Vísir - 14.04.1959, Blaðsíða 5

Vísir - 14.04.1959, Blaðsíða 5
JÞriðjudaginn 14. apiil 1959 VlSIB r Enn er tundurduflahætta fyrir landi hér, Ber Bretum ekki að bæta aflatjónið? ísafirði, 5. apríl 1959. Þótt liðin séu nær fimmtán ár frá styrjaldarlokum fiskast upp fleiri og færri tundurdufl árlega hér við land. Einkum eru það togarar, sem fá þennan ófögnuð í vörpuna, og verða að hætta veiðum, leita næstu hafnar og fá vágestinn gerðan óvirkan. Flest tundurduflin hin síðari ár hafa fiskast upp hér við Vestfirði og nú síðast eink- um á veiðisvæðum vestan og austan við Hornbjarg, enda mun þar hafa verið sett marg- föld tundurduflagirðing á styrj aldarárunum. Því má geta nærri, að afla- tjón þeirra skipa, sem fiska upp tundurdufl, er næsta mikið samanlagt. Nemur vart minna en allmörgum milljónum kr., ef allt er talið. Auk þess er mik ill kostnaður við að gera tund- urduflin óvirk. Þann kostnað hefur ríkið greitt. Eru Bretar lausir? Nú er spurningin: Ber Bret- um, sem lögðu tundurduflin, að borga þennan kostnað? Og sé svo. Hvers vegna eru Bretar ekki látnir borga? Er það ein- liver sérstök linkind af hálfu íslenzku ríkisstjórnarinnar, eða hefur verið samið þannig við Breta, að þeir séu lausir við all ar bætur vegna þessara hern- aðaraðgerða? Væntanlega svar- ar ríkisstjórnin þessum spurn- ingum opinberlega. Hafi íslenzka ríkið tekið á sig bótaskyldu vegna þessara eða annarra hernaðaraðgerða Breta á styrjaldarárunum ber þá ekki ríkinu að greiða afla- tjón þeirra skipa, sem fiska upp tundurdufl á veiðisvæðum 'sínum? Enn geta liðið mörg ár þang- að til eytt er öllum þeim tund- urduflum, sem lögð voru hér við land á styrjaldarárunum. Enn geta tundurduflin einnig valdið miklu tjóni, stærra og meira en aflatjóna. Nægir í því sambandi að nefna botnvörpu- skipið Fylkir, sem sagt er að farizt hafi af völdum tundur- dufls hér úti af Vestfjörðum. Þessi atburður gæti endurtekið sig. Þetta er því allt of stórt og hættusamt mál til að vera þögn inni grafið. Full þörf er á því, að gerð verði gangskör til að slæða veiðisvæðin hér út af Vestfjörðum, og þar með minnka þá hættu, sem af tund- urduflum getur stafað. Beri Bretum að borga fær al- menningur ekki séð að réttlátt sé að sleppa þeim við skyldur sínar, og ríkisstjórnin eigi hik- laust að gera ákveðnar kröfur um réttingu þessara mála, svo og um bætur fyrir veiðitjón. Þessi atriði eru að sjálfsögðu laus við landhelgisveiðar Breta. En vitanlega rifjast þau upp og margt fleira við þær ljótu að- ferðir, sem Bretar beita nú við okkur íslendinga. — Arn. Nú fyrir skömmu tókust samningar við Dani mn keppni milli landanna og hefur því ver ið ákveðið að Islendingar fari utan 14. maí n. k., en þetta cr fyrsta landskeppni sem íslend- ingar heyja í körfuknattleik. Það var með aðstoð hins góð- kunna frjálsíþróttamanns Em- anúel Rose að samningar tók- ust með keppnina. Einnig stóð til að koma á landskeppni við Svía, en það verður ekki af því í ár. Þeir hafa boðið til lands- keppni næsta ár og hefur ver- ið ákveðið að hún fari fram í Stokkhólmi. íslendingar keppa í Khöfn þ. 16. maí, en auk þess munu þeir heyja þar þrjá til fjóra aukaleiki víðsvegar um Dan- mörku við dönsk úrvalslið. Ekki er búið að velja í landsliðið enn, en skipuð hefur verið lands- Dýravemdarinn. Dýraverndarinn, 1. tbl. 1959 er komið út. Þetta er 45. ár- gangur tímaritsins. Eigandi og útgefandi Dýravemdarans er ekki sá sami og áður. Nú hefur Samband dýraverndunarfélaga Islands tekið við útgáfu tíma- ritsins. Ritstjóri er hins vegar sá sami og áður, Guðmundur G. Hagalín, sem hefur vérið ritstj. Dýraverndarans s.l. fjögur ár. Greinar í tímaritinu eru að þessu sinni: Aðgerðir gegn olíu- megnun sjávar, Litla gráa kisa í skúrnum, frásögn Sigurlaug- ar Björnsdóttur frá Veðramóti, Þorsteinn Einarsson skrifar um rjúpuna. Tólfára gömul heima- sæta á Tindum í Geiradal í Austur-Barðastrandarsýslu, Ragnheiður Grímsdóttir, skrif- ar skemmtilega sögu um hann Fífil. Eins og ávallt er Dýra- verndarinn prýddur hinum fal- legustu myndum. Það verður að láta það fylgja þessari sögu að nauðsynlegt er að kynna Dýraverndarann betur meðal unglinga í skólum landsins, því það hefur hann sannað á sinni löngu ævi, að hann á brýnt er- indi á hvert heimili og ekki sízt þar sem fyrir er æskufólk. liðsnefnd, sem velja á liðið og eru það Bogi Þorsteinsson og Guðmundur Georgsson. Lands- þjálfari verður Ásgeir Guð- mundsson. Framkvæmdanefnd- in sem séð hefur um undirbún- ing keppninnar og utanferðar- innar eru: Ásgeir Guðmunds- son, Axel Jónsson, Ingi Þor- steinsson og Ingólfur Örnólfs- son. Um hina fyrirhuguðu keppni er það að segja, að almennt er sú skoðun ríkjandi meðal þeirra, sem til þekkja, að lönd- in standi mjög líkt hvað hæfni. snertir, en þeir bjartsýnu eygja þó vinningsmöguleika. Eina reynslan af keppni við Dani í þessari íþrótt er sú að fyrir tveim árum fóru stúdentar ut- an og léku þá við Kaupmanna- hafnarúrval tvívegis og báru sigur af hólmi í bæði skiptin. ' i Lokið tveim skíðamótum. Sr&es hvB'fj S^iíröarsosa eSstiar á SS^SSoSiki ta Staáðaaaaa. íslendingar keppa við Dani í körfuknattleik. Þetta er fyrsti landsleikur íslend- inga í þessari íþrótt. Sjúkur af sjónvarpsglápi. Einstætt mál fyrir rétti í Bretlandi. Fyrir æskumannarétti í Vimbledon lýsti faðir því ný- ega, að 16 ára sonur hans hefði iíðustu átta mánuði orðið al- íerlega sljór af að horfa á sjón- ,-arp fjölskyldunnar. Áður en þessi sjónvarpsfirra rófst, hafði hann verið mjög iðlilegur unglingur og emn af ?eim beztu í íþróttum. En nu /ar eins og sjónvarpið væri allt rans líf. Faðirinn kvartaði yfir 3essu og þar sem hann sá, að o- nögulegt var fyrir hann að itjórna drengnum hafði hann ,ripið til þess ráðs að fara með nálið fyrir dómstólana. Sjónvarpið hafði S®1 drenginn sjúkan, hann D að komast undir læknishend ur, en hann neitaði að tala við lækni, sagði faðir hans. Síðastliðinn fehrúar fór hann úr skólanum, og síðan hefir hann stöðugt setið fynr framan sjónvarpið, það er hað eina, sem hann hefir a- huga fyrir. Hann hirti 3afn- vel ekki um að fá vasapen- inga, því að hann kom aldrei út fyrir dyr. Nú talaði hann ekki lengur við föður sirn^, en þegar móðir hans fór öfc til innkaupa, lokaði hanm öllimi dyrum hússins svo a® hún kæmi ekki inn til að trufla hann. Dómarinn las skýrslu frá sér- fræðingi, sem ráðlagði a® drengurinn yrði lagður inn á sjúkrahús. Þar næst lagði hana. nokkrar spurningar fyrir drenginn. Honum varð við eins og haima væri að vakna úr djúpuuu svefni. Svör hans voru ruglings leg og það tók hann langar stundir að stama út úr sér stutt- um setningum. Dómarinn talaði um fyrir drengnum og. sagði honum aS taugar hans væru auðsjáanlega illa á sig komnar og að hanm ætti ekki að setja sig upp á móti því, að láta lækni skoða sig. Málinu var frestað í tvær vikur, svo að drengurinn gæti gengið undir nýja rannsókm hjá sérfræðingi og áttað sig á því, hvort ekki væri bezt fyrir hann að dveljast undir læknis- hendi um tíma. lÖnaðarhúsnæði Húsnæði óskast fyrir léttan, þrifalegan iðnað. Stærð um 25 fermetrar. Helzt á góðum stað í bænum. Tilbcð merkt: „Há leiga“ sendist Vísi strax. TILKYNNING utn sölu á „kílóvöru" Póststjórnin hefur ákveðið að sala notaðra frímerkja (kíló- vöru) árið 1959 skuli fara fram samkvæmt skriflegum til- boðum. Tilboðin skulu send til Póstmálaskrifstofunnar, Thorvaldsenstræti 4, Reykjavík, merkt orðunum „tilboð i kílóvöru11, fyrir 15. júní 1959. Minnsta tilboð skal vera 1 % kg. og áskilur póststjórnin sér rétt til að takmarka há- mark til hvers einstaklings við 3 kg. 13/4, 1959. Póst- og símamálastjórnsn Trillubátaeigendur Viljum taka á leigu um óákveðinn tíma 2—3gja tonna trillubát. Þeir, sem kynnu að vilja sinna þessu, gjöri svo M.s. SkjaldbreiÖ fer til Ólafsvíkur, Grund- arfjarðar, Stykkishólms og Flateyjar hinn 18. þ.m. — Tekið á móti flutningi í dag og á morgun. — Far- seðlar seldir á föstudag. M.s. Herðubreið austur um land til Fá- skrúðsfjarðar hinn 20. þ.m. Tekið á móti flutningi til Hornafjarðar, Djúpavogs, Breiðdalsvíkur, Stöðvar- fjarðar og Fáskrúðsfjarðar á morgun og fimmtudag. Farseðlar seldir árdegis á laugardag. ■ Reykjavíkurmót í stórsvlgii Á laugardaginn var haldið var haldið sunnud. 12./4. í Stefánsmót (seinni helmingur), Skálafelli. K. R. sá um mótið. Veður var gott og færi ágætt. Keppendur voru á milli 30 og 40 frá 3 félögum. Úrslit urðu þessi: A.-fl.: Svanberg Þórðarson, í. R. 1. Stefán Kristjánsson, Árm. 2. Úlfar Sltæringsson, Í.R. 3. Valdimar Örnólfsson, Í.R. 4. Ólafur Nilsson, KR, 5. (sami tími). Keppni fór ekki fram í B-fl. C-fl.: Ágúst Björnsson, ÍR. 1. Þórir Lárusson, ÍR. 2. Hreiðar Ársælsson, KR. 3. í drengjaflokki: Troel Bendt- sen, KR. 1. Herbert Ólafsson, KR. 2, Davið Guðmundsson, KR sem frestað var vegr.a veðurs um helgina þar á undan.' Mó.tið fór fram í Skálafelli, K.R. sá um mótið. Keppt var í svigi. Úrslit urðu þessi: A-fl. karla: Svanberg Þórð- arson, ÍR. 1. Stefán Kristjáns- son, Árm. 2. Guðni Sigfússon, ÍR. 3. Ásgeir Eyjólfsson, Árm. 4. - B-fl.: Björn Steffensen, KR. 1. C-fl.: Þórir Lárusson, ÍR. 1. Þorkell Þorkelsson, KR. 2. Ás- geir Christiansen, SKH. 3. Drengjafl.: Davíð Guðmunds- son, KR. 1. Þorsteinn Þorvalds- son-, KR. 2. Troel Bendtsen, KR. vel að hringja í síma 32515 í dag eða á morgun kl. 7—9 e.h. Röskan afgreiöslumann vantar strax. Unglingur kemur til greina. PAL RAFKERTI og Pal varahlutir í.rafkerti Skoda bifreiða. SMYRILL, Húsi Sameinaða. — Sími 1-22-60. (</»*««•/>>*

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.