Vísir - 13.04.1959, Qupperneq 11
Mánudaginn 13. apríl 1959
VlSIB
1®
Með þessari mynd
þarf ekki mikiar skýr-
ingar. Hún er f.ekin við
komu Macmilians til
Moskvu, það er að
segja meðan þeir gátu
enn brosað hvor við
öðrum.
Brosleg taugaveiklun hjá
Osta- og smjörsölunni.
Athugasemd frá henni og
nokkur orð til svars.
í dagblaðinu Vísi birtist í
gær forsíðugrein með rosafyr-
irsögn: „Enn eitt hneykslið.
Vatni bætt í „gæðasmjör“. Eng
ar reglur til um mat.“
Osta- og smjörsalan s.f. hefur
nú þegar gert ráðstafanir til
þess, að nefnt blað verði látið
sæta ábyrgð lögum samkvæmt
fyrir þá tilhæfulausu aðdrótt-
un, sem í fyrirsögn greinarinn-
ar felst, þess efnis, að Osta- og
smjörsalan hafi gerzt sek um
hneykslanlegt athæfi.
Út af efni greinarinnar vilj-
um vér annars taka þetta fram:
1. í 7. tölulið 92 gr. heilbrigð
issamþykktar Reykjavíkur seg-
ir svo: „Smjör er unnið úr
rjóma, og má ekki vera í því
söltuðu meira en 16% af vatni
og 18% í ósöltuðu“.
Því hefur aldrei verið haldið
fram, að Osta- og smjörsalan
s.f. hefur selt smjör með meira
vatnsinnihaldi en svo, að sam-
rýmist þessu ákvæði heilbrigð-
issamþyykktarinnar.
Við smjörgerð er ævinlega í
öllum löndum notað vatn til
þess að skola burt áfirnar. Síð-
an er smjörið hnoðað, þangað
til vatnsmagnið í því er orðið
minna en æskilegt er fyrir gæði
smjörsins. Vatnsmagnið í 'smjör
inu er síðan ákvarðað við rann-
sókn, og þá jafnframt reiknað
út hve miklu vatni þurfi að
bæta í smjörið til að gera það
sem bezt. Lokastig vinnslunnar
er því, að vatnsmagni því, sem
talið er vanta, er bætt í smjör-
ið.
f þessu sambandi viljum vér
benda á, að 16% er einmitt
sama vatnsinnihald og stærstu
framleiðendur á heimsmarkað-
inum hafa í sínu sölusmiöri.
Þetta tilgreinda vatnsmagn í
smjöri hefur þá höfuðþvðingu
fyrir gæði þess, að þannig .dreif
ist saltið bezt, og smjörið fær
æskilegastan þéttleika og áferð
(,,konsistens“).
Það er einn megintilgangur
Osta- og smjörsölunnar s.f., að
samræma gæði söluvaranna.
Koma þar fiölmörg atriði til
greina, þar á meðal vatnsinni-
hald smjörsins. Smiör, sem
Osta- og smiörsölunni s. f. kann |
að berast til söhimeðferðar og |
inniheldur of lítið vatn, telur j
fyrirtækið ekkT fuílunna vöru I
og því nauðsynlegt að ljúka
vinnslunni með þeeim hætti að
samræma vatnsmagn smjörs-
ins við það, sem almennt á að
gilda um sölu smjörs.
Osta- og smjörsalan s.f. mun
leggja á það áherzlu, að vinnslu
smjörs á hverjum framleiðslu-
stað verði hagað með sams-
konar hætti og lokið þar að
fullu, þannig að ekki þurfi síð-
ar að bæta þar um.
2. Út af ummælum í nefndri
grein í Vísi skal enn á ný tekið
fram, að Framleiðsluráð Land-
búnaðarins hefur fyrir nokkru,
að tilhlutan landbúnaðarráð-
herra, skipað nefnd til þess að
setja reglur um mat á smjöri
og osti.
Osta- og smjörsalan s.f. hef-
ur frá því er fyrirtækið hóf
starfsemi sína, haft í þjónustu
sinni norskan sérfræðing, Jak-
ob Vikse, sem hefur haft yfir-
umsjón með mati og flokkun á
smjöri. Hefur hann í því starfi
haft til hliðsjónai- reglur-, sem
gilda í Noregi, Danmörku, Sví-
þjóð og Finnlandi, og mun svo
verða, unz hér á landi hafa
verið settar reglur um þetta
efni.
3. Fyrir neytendur alhiennt,
hefui' starfsemi Osta- og smjör
sölunnar s.f. m.a. haft þá þýð-
ingu, að nú er smjör frá mjólk-
urbúum landsins selt í tveim
verðflokkum eftir metnum
gæðum, en áður var öll slík
framleiðsla seld óflokkuð á
einu og sama verði.
Reykjavík, 11 apríl 1959.
F.h. Osta- og smjörsölunnar s.f.
Sig. Benedikísson.
ATHS. — Það er bjarnar-
greiði við höfund bréfsins hér
að ofan að birta það, en hann
um það, úr því að hann óskar
eftir því, og skal hér aðeins .fáu
við bætt.
Þetta er eitthvert skopleg-
asta skrif, sem komið hefur á
prent um langt skeið, og sýnir
taugaveiklun framsóknar-
manna, þegar hneykslin dynja
á þeim úr öllum áttum. Bréfrit
arinn segir, að því „hafi aldrei
verið haldið fram, að Osta- og
smjörsalan s.f. hafi selt smjör
með meira vatnsinnihaldi en
svo, að samrýmist" heilbrivðis-
samþykkt Reykjavíkur. í því
sambandi er rétt að benda bréf
ritara á, að það var eimnitt
tekið fram í fregn Vísis á föstu-
daginn, að Osta- og smjörsalan
hefði ekki farið fram úr 16%!
Eitthvað hefur samvizkan ver-
ið slæm, úr því að bréfritarinn
skrifar eins og hann hafi verið
sakaður um meira vatnsbland!!
Hitt stendm- svo óhagg-
að, að þeir Erlendur Einars-
son, formaður félagsstjórn-
ar Osta- og smjörsölunnar
s.f., og Sigurður Benedikts-
son, forstjóri sama fyrirtæk
is hafa borið fyrir dómi að
hafa bætt vatni í upp að
16% markinu. Það var það
eina, sem Vísir benti á.
Fyxir þetta verður Vísi nú
stefnt, svo að þeir félagar hafa
bersýnilega fullan hug á að
gera sig rækilega hlægilega,
því að einu vitnin, seem Vísh'
mun kalla í þessu máli verða
þeir Erlendur og Sigurður. Þeir
sögðu fyrir sjó- og verzlunar-
dóminum —- að vísu með öðr-
um orðum — að þeir hefðu
bætt vatni í smjörið fyrir 75 kr.
lítrann eða þar um bil. Það
þætti víst dýrt, ef vatnsveita
Reykjavíkur heimtaði þetta
verð fyrir lítrann af Gvendai'-
brunnavatni eins og þeir félag-
ar gera. Hvað segði Tíminn við
slíkum prísum?!
Það stendur og óhaggað, að
engar matsreglur hafi verið til,
þegar „mat“ var hafið. Er hægt
að framkvæma mat án allra
reglna? Hyggilegra hefði verið
að byrja á réttum enda —
semja fyrst matsreglur og meta
eftir þeim, en að meta alveg
út í hött.
Annars er það öruggast, að
því. er mat snertir, að láta
smekk neytenda meta gæði
hverrar vöru. Þannig var það
áður, og þá seldist það smjör,
sém var gott, en hitt ekki —
skussarnir fengu áminningu,
— Ritstjóri.
karlmanna
og drengja
fyrirliggjandi
LJ.MOLIER
IJtsölur VÍSIS
AUSTURBÆR:
Hverfisgötu 50. — V ciziun.
Hverfisgötu 69. — Florida.
Hverfisgötu 71. — Verzlun.
Ilverfisgötu 74. — Veitingastofa.
Hverfisgötu 117. — Þröstur.
Söluturninn — Hlemmtorgi.
Bankastræti 12. — Adion.
Laugavegi 8. — Boston.
Laugavegi 11. — Adlon.
Laugavegi-30 B. — Söluturnii..t.
Laugavegi 34. — Veitingastofan.
Laugavegi 43. — Siili & Valdi.
Laugavegi 64. — Vöggur.
Laugavegi 86. — Stjörnukaffi.
Laugavegi 116. — Veitingastofan.
Laugavegi 126. — Adlon.
Laugavegi 139. — Ásbyrgi.
Snorrabraut. Austurbæjarbar.
Einholt 2. — BiIIiard.
Hátún 1. — Veitingastofan.
Vitastíg. — Vitabar,
Samtún 12. — Drífandi.
Miklubraut 68. — Verzlun.
Mávahlíð 25. — Krónan.
Leifsgötu 4. — Veitingastofan.
Barónsstíg 27. — Veitingastofan.
' i ‘
t ;
I -
* i
1 1 ( »
M
i ; ‘
i . I «
í
iíi:
11 a'
i
I M.hl M I
í í 5 I '
lí
I .j.
>.? I i.
I I i
' i !
I j í'1
' í .'
SUÐ AUSTURBÆR:
Skólavörðustíg. — Gosi.
Bergstaðastræti 10. — Verzlun.
Bergstaðastræti 40. — Verzlun.
Bergstaðastræti 54. — Veitingastofan,
Fjölnisvegi 2. — Víðir.
Lokastíg 28. — Veitingastofan.
Þórsgötu 14. — Þórskaffi.
Óðinsgötu 5. — Veitingastofan.
Týsgötu 1. — Havana.
Klapparstíg. — Verzlun.
Frakkastíg 16. — Veitingastofan. '
MIÐBÆR:
Söluturninn við Arnarhól.
! Hreyfilsbúðin við Arnarhól.
jSöIuturninn við Lækjartorg.
Pylsusalan við Austurstræti.
|Hressingaskálin við Austurstræti.
; FJaðasalan, S. Eymundsson, Austurstræti.
j Sjálfstæóishúsið. — Austurvöll.
* Söluturninn. — Kirkjustræti.
lAðalstræti 8..— Adlon.
íVeltusund. — Söluturninn.
VESTURBÆR: j?
Vesturgötu 2. — Sölutuminn.
|Vesturgötu 14. — Adlon.
Vesturgötu 29. — Fjólan.
Vesturgötu 45. — West-End.
Vesturgötu 53. — Veitingastofan,
Mýrargötu. — Vesturhöfn.
i Bræðraborgarstíg 29. — Veitingastofan.
!, Framnesvegi 44. — Verzlun.
(Sólvallagötu 74. —Veitingastofan.
■ Kaplaskjólsvegi 1. — Verzlun.
SMelabúðin. — Verzlun.
SörlaskjóL — Sunnubúð.
Straumnes. — Verzlim.
Hringbraut 49. — Silli & Valdi.
Blómvallagötu 10. -— Veitingastofan.
Fálkagötu 1. — Reynisbúð.
ÚTHVERFI; ....
Láúgahesvegi 52. -
Lauganesvegi 52. -
Brekkuiækjir 1.
í.ai;ghö!tsvegi 42.
Langholtsvegi 52. -
Langlroltsvggi 131.
Langholtsvegi 174. — Verzlun.
Skipasuml. — Rangá. : :
RéttarhoIts\'egi 1. — Söluturninn.
Hólmgarði 34. — Bókabúð,
Grepsásvegi, — Ásinn.
Fossvogur.— VérzJun.
Kópavogshálsi t— Biðskýlið h.f.
Borgarholtsbraut. — Biðskýlið.
Silfurtún. — Biðskýlið við ÁsgarS,
Hótel Hafnarfjiirðor.
Strandgötu 33.;— Vcitingistzfaa.
SÖluturninn við ÁlfaskeiS. "
Aldan, veitingastofan við Strandgötu.
!i í
I a
i iæ ~
! ii i
I J
• t «'
n r
1 * H
1 ! 'I
i' r
1 f
i’í
1 1 a
i i:
... r
i : ’ ! f : n;
■!! í-i >y
1 ■ i i : i
r.;i
i . 1" i >
i Hj j h p
1 i ’i i ti iii
• í? | w ;i <
^TTj.jT]
! iMr-i/
T 1
Söluturniim. "
Lauganesbúð.
- Verzlun G. AíbsstssaMu >
■ Saga.
Vcitingasíofan.
.:;L
- ■'
M'
m1