfallið í sífellu. Síðan birtust nokkrir hempu- klæddir munkar, hlekkjaðir saman á höndum og fótum, og drógust áfram eins og verið væri að fara með þá á aftökustað. Þá kom endalaus röð manna, er voru klæddir í skósíðar hemp- ur, en báru á höfði háar, upp- mjóar hettur. Hettur þessar voru ýmist hvítar eða svartar, og huldu höfuðið alveg, náðu því nær niður fyrir herðar. Göt voru á hettunum fyrir augun, Fyrst settu þeir stólinn niður, auðsjáanlega til að hvíla sig. Þegar lagt var af stað aftur, urðu þeir að ,,bakka“ tvisvar til þess að ná beygjunni. Stóll- inn hristist til og frá og skraut- ið, sem hékk niður úr himnin- um, sveiflaðist með honum. Loks náðu þeir beygjunni og héldu áfram. Það var látið líta svo út, sem burðarmennirnir væru aðeins sex talsins, en þegar betur var að gáð, kom í ljós að undir stólnum gekk heill sægur manna. Þeir voru faldir þarna með tjöldum, sem héngu niður úr stólnum og námu við jörðu. Þeir gengu allir í takt eftir hljómfallinu, og stóllinn sveiflaðist einnig til og frá eins og væri hann ein- hver lifandi vera frá dulheim- um. Síðan komu fleiri hettu- klæddir menn, fleiri og fleíri og fleiri. ingu. Allar kindurar höfðu litl- ar bjöllur í bandi um hálsinn, og klingdu þær við hverja hreyfingu. Varð af þessu sam- felldur bjölluhljómur. Rafael, leiðsögumaðurinn, var hrifinn af að fá að fylgja okkur. Þetta var í fyrsta sinn að hann sá íslendinga, og ef til vill hefir það ekki skemmt fyr- ir, að eitt dagblaðið hafði þá um morguninn birt frétt um það, að 60 íslenzkir milljónarar væru þarna sér til skemmtunar. Plann fræddi okkur um, að hann hefði séð snjó aðeins einu sinni á ævi sinni. Yfir rigningu þurfa þeir heldur ekki að kvarta, því að á Palma rignir að meðaltali í 10—15 daga á ári. Þeir kalla það „regntíma". Síðar um daginn fórum við á baðströnd nokkuð utan við bæinn. Flestir létu sér nægja að spóka sig í sólinni, en eg þurfti auðvitað að stinga mér í Miðjarðarhafið. Það heíði eg aldrei átt að gera, því sjórinn Frh. 6 9. s. \ '

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.