Vísir - 24.04.1959, Blaðsíða 7
:'Föstudaginn 24. apríl 1959
_-■* f
VlSIR
stundað hvíta
hraktir þaðan.
til annarar, sem Attilio hafði
tökin á, Robinu nokkurrrar
Torrence. í nokkrar vikur var
hún látin fara á hverju kvöldi
í nokkrar vikur til íbúðar hinn-
ar til þess að kynnast við-
skiptavinum. „Kennarinn“ tók
peningana, sem hún fékk, og
afhenti Messina, og kom sjálf
með hana að næturstarfinu
loknu. Svo flutti hann Ednu í
um praktuglega á hvítri þrælasölu. Hefur því unnist mikill nýja jbúg 0g fékk henni þernu
sigur í baráttunni við að draga úr vændi í West End í London,
þar sem fjöldi vændiskvenna var flæktur í net þeirra.
Messinabræður, sem hafa
þrælasölu í London - loks
Hugrökk vændiskona fór tíl lögreglunnar, og
sagði alla sögu sína, og fengust þá
sannanir sem
Fyrir nokkrum dögum var kveðinn upp dómur í Old Baily-
réttinum í London yfir einum mesta „kóngi hvítrar þrælasölu“
í heiminum — Aítiiio Messina. Það voru ýmsar sérstákar
ástæð'ur fyrir hendi til bess, að dómurinn vekti athygli, og eink-
um sú, að með lionum tókst Bretum loks að losna við hina
alræmdu Messina-bræður, sem til þessa hafa lifað I vellysting-
Þeir höfðu sem sé ávallt J er hún veik með eilíflega glöt-
uð beztu ár ævi sinnar, frjáls
að nýju, en hinn tungumjúki
og alltaf var einhver þeirra | Attilio kominn í fangelsi, ó-
skotið upp
aftur, þótt
kollinum aftur og
þeir fengju dóma
til að hafa gát á henni, en Ro-
bina hafði enn eftirlit með
henni.
til að stjórna öllu, þótt aðrir | skrautlegt
væru að afplána dóm. Þeim
hafði nefnilega tekizt að
blekkja yfirvöldin alla sína
hundstíð með því að leggja
fram skilríki fyrir, að þeir væru
fæddir á Möltu, og væru því
brezkir þegnar, sem hefðu rétt
til að dveljast í landinu, en nú
er sá blekkingaleikur úr sög-
unni, því það sannaðist við þau
réttarhöld, sem nýlega lauk
með ofannefndum dómi, að
Attilio Messina er fæddur á
Ítalíu, er ítalskur þegn, og geta
yfirvöldin þar því ekki neitað
að taka við honurn, en til þessa
hefir hann hvergi getað fengið
landvist nema á Bretlandi. Svo
hættulegir eru þeir bræður
taldir, að í öllum Evrópulönd-
um og víðar, voru gerðar sér-
stakar ráðstafanir til þess að
hindra, að þeir byggju þar um
sig. Attilio Messina fékk 4 ára
fangelsi og að þeim tíma liðn-
um verður lionum vísað úr
landi og heim til föðurliúsanna.
annarrar
Hugrekki vændiskonu
varð honum
loks að falli.
Þessi saga sýnir hættur stór-
borgarlífsins — hvernig ungar
stúlkur eru ginntar til saur-
lifnaðar — flæktar í net, sem
þær sjalnast losna úr, vegna
þess að þær komast í klærnar
á tunguliprum varmennum
svo sem Attilio Messina og öðr-
um slíkum. Eins og dómar-
inn sagði við sakborning, er
hann hafði loks orðið að játa
sekt sína:
„Lifnaðarhættir yðar í 10 ár
virðast augljóslega sanna, að
þér hafið vaðið í fé, sem til yð-
ar hefir runnið vegna þess ó-
geðslega lífernis, sem konur, er
þér hafið veitt í gildrur og tál-
dregið, og niðurlækkað á am-
báttarstigið, hafa fært yður.
Það kann að vera, að þessi
kona, Kallman (höfuðvitnið
gegn Attilio), hafi blekkzt af
mikilli góðvild yðar, sem kom
fram sem hjálpsemi, en reynd-
ist aðeins blekkingahjúpur, til
að dylja yðar illa tilgang. Þér
hafið valdið miklum þjáning-
um og það er ekki nema rétt,
að þér verðið sjálfur að þjást.“
Ambátt í 10 ár.
Edna Kallman var raunveru-
lega ambátt, ófrjáls gerða sinna
í ósýnilegum viðjum, sem voru
sterkar sem stál. Fangelsi
hennar var skrautleg íbúð í
Mayfair — en fanglsi samt. Nú
Þetta er Attilio Messina, „kóng-
ur hvítrar þrælasölu“ í West
End í London um langt árabil,
sem pfinnti Ednu Kaliman og
fjölmargar aðrar konur, til
þess að stunda vændi í auðg-
unar skyni fyrir hann sjálfan.
Hann er ítalskur, kom til
London 1934, skaut sér undan
að fara í stríðið, og með sínum
alræmdu bræðrum skipulagði
hann vændisiðkun hundraða
kvenna í West End — en nú er
sá „frægðarferill“ é enda.
undar — ekki til tíu ára dval-
ar — heldur fjögurra.
Ákærandi sagði sögu hennar
í réttinum.
Saga hennar.
Hún var 27 ára, skilin frá
manni sínum, og án tenngsla við
foreldra sína, er hún fyrst hitti
Messina 1947. Hann bauð henni
Strangar
fyrirskipanir.
Edna fékk strangar fyrir-
skipanir. Hún mátti aldrei
skipta við þeldökka menn,
aldrei skrifast á við neinn,
varð að stunda iðju sína á til-
teknu svæði og fara ákveðna
leið heim með „viðskiptavin-
ina“.
loks leiddi til þess, að Edna I Street. „Hún virtist hrædd. Eg|
losnaði úr viðjunum og Attiliolbauð að hjálpa henni, en hún;
þorði ekki að þiggja hjálp
mína. Það var þá, sem eg af-
fékk sinn dóm. Gleðikona í
íbúðinni fyrir .neðan lenti í
vandræðum með viðskiptavin
og æddi upp til Ednu til hjálp-
ar. Hún fór og kallaði á lög-
reglumann til hjálpar. Attilio
Messina sá það. Hann kom dag-
inn eftir og hafði í hótunum.
Hún varð svo hrædd, að hún j
flýði úr landi. Messina komst j Fimm voru
að hvar hún var, en hún komst j a Verði.
henti henni nafnspjaldið mitt,
ef hún þyrfti á hjálp að halda.
Það var ekki' fyrr en hinn 8..
febrúar sl„ sem hún hringdi til!
mín og bað mig að hjálpa sér
að komast undan.“
undan og til Derby og
lögreglunni alla söguna.
sagði
Brátt flutti hann hana í
íbúð í New Bond Street, þar
sem hann sjálfur gat haft eftir-
lit með henni. Hann hringdi til
hennar þrisvar á dag og kom
sjálfur á nóttunni, til þess að
sannfæra sig um, að hún hefði
ekki viðskiptavini hjá sér að
næturlagi. Þau snæddu hádeg-
isverð saman vikulega og þá
afhenti hún honum það, sem
henni hafði áskotnazt vikuna á
undan. Hann hafði strangt eft-1 shame
irlit með bréfum, sem hún innar)
Lögreglan heimsækir
Messina.
Brátt barði lögreglan að
dyrum hjá Messina. „Edna
Kallman,“ sagði hann, ,,eg
þekki hana ekki.“ En engin
brögð dugðu. í íbúð Ednu
fannst bók, kölluð „Leiðin til j
Buenos Aires“, en í henni vari
sagt frá hvítu þrælasölunni um
1920, hvernig ungar stúlkur
voru fangaðar, fluttar til Bue-
nos Aires, í vændiskvenna-
húsin þar Messalina hafði und-
irstrikað ýmsar setningar og
skrifað athugasemdir á spáss-
íuna svo sem: „Þetta er vert
þess, að það sé lesið tvisvar.“
Þess er ’að geta, að Carmelio
bróðir hans er í fangelsi fyrir
svipaðar sakir, hefir verið
gerður landrækur, og Eugenio,
þriðji bróðirinn, er í fangelsi í
Belgíu. Þeir voru allir í sama
„bransanum".
fékk. Þau varð að senda í íbúð
hans. Sum bréf móður sinnar
fékk hún að lesa, önnur ekki.
Og allt, sem hún skrifaði, las
Messina. Hann neyddi hana til
þess að stunda þessa iðju á
hverju kvöldi og fram eftir
nóttu hvern einasta dag, hvern-
ig sem henni leið, og beitti hót-
unum og ofbeldi. Hann kvað
mundu „merkja hana í fram-
an“, ef hún reyndi að flýja.
Lcitað læknis.
Edna veikist alvarlega og
Messina neyðist til að fara með
hana tii læknis. Hann ráðlegg-
ur mánaðar hvíld, „Vitleysa,"
sagði Messina við hana, „þú
heldur áfram“. — Eitt sinn, er
hún kvartaði, svaraði hann:
„Eg er þreyttur á þessu. Eg
gæti náð í 17 ára stelpu í stað-
inn fyrir þig og þar ai5 auki
sofið hjá henni sjálfur.“
40 þúsund
sterlingspund.
Meðan heilsan bilaði afhenti
til miðdegisverðar og brátt varð| hún honum um 120 pund á
hún ástmær hans. Hann stefndi viku — en um það er lauk um
að ákveðnu marki, en hann
fór sér hægt, því að slægð var
honum í blóð borin. Það var
ekki fyrr en 1949 sem það
gerðist, er „innsiglaði örlög
hennar“. Hún féllst á að flytja
í íbúð, sem hann lagði henni til
í Knightsbridge. Hún var kom-
in í gildruna. Þá lagði hann
hald á sparifé hennar, 350
pund, og hún fékk ekki að
koma út fyrir húss dyr í þrjá
mánuði. Hann færði henni mat-
inn sjálfur. Næsta skrefið var
að þjálfa hana til hins þokka-
lega starfs, sem henni var ætl-
að, og í því skyni var hún send
50. En á tíu árum afhenti hún
honum, að því er hún telur,
40.000 pund. — En hvað fékk
hún ofan á smánina og ófrels-
ið: Sjö pund á viku, og varð
sjálf að greiða fyrir fæði sitt
lengstum, hárgreiðslu, sima o.
fl. Stöku sinnum fékk hún
þó „gjöf“ frá honum — pels
— slíkar konur eiga alltaf pels
— armband eða eitthvað til
skrauts.
Tilviljunin kom
til hjálpar.
Það var tilviljun, sem hratt
af stað þeirri atburðarás, sem
Leigubílstjóri
hjálpaði lionum.
f kvikmyndi um hvíta
þrælasölu, „Passport to
(vegabréf til smánar-
hjálpa leigubílstjórar
einni af stúlkum götunnar, sem
stundaði iðjuna nauðug. Eins
var það hér. Fimmtugur leigu-
bílstjóri hafði kynnzt Ednu á
matsofu, fékk samúð með henni
og sagði við hana, að ef hún
einhvern tíma lenti í háska,
skyldi hún leita til sín. Það var
ást beggja á hundum, sem
leiddi til, að þau kynntust. —
Eitt sinn sá hann hana í Bond
„Eg ók til íbúðar hennar f
New Bond Street til þess að
sækja hana. Fimm félagar,
leigubílstjórar, voru á verði á
götunni. Eg ók fyrst á. einn stað
svo á annan, til þess að villa um
fyrir Messina og hans mönnum,
og fór loks með hana til Wat-
ford, þar sem vinkona annaðisfc
hana. Og sex hundar gættui
hennar að auki.“
Ilætturnar.
í erlendum stórborgum erut’
hundruð manna af sama sauða-
húsi og Messinabræður, þótfc
eigi séu eins alræmdir, — sam-
viskulausir bófar, • sem beita
sömu brögðum og þeir — og
ýmsum öðrum. Ungar stúlkur
sem fara einar erlendis mega
vita, að hætturnar eru margar.
Jafnvel væntanlegur atvinnu-
rekandi hefur stundum reynsfc
úr flokki hvítra þrælasala..
Ávallt ber að njóta fyrir-
greiðslu manna og stofnana,
sem treysta má. Saga Ednu
Kallman er ein af sögum tug-
þúsundanna, sem líkt eða jafn-
vel verr hefur farið fyrir. Húrt
er birt hér, vegna þeirrar við-
vörunar, sem hún felur í sér
fyrir ungar stúlkur — og vegna
þess, að sigur hefur unnið í
baráttunni gegn hvítu þræla-
sölunni, sem mikla athygli hef-
ur vakið, og talinn er munu
verða til mikillar uppörvunar
þeim, sem hana heyja.
Gronchi Ítalíuforseti hefur
opnað kjarnorkustöð í
Ispra við Major-vatn — og
og er það fyrsta kjarnorku-
rannsóknarstöð þar í landi.
Húseigendafélag Reykjavíkur
hefur víðtæka starfsemi.
Hefur ráðið eldvarnaráðunaut. - Leiðbein-
ingastarfsemi fyrir almenning áformuð.
Húseigendafélag Reykjavík- hvernig skuli bregðast við, ef
ur hefur nýlega fengið f járveit-
ingu úr bæjarsjóði Reykjavík-
ur, svo sem kunnugt er, til
starfsemi í þágu eldvarna í
bænum.
Félagið hefur ýmsar áætlan-
ir á prjónunum í þessum efn-
eld ber að höndum.
Að sjálfsögðu verður leitað
samstarfs við ýmsar þær stofn-
anir og samtök, sem slík mál
láta til sin taka, svo sem
slökkvilið, tryggingarfélög o.
fl. um ýmsar framkvæmdir
sameiginlegra áhugamála. Hef-
ur þegar verið hafizt handa í þá
um, og hefur þegar hafizt
handa um framkvæmdir. Hef- J átt, með vænlegum árangri.
ur verið ráðinn ráðunautur | Erlendis er það alltítt að fé-
þess í eldvarnarmálum, Guð- lög og borgaralegar stofnanir
mundur Karlsson fyrrv. bruna-
vörður, en hann hefur allvíð-
tæka reynslu og þekkingu í
slíkum málum, og væntir fé-
lagið góðs árangurs af starfi
hans.
Þá er áformað að hefja víð-
tæka leiðbeiningastarfsemi fyr-
ir almenning um þau mál, sem
mest munu aðkallandi í sam-
bandi við eldhættu og bruna-
tjón. Mun komið á framfæri á
ýmsan hátt, aðvörunum og ráð-
leggingum um eldhættu og
myndi með sér samtök um slík
mál, og hefir það gefið góða
raun.
Húseigendafélag Reykjavík-
ur hefur opnað skrifstofu í
Austurstræti 14, III. hæð. Sími
15659. Fyrst um sinn verður
eldvarnaráðunautur félagsins
þar til viðtals kl. 5—7 og 1—3
á laugardögum, og mun hann
veita jafnt félagsmönnum, sem
öðrum, upplýsingar og ráðlegg-
ingar um hverskonar eldvarar-
mál, sé þess óskað.