Vísir - 20.04.1959, Blaðsíða 6

Vísir - 20.04.1959, Blaðsíða 6
6 V í S I B Mánudaginn 20. apríl 1952* VÍ SI3R DAGBLAfi Útgeíandi: BLAÐAÚTGÁFAJN úlSIR H1.. Tíslr kemur út 300 daga & ári, ýmist B eöa 12 blaðsíðux Ritstjórl og ábyrgðarmaður; Hersteinn Pálssoi, ^ Skrifstoíur blaðsíns eru í Ingólfsstræti 3. Ritstjórnarskrifstofur blaðsins eru opnar frá kl. 8,00—-18,00. Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00. Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00—19,00, Simi: (11660 (fimm linur) Visir kostar kr. 25.00 í áskrift á manuðí. kr. 2.00 eintakið í lausasölu. Félagsprentsmiðian h.f Vita ekki sitt rjúkandi ráð. Fyrir nokkrum dögum mátti lesa eftirfarandi setningar í blaði nokkru, sem gefið er út úti á landi: „Ætli það 1 verði ekki mikil hagsbót að því fyrir almenning úti á landi, þegar þingmenn Reykjavíkur eru orðnir fjór- um fleiri en nú? Hefur ekki Reykjavíkurvaldið verið alltof lítið hér á landi und- anfarin ár? Er ekki sjálfsagt að auka það, landi og lýð til blessunar? Hefur ekki Al- þingi verið alltof ódýrt í rekstri undanfarið? Hafa ekki þingmennirnir verið alltof fáir hjá svona fjöl- m'jnnri þjóð sem okkur?“ Þessar setningar eru teknar upp úr Degi, blaði Fram- sóknarflokksins og sam- vinnufélaganna á Akureyri. Það er annað helzta blað þess ágæta flokks, áhrifa- mesta málgagn þess utan Reykjavíkur, og er fyrst og fremst skrifað fyrir þá, sem búa við Eyjafjörð og þar fyrir austan, sem sagt íbú- ana í landshluta Framsókn- arflokksins, þar sem hann telur sig eiga bæði menn og málleysingja. Þegar á þetta er litið, er einkar fróðlegt’ og eftirtektarvert að lesa þessar setningar, sem les- endum er ætlað að velta fyrir sér í sambandi við kjördæmabreytinguna, sem hér verður gerð. En svo illa vill til, að þegar verið er að prenta þessar setningar Dags fyrir norðan, gerist það hér fyrir sunnan, að einn helzti þingmaður flokksins úr landsfjórðungn- um góða, kemur að hljóð- nemanum við útvarpsumræð ur og hefir þann boðskap að flytja, að Framsóknarflokk- urinn muni leggja til, að þingmönnum Reykjavíkur verði fjölgað um fjóra. Vafa- laust hefir mönnum brugðið í brún fyrir norðan, þegar þeir höfðu fyrir sér Dag og þessi ívitnuðu ummæli, en minntust um leið þess, er sá maður hafði að segja, sem sendur var fyrst fram til að berjast gegn kjördæma- breytingunni. Það má segja um þetta, að Framsóknarflokkurinn veit ekki sitt rjúkandi ráð. Hann er alveg orðinn ruglaður af þeim atburðum, sem gerzt hafa, svo að hann veit ekki frá einum degi (ef til vill er réttara að rita Degi) til annars, hvað sé heppilegast • fyrir hann og þá, sem hann hefir getað fengið til fylgis við sig á undanförnum ár- um. Flokksþingið boðar á- kveðna stefnu, þegar það hefir setið á rökstólum hér í Reykjavík, en svo kemur allt annað hljóð 1 strokkinn, þegar fáeinar vikur eru liðn- ar. Flokkurinn rífur sjálfur niður þau vii’ki, sem hann hefir verið að hlaða sér. Hann telur Reykjavíkurvaldið mikið og hættulegt, en samt gerir hann tillögu um að það skuli fara í vöxt. Hann telur það síður en svo hagsbót fyrir almenning úti um land, ef fjölgað verður þing- mönnum fyrir Reykjavík, en samt „býður“ hann upp á fleiri þingmenn hér. Honum finnst kostnaðurinn við Al- þingi of mikill, en samt ger- ir hann tillögu um, að hann verði aukinn. Það er ber- sýnilegt, að þeir menn vita ekki sitt rjúkandi ráð, er hegða sér og taia þannig. Þeir eru í rauninni búnir að tapa ráði og rænu. Réttast væri fyrir Framsóknar- flokkinn að efna til nýs flokksþings og gera enn eina tilraun til að komast að því, hvað hann vill eiginlega. VonSaus barátta. Það er greinilegt af þessu, að foringjar Framsóknarliðsins gera sér grein fyrir því, að þeir standa mjög höllum fæti í baráttunni, sem nú er að hefjast. En við því var að búast, og þeir máttu vel vita það. Þeim vegnar aldrei vel til langframa, sem berjast gegn mannréttindum. Fram- sóknarmenn hafa barizt eins og Ijón gegn cllu réttlæti um langt skcið, en nú er svo komið, að þcir sjá, að mæl- irinn er íullur og útfallið ao hefjast. Framsóknarmenn sjá fram á, að þeir hljóta að bíða mik- inn ósigur á þessu ári, og þeir eru orðnir skelkaðir, því að þeir óttast, að gróðaað- staða þeirra verði lélegri á eftir, því að þeir hafa ævin- lega tengt gróðasjónarmiðin pólitískum áhrifum sínum. Þeir ættu að reyna að vera þeir menn, að þeir taki ó- sigrinum með karlmennsku. Einhver hlýtur jafnan að verða undir, og þeir ættu að ástunda að venja sig við þá hugsun, að þeir eru hinir út- völdu að þessu leyti. Kcpavogshæiið stækkað — getur bætt við sig 20 vistntönnum. Styrktarsjóði vangefinna tryggðar milljónatekjur næstu árin. Aðalfundur Styrktarfélags vangefinna var haldinn s. 1. pálmasunnudag 22. marz í fé- lagsheimili Óháða safnaðarins við Háteigsveg. Fonnaður fé- lagsins, Hjálmar Vilhjálmsson, ráðuneytisstjóri, flutti skýrslu um störf félagsins á liðnu ári. Meðlimir eru nú 430 að tölu. Lög voru samþykkt á Alþingi 1958 um styrktarsjóð vangef- inna og breyting var gerð á þeim lögum á yfirstandandi þingi. Þau lög tryggja væntan- lega 1.5—2 millj. króna árlega næstu fimm árin til framkv. í þágu vangefins fólks. þess skal getið hér að gefnu tilefni, að Styrktarsjóðir vangefinna eru í vörzlunjv félagsmálaráðu- neytisins, en ekki Styrtarfélags vangefinna eins og margir virð ast álíta. Félagið hefur einung- is tillögurétt um veitingar úr sjóðnum samkvæmt 3. gr. reglu gerðar hans sem hljóðar svo: ,,Fé sjóðsins skal varið sem lánum eða styrkjum til þess að reisa eða endurbæta stofnanir fyrir vangefið fólk. Félagsmála ráðuneytið rástafar fé sjóðsins samkvæmt þessari grein að fengnum tillögum Styrkarfé- lags vangefinna og í samráði við önnur ráðuneyti, sem kunna að eiga hlut að máli hverju sinni.“ Helming af tekjum sjóðsins hefur til þessa verið varið til þess að stækka og endurbæta Kópavogshælið og verður þar af leiðandi unnt að bæta þar við 20 vistmönnum á næstunni. Stjórnin hefur ennfremur unn- ið að fjáröflun fyrir félagið og Bretar — Framli. af 1. síðu. veg fyrir að atburðir sem þessi endurtaki sig — meðan ekki liggi fyrir niðurstaða væntan- legrar alþjóðaráðstefnu vorið 1960 um réttarreglur á hafinu ■— að fundin verði bráðabirgða- lausn varðandi fiskveiðar hér við land, annaðhvort með samn ingaviðræðum eða með því að vísa málinu til alþjóðadómstóls ins. Utanríkisráðuneytið, 20. apríl 1959. | skipað nefnd í því skyni. Tekj- ' ur af merkjasölu félagsins námu um 100 þús. krónum. Félagið hyggst efna til happ- drættis um Volkswagen-bifreið og verður væntanlega dregið um hana 30- sept. n. k. Þá hafa verið gerð minningarspjöld í nafni félagsins, svo og sérstakt félagsmerki. Leikskóli hefur verið rekinn um skeið á vegum félagsins. A árinu hefur verið varið nokkru fé til styrktar- starfsemi. Má þar nefna kr. 25 þús. til jólaglaðnings á hæluri- um í Kópavogi, Sólheimum, Skálatúni og Stokksej'ri. 20 þús. kr. voru gefnar barnaheim ilinu á Sólheimum í Grímsnesi vegna 25 ára afmælis stofnun- arinnar.. Að lokum gerði formaður nokkra grein fyrir áætlunum um starf félagsins á næsta ári. Er þar helzt til að nefna, að fé- lagið hyggst opna skrifstofu hér í bæ vegna starfsemi sinn- ar. Verður þar m. a. unnið að því að gera spjaldskrá yfir van- gefið fólk á öllu landinu, rekin upplýsingar- og fyrirgreiðslu- starfsemi alls konar vegna vandamála þess fólks og að- standenda þess.. Að lokinni skýrslu formanns voru reikningar félagsins upp- lesnir og samþykktir. Verða þeir birtir í næsta Lögbirtinga- blaði. Þá var samþykkt breyt- ing á félagslögunum, þannig að árgjöld og ævifélagagjöld renna nú í sama sjóð, félagssjóð, í stað þess að þau skiptust áður á milli félags- og framkvæmda- sjóð. Úr stjórn gekk eftir hlut- kesti frú Kristrún Guðmunds- dóttir, er var endurkjörin í einu hljóði. Með sama hætti gekk úr varastjórn frú Fanney Guðmundsdóttir og var hún einnig endurkjörin. Stjórn fé- lagsins skipa því: Hjálmar Vil- hjálmsson ráðuneytisstj., form., frú Kristrún Guðmundsdóttir, Guðmundur H. Gíslason múr- arameistari, og Aðalsteinn Ei- ríksson námsstjóri. í varastjórn eiga sæti þau Arnheiður Jóns- dóttir námsstjóri, frá Fanney Guðmundsdóttir, Vilhelm Há- konsson, málarameistari, Páll Líndal lögfræðingur og Hall- dór Halldórsson arkitekt. Mú tekur Rússinn lúð- una þeirra við Alaska. Bandaríkjamönnum lízt ekki á veiðisókn þeirra. Það eru fleiri en fslendingar, sem fá óvelkomnar heimsókn- ir fiskimanna á mið sín. — Eftirfarandi grein er tekin úr Nevv York Herald Tribune, og lýsir misklíð, sem komin er upp milli amerískra fiski- manna o" Rússa veyna lúðu- veiða við strendur Alaska. „Sú staðreynd að rússneskir veiðiflotar stunda nú veiðar undan norðvesturströnd Al- aska, og að fiskimenn á vestur- ströndinni hafa mótmælt þeim, vísar athygli manna á þá nauð- syn, að setja alþjóðareglur um veigamestu fiskimið heimsins. Fiskur hefur síaukið gildi sem fæðutegund, og það er undir framtakssemi fiskveiðiþjóð- anna komið og vilja þeirra til að varðveita fiskimið sín, hvort þessi fæðuuppspretta gengur til þurrðar eða ekki. Þetta er ekki aðeins spurn- ing um „friðun" fiskimiða, heldur er um líf eða dauða að ræða, ekki aðeins fyrir fiski- mennina sjálfa, heldur og fyrir tugi milljóna manna í löndum eins og Japan (sem sovétþjóðir þrengja nú illilega að í sam- bandi við fiskveiðiréttindi á Kyrrahafinu). Bretland og ís- Stöðumælar. „Bifreiðareigandi" skrifar: „Mig langar til að ítreka þaðr sem oftar en einu sinni hefur verið minnzt á í Bergmáli, að það virðist vera gengið nokkuð langt í því í þessu, í þessum bæ, að fjölga allaf stöðumælunum, — ég held sem sé, að stöðumæla- fjöldinn sé orðinn það mikill i miðbænum, að ekki sé þörf að fjölga þeim frekara, a. m. k. ekki utan aðalhverfisins í miðbænum. „Einhvers staðar verða vondir að vera“ og á ég þar við þá, sem búa í úthverfum og aka i bæinn til vinnu sinnar, og létta þar með á yfirfullum strætisvögnum, sem ekki anna flutningunum á. mestu annatímum dagsins, nema , troðfylla þá svo, að engri átt nær. Eg tel réttmætt, að séð sé fyrir ákveðnum fjölda bílastæða, þar sem menn geta lagt bifreið- um sínum endurgjalda- og; hömlulaust." 15. apr. ’59. Og annar lesandi skrifar 15 þ. m.: Kæra Bergmál. „Eg vil eindregið leggast gegn því að taka upp orðið kjör um það sem nú er nefnt kjördæmi, sbr. bréfi í pistlinum þínum i dag, en sammála er ég bréfritar- anum að nauðsyn sé á að nýju kjördæmin fái strax skýr og þjál nöfn en til þess þarf að breyta nokkrum af nöfnunum, sem nú eru notuð til að svo verði. ( Mínar tillögur eru að nýju kjördæmin verði nefnd Reyja- neskjördæmi, Reykjavikurkjör- dæmi, Vesturlandskjördæmi, Skagakjördæmi (sbr. Reykjanes- kjördæmi), Norðurlandskjör- dæmi, Austurlandskjördæmi, Suðurlandskj ördæmi. land fóru næstum í hár saman á s.l. ári vegna deilu um veiði- rétt við ísland. í mörgum til- fellum hafa alþjóðlegar ráð- stefnur mikla þýðingu til varð- veizlu fiskjar, en svo er þó alls ekki í öllum tilfellum, og því lengra, sem veiðiskipin sigla til að leita miða, því líklegra. er að deilur rísi um þau' mál. Um 50 rússneskir togarar hafa verið við botnvörpuveiðar, þ. a. m. lúðu-út af Bristolflóa í Alaska. Þeir hafa fullan rétt til að vera þarna, á meðan þeir fara ekki yfir þriggja mílna línuna. En amerískir og kana- dískir fiskimenn mega ekki veiða lúðu fyrr en 1. apríl, sam kvæmt „Lúðusamningnum“ milli þessa tveggja rikja. Hin- ir rússnesku fiskimenn voru því ekki einungis að veiðum þarna án samkeppni, heldur voru þeir einnig að veiða á svæði, sem er álitið að megi ekki nýta vegna viðhalds fiski- stofnsins. Af þessu má læra að rétt væri fyrir Ameríkana og Kan- adamenn að fá Rússa til þess að ganga að samkomulagi, sem mundi dreifa fiskinum réttlát- lega milli þeirra, sem áhuga hafa, jafnframt, sem stofninn er varðveittur. Rússar voru þátttakendur í alþjóða ráð- stefnu um fiskveiðar á Norð- Vestur-Atlantshafi á síðasta ári. Þeir eru til með að viðurkenna að fiskivernd muni til hags- bóta fyrir þá. Allt annað mun hafa í för með sér tillitslausa samkeppni.“

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.